Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bolludagur – uppruni og merking

Bolludagur – uppruni og merking
|bollur

Bolludag ber alltaf upp á mánu­dag­inn í sjö­undu viku fyrir páska en flest bendir til þess að sið­ur­inn hafi borist hingað til lands með dönskum eða norskum bök­urum á síð­ari hluta 19. aldar. Þó kemur þessi dagur oft upp í forn­bréfum þó að ekki sé talað um hann sem hátíð­is­dag.

Í þjóð­veld­is­lögum er tekið fram að ekki má neyta kjöt­metis tveimur dögum fyrir löngu­föstu til þess að und­ir­búa melt­ing­ar­færin. Þótti skyn­sam­legt að taka kjötið út og ýtti þetta undir fram­leiðslu á ýmiss konar góð­gæti, kökum og brauði. Má ætla að þaðan komi sið­ur­inn að borða bollur þennan dag.

Orðið „bolla“ er töku­orð úr dönsku frá 18. öld en merk­ing orðs­ins bolle var kringlótt kaka. Elsta heim­ild fyrir notkun orðs­ins er frá árinu 1799 og er þá átt við ýmsar bollu­gerðir eins og kjöt­bollur, fisk­bollur og brauð­bollur. Árið 1858 er „kjöt­bolla“ notað í íslenskri mat­reiðslu­bók en í sömu bók er „bollu­dags­bollan“ nefnd langa­föstu­snúður.

Myndband – Skotheld upp­skrift að hinum full­komnu vatns­deigs­bollum

Dagurinn var gjarnan kall­aður mánu­dag­ur­inn í föstu­inn­gangi eða flengi­dagur og kom heitið „bollu­dagur“ ekki fram fyrr en á öðrum ára­tug 20. ald­ar­innar. Rótin kemur frá smá­aug­lýs­ingu sem birt­ist árið 1913 þar sem aug­lýstir eru „bollu­dags­vendir“. Upp frá þessu virð­ist heitið bollu­dagur vera alls­ráð­andi.

Árið 1913 birt­ist grein í Morg­un­blað­inu um bollur og vendi og áhuga­vert er að rætt er um „gamla venju“ en þar segir. „Gömul venja er það, að börn fái þá papp­írs­vendi, í öllum regn­bog­ans litum, og gangi í hús nágrann­anna og flengi þá í rúm­inu. Sá þótti mestur mað­ur­inn eða efni­leg­asta stelpan sem flesta flengdi. En að launum eiga börnin að fá eina eða tvær bollur eftir efnum og ástæðum. Daginn eftir: nið­ur­gangur og kvalir. En börnin gleyma því fljótt – og heimta papp­írs­vendi næsta bollu­dag­inn.“

Texti / Anna Brynja Bald­urs­dóttir

Vatnsdeigsbollur

9-12 meðalstórar bollur eða 30 litlar

2 dl vatn

50 g smjör

100 g hveiti

3 með­al­stór eða 4 lítil egg

Hitið ofn­inn í 200°C. Hitið vatn og smjör saman í potti og látið suð­una koma upp. Setjið hveiti út í og hrærið saman, látið kólna í 3-5 mín. Takið pott­inn af hit­anum og setjið eggin út í, eitt í einu, sláið vel saman á milli. Setjið í sprautu­poka og sprautið 12 bollum á smjör­papp­írs­klædda bök­un­arplötu. Það má líka setja deigið með tveim teskeiðum á plöt­una. Bakið í um 20 mín., ekki opna ofn­inn fyrstu 15 mín­út­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni