InnlentIcelandair rekur Íslendinga og útvistar þjónustu26. júní 2020 Starfsfólk þjónustuvers Icelandair er ósátt við að 50 starfsmönnum skuli hafa verið sagt upp í apríl þegar COVID-19 faraldurinn geisaði á meðan fyrirtækið heldur í 40 starfsmenn hjá þjónustufyrirtæki á Filippseyjum. Þeir gagnrýna fyrirtækið og VR fyrir að hafa stutt kjarabaráttu flugfreyja en þagað þunnu hljóði þegar starfsfólki þjónustuversins missti vinnuna. „Í mínum augum hefði verið flottara að draga úr...
InnlentForseti Íslands„Ég er þó ekki í félagi aldraðra feðra“25. júní 2020 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og eiginkona hans, Eliza Reid, búa við mikið barnalán. Þau eiga saman fjögur börn. Þau eru fædd með tveggja ára millibili, árin 2007, 2009, 2011 og 2013. Hann á eina dóttur frá fyrra hjónabandi. Hún er fædd árið 1994. Mikill aldursmunur er því á yngsta og elsta barni Guðna, eða 19 ár. Guðni segir að...
Innlent73 einstaklingar með skráð lögheimili í húsinu25. júní 2020 Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár eru 73 einstaklingar með skráð lögheimili í húsinu á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu sem brann í dag. Húsið er skráð rúmir 450 fermetrar. Fólkið sem er skráð með lögheimili í húsinu er á öllum aldri en flestir eru af erlendum uppruna. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar staðfesti fyrr í kvöld í samtali við Fréttablaðið að einhverjir þeirra...
InnlentÍbúar í nágrenni loki gluggum vegna reyks25. júní 2020 Slökkvilið er enn við vinnu vegna eldsvoðans sem kom upp í húsi á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu í Reykjavík. Tilkynning um eldinn barst kl. 15.15 í dag og mikill viðbúnaður hefur verið á vettvangi. Nokkurn reyk hefur lagt frá húsinu og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar að íbúar í nágrenni loki gluggum vegna reyksins. Útlit er fyrir að tölverð vinna sé...
InnlentCovid-19Íslensk knattspyrnukona greind með COVID-19: Fjöldi einstaklinga þarf í sóttkví25. júní 2020 Íslensk knattspyrnukona í efstu deild greindist í dag með jákvætt sýni í COVID-19 sýnatöku. Hún kom til landsins 17. júní og reyndist sýnataka á landamærum neikvæð. Síðar kom í ljós að hún hafði verið í nánd við smitaðan einstakling erlendis og fór hún því aftur í sýnatöku. Sú sýnataka reyndist jákvæð, en knattspyrnukonan er einkennalaus. Allir sem hafa verið útsettir...
InnlentFjórir fluttir á slysadeild25. júní 2020 Fjórir hafa verið fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í húsi á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu í Reykjavík í dag, en tilkynning um eldinn barst kl. 15.15. Vinna á vettvangi stendur enn yfir og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
InnlentKristjón Kormákur hættir sem ritstjóri25. júní 2020 Kristjón Kormákur Guðjónsson hefur látið af störfum sem ritstjóri vefs Fréttablaðsins. Kristjón tók við starfinu í febrúar eftir skipulagsbreytingar og ritstýrði bæði vef Fréttablaðsins og Hringbrautar, en hann hóf störf hjá Hringbraut 1. apríl í fyrra, eftir að hafa látið af störfum sem ritstjóri DV. Þetta kemur fram í tölvupósti frá Jóhönnu Helgu Viðarsdóttur, forstjóra útgáfufélagsins Torfs, til starfsmanna. Ekki...
InnlentEldur í húsi á Vesturgötu – Allsherjar útkall25. júní 2020 Allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna eldsvoða í húsi á horni Bræðraborgarstíg og Vesturgötu. Húsið er íbúðarhús á þremur hæðum, forskalað timburhús. Samkvæmt frétt DV komst húsið í fréttir vegna þess að þar var starfræktur leikskóli sem lokað var í kjölfar ásakana um slæma meðferð á börnum. Talið er að erlendir verkamenn búi í húsinu. Mikill viðbúnaður...
InnlentReykjavíkurborg5,5 milljónir í að hreinsa tyggjó25. júní 2020 Reykjavíkurborg eyðir milljónum á ári í að hreinsa tyggjóklessur af götum og gangstéttum borgarinnar. Það sem af er ári er kostnaðurinn kominn upp í 5,5 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni þar sem sagt er frá því að búið er að setja upp skilti á nokkrum stöðum í miðborginni til að minna fólk á að henda tyggjóinu sínu...
InnlentSumarskóli fyrir unga söngleikara25. júní 2020 Í næstu viku hefst Sumarskóli fyrir unga söngleikara. Kennslan fer fram í Söngskóla Sigurðar Demetz dagana 29.júní til 3.júlí, nánar tiltekið frá klukkan 9-16. Sumarskólinn er fyrir börn á aldrinum 9-14 ára annars vegar og hinsvegar 15 ára og eldri. Markmiðið er að undirbúa unga söngleikara undir frekara nám í söngleikjum. Nemendur læra undirstöðuatriði í söngtækni, dansþjálfun, leiklistarvinnu, samvinnu við...
InnlentLögreglan lýsir eftir Jóni Skúla25. júní 2020 Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Jóni Skúla Traustasyni, 40 ára. Síðast er vitað um ferðir hans á höfuðborgarsvæðinu á síðastliðið þriðjudagskvöld. Jón Skúli er ca 1,75 cm á hæð með dökkt axlarsítt hár. Líklega er Jón Skúli klæddur í dökkan fatnað. Einnig óskar lögregla eftir því að þeir sem hafa orðið varir við bifreið Jóns Skúla, sem er ljós grár...
InnlentCovid-19Þrjú smit við landamæraskimun annan daginn í röð25. júní 2020 Þrjú kórónuveirusmit greindust við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli í gær, líkt og daginn áður. 511 sýni voru tekin við landamæraskimun í gær. Þetta kemur fram á covid.is. Þá voru 37 sýni tekin hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og tíu sýni hjá Íslenskri erfðagreiningu, ekkert smit greindist í þeim sýnum. Níu eru nú í einangrun hér á landi vegna COVID-19...