InnlentTelur uppsögnina hafa kostað á fjórða tug milljóna – Eyþing óskaði eftir að trúnaði um kostnaðinn16. apríl 2020 „Þetta var áfallaár í lífi mínu,“ segir Pétur Þór Jónasson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eyþings, í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann fékk tæpar 15 milljónir króna í bætur vegna þess sem hann taldi ólöglega uppsögn þegar dómsátt var gerð í máli hans fyrr á árinu. Honum var sagt upp október 2018. Eyþing óskaði eftir að trúnaður ríkti um útgjöldin er fram...
InnlentHlaut tveggja mánaða skilorð fyrir heimilisofbeldi7. apríl 2020 Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi þann 1. apríl karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundiö fangelsi fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi. Maðurinn var ákærður 16. ágúst í fyrra fyrir að hafa „á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð sambýliskonu sinnar,“ og var þess krafist að ákærði yrði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi slegið konuna...
InnlentDómari vísar máli Jóhanns frá7. apríl 2020 Dómari hefur vísað máli Jóhanns Helgasonar frá þar sem hann stefnir Universal Music og norska lagahöfundinum Rolf Løvland og fleirum vegna lagsins Söknuður. Jóhann hefur haldið því fram að lag Løvland, Your Raise Me Up, sem söngvarinn Josh Groban gerði frægt árið 2003 sé stolið og sé í raun útgáfa af laginu Söknuður frá árinu 1977. Lagið Your Raise Me... Myndband
InnlentMargir listamenn óánægðir með samskiptin við Óperuna4. apríl 2020 „Ljóst að gildir kjarasamningar voru ekki virtir,“ segir Gunnar Hrafnsson, formaður FÍH. Félag íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, hefur fyrir hönd Þóru Einarsdóttur óperusöngkonu stefnt Íslensku óperunni vegna vangoldinna launa Þóru við uppfærslu óperunnar Brúðkaup Fígarós síðastliðið haust. Málið hófst í haust þegar átta einsöngvarar í Brúðkaupi Fígarós tóku sig saman og leituðu til síns stéttarfélags, FÍH, um leiðréttingu launa sinna við...
InnlentStórsöngkona stefnir Óperunni3. apríl 2020 Félag íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, hefur fyrir hönd Þóru Einarsdóttur óperusöngkonu stefnt Íslensku óperunni vegna vangoldinna launa Þóru við uppfærslu óperunnar Brúðkaup Fígarós síðastliðið haust. „Ágreiningurinn snýst um það hvaða samningar gilda og um túlkun samninganna sem Íslenska óperan gerði við einsöngvara í uppfærslunni á Brúðkaupi Fígarós,“ segir Þóra Einarsdóttir. „Við erum til dæmis með þak á æfingatíma og það var...
InnlentSýslumaður viðurkennir mistök27. mars 2020 Fulltrúi Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu boðaði að kyrrsetningu eigna Skúla í Subway yrði aflétt í kjölfar nýfallins dóms Landsréttar. Daginn eftir dró hann það til baka. Skúli hefur nú kært þrotabúið vegna ákvörðunar sýslumanns. „Þetta er mjög íþyngjandi og veldur mér gífurlegu tjóni,“ segir Skúli Gunnar Sigfússon, sem jafnan er kenndur við Subway. Fulltrúi Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu tilkynnti Skúla og hlutaðeigandi...
HeimurCovid-19Julian Assange óttast að smitast í fangelsinu – Beiðni um að verða leystur úr haldi gegn tryggingu hafnað26. mars 2020 Beiðni Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, um að vera leystur úr haldi með ökklaband gegn tryggingu vegna útbreiðslu COVID-19 var hafnað í gær. Assange óskaði eftir að verða leystur úr haldi úr Belmarsh öryggisfangelsisins í London með þeim rökum að það myndi draga úr hættu á að hann myndi smitast af COVID-19. Dómari í málinu, Judge Vanessa Baraitser, hafnaði beiðninni og...
InnlentIngunn Lára vinnur Nútímann: „Á sama tíma það versta og besta sem ég hef lent í”3. mars 2020 Ingunn Lára Kristjánsdóttir blaðamaður á Fréttablaðinu vann í gær dómsmál gegn Gebo ehf., sem á og rekur vefmiðilinn Nútíminn. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær var félagið dæmt til að greiða henni 174.157 krónur auk dráttarvaxta frá 1. mars 2019 og 600.000 krónur í málskostnað. Mynd / Skjáskot Ingunn starfaði í viku á Nútímanum í fyrra og gekk þaðan út...
InnlentLögreglan og landlæknir á móti áfengisfrumvörpum1. mars 2020 Mjög skiptar skoðanir eru um tvö frumvörp sem nú liggja fyrir í þinginu um breytingar á áfengislögum. Öðru frumvarpinu er ætlað að heimila sölu áfengis í vefverslunum. Markmið hins er að afnema þá refsingu sem finna má í lögum vegna heimabruggunar með gerjun. Óhætt er að segja að umsagnaraðilar frumvarps Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á áfengislögum skiptist í...
InnlentGagnrýna umfjöllun Íslands í dag: „Tóku þátt í ofbeldi gegn þolanda ofbeldis og barni hennar“26. febrúar 2020 Hópurinn Líf án ofbeldis gagnrýnir umfjöllun Íslands í dag á Stöð 2 harðlega þar sem rætt var við Kolbrúnu Önnu Jónsdóttir. Í þættinum sagði Kolbrún frá atburðarrás sem varð til þess að hún var ákærð fyrir líkamsárás á barnsmóður eiginmanns síns. Í þættinum ræddi Kolbrún einnig mál eiginmanns síns, Ólafar William Hand, sem hlaut dóm árið 2019 fyrir ofbeldi gegn...
InnlentArnþrúður dæmd til að greiða Reyni 300 þúsund en ætlar að áfrýja11. febrúar 2020 Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, var í morgun dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða Reyni Traustasyni, fyrrverandi ritstjóra DV og núverandi stjórnarmanni Stundarinnar, 300 þúsund krónur í miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla sem hún lét falla um Reyni á Útvarpi Sögu þann 5. desember 2018. Auk þess var Arnþrúður dæmd til að greiða 1,1 milljón í málskostnað. Hvorki Reynir né...
InnlentBætur greiddar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum30. janúar 2020 Ríkið greiddi í gær út bætur á grundvelli laga um bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum sem kveðinn var upp í fyrra. Þetta staðfestir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í samtali við Fréttablaðið. Albert Klahn Skaftason, Guðjón Skarphéðinsson og Kristján Viðar Júlíusson, auk maka og barna Tryggva Rúnars Leifssonar og Sævars Marinós Ciesielski fengu alls 815 milljónir greiddar á grundvelli...