MannlífiðÉg hlakka svo til – jólasýning í Ásmundarsal6. desember 2019 Á morgun kl. 15 opnar í Ásmundarsal jólasýningin Ég hlakka svo til sem er samsýning 150 listamanna en Prent & vinir sjá um sýningastjórn. Sýningin er sölusýning og með henni er verið að endurvekja gamla hefð. Á fimmta áratug síðustu aldar tíðkaðist að halda slíkar sölusýningar í Listvinasalnum en þar sýndu þjóðþekktir listamenn verk sín ásamt yngri og lítt þekktari listamönnum.
FólkJólavættir heimsins5. desember 2019 Íslensku jólasveinarnir þrettán eru öllum Íslendingum kunnir en bandaríski jólasveinninn, Santa Claus, hefur smitað þá íslensku af fatavali sínu. En hvað með önnur lönd? Er jólakötturinn til í fleiri löndum eða er jólageitin allsráðandi?
MannlífiðStærðfræðileg jólakúla Þórunnar5. desember 2019 Við höldum áfram að birta jólakúlurnar sem hönnuðir gerðu fyrir Hús og híbýli fyrir jólin 2018 en líkt og fram hefur komið var ramminn frekar opinn og var hönnuðunum frjálst að túlka verkefnið á sinn hátt. Þórunn Árnadóttir, vöruhönnður MA, hannaði stærðfræðilega jólakúlu og hér segir hún okkur betur frá hugmyndinni að baki verkinu.
MannlífiðGómsæt piparkökuhús arkitekta til sýnis á Kjarvalsstöðum4. desember 2019 Þessa stundina stendur yfir sýning á Kjarvalsstöðum á piparkökuhúsum þeirra sem tóku þátt í piparkökuhúsakeppni Arkitektafélags Íslands. Piparkökuhúsin gómsætu og glæsilegu verða til sýnis til 7. desembers en þá verður haldinn rýnifundur og verðlaunaafhending fer fram klukkan 15.00. Þetta er í annað sinn sem Arkitektafélag Íslands fer af stað með piparkökuhúsakeppni fyrir félagsmenn. Kjarvalsstaðir eru opnir frá 10:00 til 17:00.
InnlentMár Gunnarsson hlýtur Kærleikskúluna 20194. desember 2019 Afhending Kærleikskúlunnar 2019 fór fram á Kjarvalsstöðum kl. 11. Monika Abendroth hörpuleikari setti athöfnina með hörpuleik. Áslaug Guðrúnardóttir kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur sagði frá listamanni Kærleikskúlunnar 2019.
Mannlífið„Þetta eru langbestu laufabrauðin“3. desember 2019 Þó að Anna María Larsson hafi búið í Svíþjóð alla ævi er hún dugleg að hafa íslenskar hefðir í heiðri og þar koma ekki jólin nema með rammíslensku laufabrauði eftir uppskriftinni frá langömmu úr Eyjafirði. „Við reynum alltaf að hittast öll fjölskyldan til að gera laufabrauð,“ segir Anna María. Uppskriftin sem þau nota er úr Eyjafirði, frá langömmu Önnu Maríu,...
SkoðunHanna Ingibjörg ArnarsdóttirJólin sem sósan brann og gosið gleymdist3. desember 2019 Leiðari úr 11. tölublaði Gestgjafans Fyrir nokkru spurði lítil frænka mín mig að því hvað mér þætti skemmtilegast við jólin. Ég þurfti svo sem ekki að hugsa mig lengi um og sagði eðlilega, maturinn. En svo fór ég að velta því fyrir mér hvers vegna maturinn væri svona mikilvægur þar sem ég fæ mér mjög oft gott að borða og...
HeimurAmazon fjarlægir Auschwitz-þemað jólaskraut2. desember 2019 Forsvarsmenn Auschwitz-Birkenau safnsins hafa krafist þess að netsölurisinn Amazon fjarlægi auglýsingar seljenda sem hafa til sölu jólaskraut með myndum frá útrýmingarbúðunum aldræmdu. Amazon hefur brugðist við og fjarlægt umræddar vörur af vefsvæðinu en í kjölfarið kom í ljós að fleiri vörur með myndum frá búðunum er að finna til sölu hjá Amazon og fleirum. „Að selja „jólaskraut“ með myndum frá...
InnlentNú geta velunnarar Ljóssins gefið þýðingarmikla jólagjöf2. desember 2019 Ljósið sendir jákvæð skilaboð til þjóðarinnar og býður landsmönnum að gefa ástvinum þýðingarmikla jólagjöf í formi styrks í fjölskyldustarf miðstöðvarinnar eða í endurhæfingu fyrir ungt fólk.
InnlentErfitt að finna jólavinkil á Samherjamálið1. desember 2019 Baggalútsmennirnir Bragi Valdimar Skúlason og Karl Sigurðsson eru komnir í jólagírinn og undirbúa árlega jólatónleika hljómsveitarinnar. Þeir viðurkenna að það að verða feður hafi dregið úr glæfralegri orðanotkun í textum en harðneita því að vera orðnir minna beinskeyttir og krítískir. Baggalútur hefur undanfarin ár einmitt sent frá sér nýtt jólalag fyrir hver jól, verður það sama upp á teningnum í ár?
InnlentHefði átt að nota „fokk“ minna30. nóvember 2019 Bragi Valdimar Skúlason hefur samið mest af textum Baggalúts í gegnum árin og rifið kjaft um nánast alla skapaða hluti, hefur hann aldrei orðið fyrir aðkasti utan úr bæ fyrir kjafthátt?
InnlentSumar í sálina á miðjum vetri30. nóvember 2019 Á veturna hefur fólk meiri þörf fyrir afþreyingu en á sumrin. Litríkur gróður, hlýrra veður og birtan dregur flesta út meðan á síðarnefndu árstíðinni stendur en myrkrið, kuldinn og lægðirnar sem ganga yfir landið kalla á einhverja skemmtun þegar sú fyrrnefnda er allsráðandi. Í vetur gæti verið gaman að nýta sér eitthvað af eftirfarandi. *** Töfrar leikhússins Margir skella sér...