Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Jólavættir heimsins

Íslensku jóla­svein­arnir þrettán eru öllum Íslend­ingum kunnir en banda­ríski jóla­sveinn­inn, Santa Claus, hefur smitað þá íslensku af fata­vali sínu. En hvað með önnur lönd? Er jóla­kött­ur­inn til í fleiri löndum eða er jóla­geitin alls­ráð­andi?

Jólavættir heimsins

Íslenskir jóla­sveinar tengj­ast hinu íslenska sveita­lífi eins og það var á 19. öld­inni, enda koma flest nöfnin þaðan þegar Jón Árnason safn­aði þjóð­sög­unum saman. Það voru nú ekki allir sam­mála því að þeir voru þrettán og héldu sumir fram að þeir væru átta, níu eða fjórtán.

En þrettán eru þeir í dag og er það að mestu Jóhann­esi úr Kötlum að þakka, þegar hann gaf út jóla­kver sitt Jólin koma, sem mynd­skreytt var með myndum eftir Tryggva Magn­ús­son. Eru þeir jóla­sveinar ýmist hrekkjalómar eða þjófar og hafa þeir senni­lega lært eitt­hvað af for­eldrum sínum, tröllskess­unni Grýlu og Leppalúða.

Father Christmas

Father Christmas er jóla­sveinn Bret­landseyja. Hann er að mörgu líkur hinum banda­ríska jóla­sveini, en í stað þess að klæð­ast rauðu og hvítu er hann oft klæddur í grænt og ekki er mjólk­ur­glas eða smákökur skildar eftir líkt og í Banda­ríkj­unum. Í stað þess er skilið eftir jólaglögg eða sérrý, jóla­baka (minced pie), kex­kökur, súkkulaði eða jafn­vel gul­rót fyrir hrein­dýrin hans. Í nútíma­húsum sem ekki hafa skor­stein, þá notar hann galdra­lykil sem opnar allar dyr.

Father Christmas er jóla­sveinn Bret­landseyja.

Tomte/Nisse/Nils

Jól­an­iss­arnir í Danmörku og hinum Norð­ur­lönd­unum eru litlir dvergar, ekki mikið hærri en 90 cm á hæð með mikið, sítt skegg og klæð­ast lit­ríkum fötum. Dverg­arnir vernda börn og dýr frá illsku og óhöppum. Þeir eru þekktir fyrir að hjálpa við heim­il­is­verkin á bónda­bæjum en þeir eru skap­styggir. Ef þeir verða reiðir eru þeir lík­legir til þess að fara í ham og stríða fólki eða jafn­vel drepa hús­dýr. Hann gefur börnum gjafir og notar dyrnar til þess að kom­ast inn í húsin. Börn skilja eftir hafra­graut með smjöri handa honum svo hann fái eitt­hvað að borða. Hann er oft sýndur með svín sér við hlið.

Jólageitin

Talið er að þessi hefð sé frá því fyrir tíma kristn­innar á Norð­ur­lönd­unum. Menn klæð­ast geita­bún­ing og fara um bæinn og syngja, leika leik­rit og stríða fólki. Í Svíþjóð trúði fólk því að jóla­geitin væri ósýni­leg vera sem kæmi um jól og sá til þess að jóla­und­ir­bún­ing­ur­inn væri á réttu róli. Á 19. öld breytt­ist hlut­verk geit­ar­innar og fór hún að bera út gjafir til fólks. Íslend­ingar þekkja geit­ina senni­lega mest frá IKEA.

Jóla­geitin góða.

Zwarte-Piet

Svarti-Pétur er föru­nautur Sankti Niku­lásar í Hollandi, er hálf­gerður trúður og þeir fara saman um bæi og borgir og gefa krökkum nammi og gjafir. Talið er að Sankti Nikulás hafi farið um með djöful í keðju sér við hlið í eldri sögum um hann og er ein kenn­ingin að Svarti-Pétur sé þaðan kom­inn. Yfir­leitt er hvít mann­eskja klædd upp sem svört og hefur þessi hefð hlotið mikla gagn­rýni upp á síðkastið, þó flestir Hol­lend­ingar séu ekki sam­mála um ras­isma sé um að ræða heldur sak­lausa hefð.

Svarti-Pétur er föru­nautur Sankti Niku­lásar í Hollandi.

Danny

Danny er frá Suður-Afríku og er sagður hafa verið drep­inn af geð­veikri ömmu sinni eftir að hann stal smákök­unum áður en jóla­sveinn­inn kom. Hann er sagður ásækja ganga á heim­ilum og versl­un­ar­mið­stöðvar fyrir jólin til að hræða krakka frá því að borða jóla­smákök­urnar svo jóla­and­inn verði sem bestur um jólin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina