MannlífiðMarokkóskt lambagúllas7. maí 2019 Alltaf er gaman að elda rétti sem koma frá öðrum heimshornum og enn skemmtilegra að nota ekta íslenskt hráefni í þá eins og lambakjöt. Þægilegt er að elda pottrétti og tilvalið að láta þá eldast lengi við vægan hita. Pottréttir eru oft betri daginn eftir og því gott að elda stóra skammta og láta duga í tvær máltíðir. Auðveldlega má skipta lambakjötinu út fyrir nautakjöt fyrir þá sem vilja það frekar.
MannlífiðFrábært flatbrauð á grillið4. maí 2019 Nú fer að verða grillhæft, að minnsta kosti að mati okkar Íslendinga. Við erum þekkt fyrir að láta ekki smávegis rigningu eða lágt hitastig koma í veg fyrir að nota grillin okkar. Það er líka ákveðinn vorboði þegar grilllyktin gýs upp í görðum fólks.
Fólk„Í eldhúsinu mínu fá allir að spreyta sig og skapa alls konar listaverk“25. apríl 2019 Sævar Lárusson er yfirkokkur á Kol Restaurant og gerðist þar að auki meðeigandi að staðnum nýlega. Hann hefur, að eigin sögn, haft áhuga á matreiðslu síðan hann man eftir sér og er jafnduglegur að elda heima hjá sér og í vinnunni.
MannlífiðGómsætt meðlæti með páskamatnum19. apríl 2019 Rétt meðlæti er oft það sem gerir máltíðina að sælkeramat. Hér gefum við ykkur uppskriftir að gómsætu meðlæti sem er fullkomið á páskaborðið.
MannlífiðGrænmetispaté á veisluborðið18. apríl 2019 Það er góð regla að bjóða ávallt upp á eitthvað sem grænmetisætur geta borðað í veislum og matarboðum þó svo að allir réttirnir þurfi kannski ekkert endilega að vera úr grænmeti, gaman er að blanda saman og gefa fólki val. Hér kemur uppskrift að grænmetispaté sem er fullkomið á veisluborðið.
MannlífiðKjötsúpa með lambaskönkum og perlubyggi14. apríl 2019 Kjötsúpa er í augum margra dæmigerður íslenskur matur og er alltaf vinsæl, bæði hjá ungum sem öldnum. Algengast er að nota gulrófur, gulrætur og hvítkál í súpuna, annað hvort haframjöl eða hrísgrjón og bæta síðan þurrkuðum súpujurtum saman við.
MannlífiðLjúffeng papriku- og gulrótasúpa17. mars 2019 Paprikur eru vinsælar víða um heim. Þær eru litríkar, hollar og bragðgóðar. Þær eru góðar hráar, bakaðar eða í súpur og það er auðvelt að nálgast þær allt árið um kring. Hér kemur uppskrift að dásamlegri súpu þar sem paprika spilar stórt hlutverk.
MannlífiðBrauð – alltaf gott í teiti og veislur10. mars 2019 Fallegt brauð er nauðsynlegt á veisluborðið og er að auki góð leið til að drýgja veitingarnar.
MannlífiðMatarmikil kjötsúpa sem yljar5. mars 2019 Súpur geta vel staðið einar og sér sem kvöldmatur með góðu brauði og sumar þeirra verða hreinlega betri daginn eftir eins og þessi matarmikla kjötsúpa. Það borgar sig því að gera nóg af henni.
MannlífiðSælkera perlubyggsbollur með grænmeti26. janúar 2019 Í þennan rétt var notað perlubygg sem er lúxusútgáfan af bygginu. Suðutíminn er einungis 15 mínútur og því sniðugt að nota það í staðinn fyrir hrísgrjón eða kartöflur til tilbreytingar. Hér er byggið notað í bollur sem eldaðar eru með grænmeti í ofni. Rétturinn getur staðið einn sér en líka sem meðlæti t.d. með fiski.
MannlífiðBragðgóð blómkálsbaka23. janúar 2019 Þegar hráefnið er fyrsta flokks er óþarfi að flækja hlutina mikið, yfirleitt er það einfaldasta best. Fátt jafnast á til dæmis á við ferkst grænmeti eins og sannast hér þar sem uppskrift er gefin að blómkálsböku frá Persíu.
InnlentGæti borðað avókadófranskarnar með chili-majó í öll mál22. nóvember 2018 Matgæðingurinn Guðrún Sóley Gestsdóttir sýnir og sannar hversu gómætur vegan matur getur verið með nýju uppskriftarbókinni sinni.