MannlífiðÞar sem ólíkir menningarheimar mætast16. júní 2019 Sigurbjörg Pálsdóttir innanhússarkitekt starfaði hjá IKEA í mörg herrans ár og ekki bara á Íslandi heldur víða um heiminn. Sigurbjörg býr núna í Leuven í Belgíu ásamt manni sínum Peter Krumhardt sem er danskur arkitekt. Þau hafa búið sér og sínum fallegt og framandi heimili sem litast af flakki þeirra um heiminn. Við heyrðum í Sigurbjörgu og spurðum hana út í lífið í Belgíu og fyrirtækið Pals&Co sem hún stofnaði eftir að hafa búið í Jórdaníu í nokkur ár og heillast af handverkinu, menningunni og fólkinu þar í landi.
InnlentAmbient í Mengi16. júní 2019 Sannkölluð Ambient-stemning verður í Mengi í dag, sunnudaginn 16. júní en þá koma fram: Arnljótur Sigurðsson, Daníel Friðrik Böðvarsson og Ciche Nagrania / Żofia. Tónleikarnir verða mikið sjónarspil en listræn stjórnun verður í höndum Dominika Ożarowska. Ókeypis er inn á tónleikana sem hefjast klukkan 20.
InnlentÞjóðarátak skilar árangri: „Aðsókn í kennaranám eykst töluvert milli ára“16. júní 2019 Hátt í 5.600 umsóknir í grunnnám bárust Háskóli Íslands fyrir skólaárið 2019-2020. Það er tæplega 13% aukning frá því í fyrra. Sé horft tvö ár aftur í tímann nemur fjölgunin um 25%. Þetta kemur fram í tilkynningu Háskóla Íslands.
HeimurÁsmundur Einar: Ekkert óeðlilegt við það að skipa nefndir pólitískt16. júní 2019 Framsóknarflokkurinn hefur stýrt félagsmálaráðuneytinu í 17 ár, frá árinu 1997. Fjölmargir aðilar tengdir flokknum gegna trúnaðarstörfum fyrir ráðuneytið. Í samtali við Kjarnann segir Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra að þegar um er að ræða nefndir, ráð og hópa á vegum ráðuneytisins sem taka stefnumótandi ákvarðanir sem tengjast pólitík þá séu formenn nefndanna pólitískt skipaðir. „Þegar pólitískar nefndir eru skipaðar þá er...
InnlentFleiri í vanda vegna smá- og skyndilána16. júní 2019 Stór hluti skjólstæðinga Umboðsmanns skuldara (UMS) á í greiðsluvanda vegna skyndi- og smálána.
InnlentFjölbreyttur hópur fólks skemmtir brúðkaupsgestum Gylfa og Alexöndru15. júní 2019 Gylfi Sigurðsson og Helga Alexandra gifta sig við Como-vatn á Ítalíu.
InnlentSá ekki dóttur sína í átta ár15. júní 2019 Í nýjasta tölublaði Mannlífs ræðir Kristinn Þór Sigurjónsson um andlát eiginkonu sinnar, Ingveldar Geirsdóttur, sem lést úr krabbameini í apríl. Í viðtalinu talar Kristinn einnig um erfiða forræðisdeilu sem hann stóð í þar sem hann sá ekki dóttur sína í átta ár.
MenningRokkveisla á Hard Rock15. júní 2019 Foreign Monkeys, KUL og Blóðmör halda sameiginlega tónleika á Hard Rock í kvöld, laugardagskvöldið 15. júní klukkan 22.
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirKóróna sköpunarverksins15. júní 2019 Sá frasi að samfélag okkar stjórnist af kristnu siðferði heyrist reglulega. Iðulega í tengslum við innflytjendur sem aðhyllast önnur trúarbrögð og þegar menn slengja þessu fram er gjarnan bætt við að þessi eða hinn hópurinn ætti nú að laga sig að okkar siðum.
Innlent„Algjörlega óskiljanlegt“15. júní 2019 Neytendasamtökin fá tugi mála á borð til sín vikulega vegna smálánafyrirtækja þar sem Almenn innheimta sér um innheimtu. Vaxtakostnaður lánanna er ekki í samræmi við íslensk lög og innheimtufyrirtækið hefur ekki svarað ítrekuðum fyrirspurnum Neytendasamtakanna.
InnlentFáum hefur tekist að snúa almenningsálitinu sér í vil á jafnskömmum tíma14. júní 2019 Í hverri viku velur Mannlíf þá aðila sem átt hafa góðu gengi að fagna í vikunni og hina sem hafa átt betri vikur. Í þessari viku er það Eric Hamrén, landsliðsþjálfari í knattspyrnu sem fyllir fyrrnefnda dálkinn en Stefán Pálsson sagnfræðingur fær hinn síður eftirsótta.