Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Algjörlega óskiljanlegt“

Neyt­enda­sam­tökin fá tugi mála á borð til sín viku­lega vegna smá­lána­fyr­ir­tækja þar sem Almenn inn­heimta sér um inn­heimtu. Vaxta­kostn­aður lán­anna er ekki í sam­ræmi við íslensk lög og inn­heimtu­fyr­ir­tækið hefur ekki svarað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum Neyt­enda­sam­tak­anna.

„Algjörlega óskiljanlegt“
Mynd/Pixabay

Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna, segir í sam­tali við Mannlíf að smá­lána­fyr­ir­tækin skýli sér á bak við erlenda starf­semi í Danmörku en það breyti engu í laga­legu til­liti. „Við höfum sent fyr­ir­spurnir á eft­ir­lits­stofn­anir í Danmörku og á þeim svörum sem við höfum fengið má skilja að þær telji að málin heyri ekki undir sig,“ útskýrir hún. Í skýrslu sem starfs­hópur á vegum Atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins skil­aði af sér í febr­úar kemur skýrt fram að þeim sem lána í íslenskum krónum til íslenskra lán­taka beri að lúta íslenskum lögum.

Bryn­hildur segir að það sé vissu­lega jákvætt að hér á landi sé lög­bundið hámark á vexti ólíkt Danmörku þar sem svo er ekki. Það þurfi hins vegar að vera hægt að fram­fylgja þessum lögum. „Okkur finnst þessi ólög­mæta starf­semi hafa fengið að við­gang­ast allt of lengi Þessum mik­il­vægu lögum verður að vera hægt að fram­fylgja en reynslan sýnir okkur að það er ekki raunin. Þrátt fyrir ótal úrskurði eft­ir­lits­stofn­ana og nið­ur­stöðu dóm­stóla um ólög­mæti lán­anna heldur starf­semin bara áfram. Það er óásætt­an­legt. Neyt­endur eiga að geta treyst því að ólög­mæt starf­semi á neyt­enda­mark­aði sé stöðvuð og stjórn­völd hverju sinni verða að tryggja að það sé gert.

Við sjáum alveg ömur­leg mál þar sem fólk í við­kvæmri stöðu tekur smá­lán í örvænt­ingu. Oft er um að ræða ungt fólk, fólk sem er á leigu­mark­aði, hefur misst vinn­una eða er á örorku­bótum.

Bryn­hildur segir aðspurð að á borð sam­tak­anna komi hræði­leg mál þar sem smá­lánin spili stórt hlut­verk. „Við sjáum alveg ömur­leg mál þar sem fólk í við­kvæmri stöðu tekur smá­lán í örvænt­ingu. Oft er um að ræða ungt fólk, fólk sem er á leigu­mark­aði, hefur misst vinn­una eða er á örorku­bótum. Lántakan vindur upp á sig þegar fólk þarf jafn­vel að taka annað lán til að borga af fyrri lánum því vaxta­kostn­aður er nátt­úr­lega í veld­is­vexti. Þannig að við fáum erfið mál sem við tökum inn á okkur og við erum hrein­lega að verða brjáluð á að horfa upp á fram­göngu þess­ara fyr­ir­tækja og inn­heimtu­að­il­ans sem kom­ast upp með þetta.“

Þá bendir hún á að sam­tökin hafi sér­stak­lega skoðað hvort heim­ilt sé taka út af reikn­ingnum eða kortum lán­tak­enda fyrir skuld­inni en hingað til hafi svör verið óljós og hver vísað á annan. „Þessi skuld­færslu­mál eru bara enn einn angi smá­lánaf­arg­ans­ins. Fólk hefur lent í því að um leið og það fær útborgað eru launin skuld­færð. Í einu dæmi sem við vitum um átti við­kom­andi ekki fyrir leig­unni. Við eigum enn eftir að sjá að fyrir þessum skuld­færslum sé skýr skuld­færslu­heim­ild. Við höfum auk þess kallað eftir því að Fjár­mála­eft­ir­litið skoði þessar skuld­færslur.“

Að sama skapi er erfitt að fá sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um skuld­ina þegar hún er komin í inn­heimtu, hver sé upp­haf­lega skuldin, hvað sé búið að greiða inn á hana og svo fram­vegis. Þá er ólög­legi vaxta­kostn­að­ur­inn gjarnan inni­fal­inn í höf­uð­stóli.

Er vilj­andi verið að gera ferlið eins óskýrt og mögu­legt er fyrir lán­tak­and­ann?

„Já, það er til­finn­ingin. En ég veit s.s. ekki hvar í ferl­inu smá­lána­fyr­ir­tækin enda og hvar Almenn inn­heimta tekur við en inn­heimtu­fyr­ir­tækið vísar flestum fyr­ir­spurnum á smá­lána­fyr­ir­tækið sem er komið með danskt net­fang. Þetta er algjör­lega óskilj­an­legt, að fyr­ir­tæki sem er með ólög­lega vöru á íslenskum neyt­enda­mark­aði fái að halda úti starf­semi eins og ekk­ert sé,“ segir Bryn­hildur og bætir við að vissu­lega hafi þó eitt­hvað verið gert. „Neyt­enda­stofa hefur úrskurðað um ólög­mætan vaxta­kostnað og lagt dag­sektir á fyr­ir­tækin. Tvö dóms­mál hafa stað­fest þá nið­ur­stöðu en nú hafa smá­lána­fyr­ir­tækin áfrýjað seinna mál­inu, lík­lega til að kaupa sér tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ