MannlífiðFrábær fiskisúpa sem bítur í16. apríl 2020 Súpur eru fyrirtaksmatur og tilvalið að bera þær fram með góðu brauði. Þessi fiskisúpa heppnaðist mjög vel í tilraunaeldhúsi Gestgjafans en hún er bragðmikil og svolítið sterk. Hægt er að gera hana daginn áður og hita upp rétt áður en á að bera hana fram, en þó er betra að setja fiskinn út í samdægurs.
MannlífiðGómsæt og tignarleg súkkulaðikaka í tilefni af afmæli Frú Vigdísar Finnbogadóttur15. apríl 2020 Ein virtasta og flottasta kona Íslandssögunnar á afmæli í dag, Frú Vigdís Finnbogadóttir. Hún var fyrsta konan í heiminum til að verða kjörin forseti lýðveldisríkis og veitti konum um heim allan innblástur. Vigdís er frábær fyrirmynd og var flottur leiðtogi í forsetatíð sinni og er reyndar enn. Við hér á ritstjórn Gestgjafans óskum henni innilega til hamingju með 90 árin og deilum um leið einni forsetalegri og afar bragðgóðri súkkulaðikökuuppskrift í tilefni dagsins.
MannlífiðÆðislegar tartalettur með aspas og sveppum sem allir verða að prófa13. apríl 2020 Margir eiga góðar minningar um tartalettur úr æsku en þær voru vinsælar í veislur á síðustu öld. Margir tengja þær líka afgöngum enda eru þær tilvaldar til að nota undir restar af kjöti og meðlæti. En þegar öllu er á botninn hvolft eru heitar tartalettur dásamglega góðar og tilvaldar sem kvöldmatur með góðu salati. Þessi uppskrift að tartalettum með aspas og sveppum er alger klassík og agalega góð. Tartalettur fást tilbúnar í flestum matvöruverslunum.
MannlífiðTerta sem gerir páskana gleðilega og gómsæta12. apríl 2020 Um leið og við á ritstjórna Gestgjafans óskum ykkur gleðilegra páska þá bjóðum við upp á þessa flottu tertu sem sómir sér vel á páskaborðinu og fellur eflaust vel í kramið hjá yngri kynslóðinni. Fallegt er líka að nota eingöngu súkkulaðiegg ofan á kökuna
Mannlífið„Súkkulaðið fyrirgefur svo margt“7. apríl 2020 Segja má að frumkvöðullinn Eva Michelsen hafi fengið áhuga á kökugerð í vöggugjöf enda alin upp í bakaríi föðurfjölskyldunnar. Hún er sérstaklega flink að vinna með súkkulaði og í nýjasta tölublaði Gestgjafans, 4. tbl. 2020, gefur hún okkur uppskrift að heimagerðum páskaeggjum.
MannlífiðBananakaka sem slær allstaðar í gegn7. apríl 2020 Sniðugt er að baka þessa köku þegar bananarnir ykkar eru á síðasta snúningi en þeir þurfa einmitt að vera vel þroskaðir til þess að fá gott bananabragð í kökuna. Ef þeir eru það ekki getur verið gott að setja 1 tsk. af vanilludropum út í deigið. Verði ykkur að góðu.
Mannlífið„Kemur mér spánskt fyrir sjónir að stéttir innan landbúnaðar vilji halda fast í niðurgreiðslur frá ríkinu án þess að horfa á upprunalegan tilgang þeirra“6. apríl 2020 Axel Sigurðsson, nemi í matvælafræði og búfræðingur, hefur sterkar skoðanir á hérlendri matvælaframleiðslu og finnst hún og íslenskur landbúnaður að mörgu leyti glíma við andlega stöðnun. Axel er í viðtali í nýjasta tölublaði Gestgjafans, 4. tbl. 2020.
MannlífiðTveir frábærir blómkálsréttir6. apríl 2020 Blómkál er spennandi hráefni sem hægt er að nýta á margvíslegan máta. Það er hægt að grilla, nota í súpur og salöt, ofnrétti, pizzabotna og margt annað. Hér gefum við ykkur uppskriftir að bökuðu blómkáli og ristuðum blómkálsbitum sem okkur finnst verulega góðir.
MannlífiðSegir meðalveginn bestan: „Allar öfgar geta verið vafasamar“23. mars 2020 Linda Hilmarsdóttir hefur rekið heilsuræktarstöðina Hress í Hafnarfirði ásamt eiginmanni sínum um árabil og þar vinnur öll fjölskyldan. Hún segir ánægjulegustu stundirnar þeirra vera við matarborðið og að fiskur og pastaréttir séu í uppáhaldi.
MannlífiðOstatortilla með kjúklingi og steiktu rósakáli22. mars 2020 Ljúffengur réttur sem fellur inn í ketó-mataræðið. Ostatortilla með kjúklingi og steiktu rósakáli fyrir 2-3 3 msk. beikonkurl eða 3 sneiðar beikon 1 dl grænar ólífur, saxaðar, 1 tsk. chili-flögur 1 msk. harissamauk 3 msk. rjómi 50 g fetaostur hnefafylli steinselja, söxuð 100 g kjúklingakjöt að eigin vali, t.d. afgangur af kjöti af heilum kjúklingi 1 ½ bolli mozzarella-ostur 1...
MannlífiðLjúffeng ísterta með karamellusósu10. mars 2020 Þessa köku má gera með allt að þriggja mánaða fyrirvara og er bráðsniðugt að vera með ístertur, sem má gera með svona löngum fyrirvara, á hlaðborðinu í fermingaveislunni. Karamellusósuna er best að laga samdægurs.
MannlífiðBolludagur – uppruni og merking23. febrúar 2020 Bolludag ber alltaf upp á mánudaginn í sjöundu viku fyrir páska en flest bendir til þess að siðurinn hafi borist hingað til lands með dönskum eða norskum bökurum á síðari hluta 19. aldar. Þó kemur þessi dagur oft upp í fornbréfum þó að ekki sé talað um hann sem hátíðisdag. Í þjóðveldislögum er tekið fram að ekki má neyta kjötmetis...