Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gagnrýna umfjöllun Íslands í dag: „Tóku þátt í ofbeldi gegn þolanda ofbeldis og barni hennar“

Hópurinn Líf án ofbeldis gagn­rýnir umfjöllun Íslands í dag á Stöð 2 harð­lega þar sem rætt var við Kolbrúnu Önnu Jóns­dóttir. Í þætt­inum sagði Kolbrún frá atburð­ar­rás sem varð til þess að hún var ákærð fyrir lík­ams­árás á barn­s­móður eig­in­manns síns. Í þætt­inum ræddi Kolbrún einnig mál eig­in­manns síns, Ólafar William Hand, sem hlaut dóm árið 2019 fyrir ofbeldi gegn barns­móður sinni.

Viðtalið við Kolbrúnu var sýnt í gær. Frosti Logason tók við­talið við Kolbrúnu.

Sigrún Sif Jóels­dóttir, ein talskvenna hóps­ins Líf á ofbeldis, tjáir sig um þátt­inn á Facebook-síðu sinni. Í færslu sinni bendir hún á að „skautað hafi verið fram hjá því“ að greina nægi­lega vel frá dóm­inum sem Ólafur hlaut.

„Í þætt­inum Ísland í dag þar sem spilað var við­tal við eig­in­konu Ólafs Hand og fjallað var um sak­fell­ingu yfir Ólafi og ákæru á hendur þeim hjónum í kvöld er alfarið skautað fram­hjá því að nefna fyrir hvað Ólafur var sak­felldur og á hvaða grunni sem hlýtur að vera grund­vall­ar­at­riði í fjöl­miðlaum­fjöllun um málið. Rétt er að halda því til haga að í dóm­inum yfir Ólafi William Hand kemur fram að hann hafi tekið barns­móður sína háls­taki, þrengt ítrekað að hálsi hennar og hrint henni þannig að hún féll í gólfið og að gögn og myndir af bráða­mót­töku LSH leiði í ljós „marga yfir­borðsá­verka á hálsi, tognun og ofreynslu á háls­hrygg, yfir­borðsá­verka á bak­vegg og brjóst­kassa“,“ skrifar Sigrún.

Hópurinn hafði fyrr í vakið athygli á umfjöll­un­inni og gagn­rýndu að til stæði að sýna þátt­inn á „besta tíma í sjón­varpi“.

„Síðan hvenær fá eig­in­konur dæmdra ofbeld­is­manna plat­form á besta tíma í sjón­varpi allra lands­manna til þess að lýsa yfir sak­leysi þeirra? Mega eig­in­konur dæmdra nauð­gara þá kannski gera ráð fyrir að fá slíkt pláss líka? Við for­dæmum Stöð 2 fyrir að taka þátt í að gefa þessu fólki end­ur­tekið rými í fjöl­miðlum til þess að beita barn og konu sam­fé­lags­legu ofbeldi,“ var skrifað í færslu sem birt­ist á mánu­dag­inn.

Aktí­vist­inn og bar­áttu­konan Elísabet Ýr er einnig ein þeirra sem hefur gagn­rýnt umfjöllun Íslands í dag. „Mig langar bara segja það upp­hátt að Sindri Sindra­son og Frosti Logason tóku þátt í ofbeldi gegn þol­anda ofbeldis og barni hennar í kvöld. Með þætti Ísland í dag voru þeir að beita hana og barnið ofbeldi. Fokkið ykkur.“

Bryn­hildur Yrsa spyr hverjir ætla að segja upp áskrift­inni að Stöð 2 eftir umfjöllun Frosta.

Um 80 konur, stuðn­ings­hópur ó­lög­ráða barns, gáfu í gær út yfir­lýs­ingu sem birt­ist á vef Vísis þar sem við­talið var gagn­rýnt. „Að fjöl­mið­ill, með sitt vald, taki jafn skýra afstöðu í jafn við­kvæmu máli er eins­dæmi. Stöð 2 veitir hjón­unum sér­með­ferð sem varla nokk­urt annað sakað fólk hefur áður fengið,“ segir meðal ann­ars í þeirri yfr­lýs­ingu.

Þess má geta að upp­haf­lega stóð til að sýna þátt­inn 24. febr­úar.

„Í dag var tekin sú ákvörðun að fresta sýn­ingu þess­ari umfjöllun. Við höfum rætt við báða máls­að­ila og stefnum að því að fjalla um þetta mál síðar í vik­unni og þá munu báðir máls­að­ilar eiga þess kost að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi,“Sagði Frosti í svari sínu til Hring­brautar.

Þátt­ur­inn var þá á dag­skrá í gær­kvöldi og var tekið fram í lok hans að barns­móðir Ólafar hafi ekki viljað tjá sig fyrir þátt­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ