FólkHelst vonandi í jólagírnum fram í janúar13. desember 2018 Sjónvarpsstjarnan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir prófar ávallt nýjar uppskriftir fyrir hver jól í bland við hinar gömlu góðu sem hún segir ómissandi yfir hátíðina. Hún segir sörur, piparkökur og marenstoppa þó alltaf njóta mestra vinsælda á heimilinu.
Innlent„Undirbúningur og einbeiting mikilvæg svo allt smelli“12. desember 2018 Jólablað Gestgjafans er komið í verslanir og er glæsilegra en nokkru sinni fyrr. Það inniheldur 119 hátíðaruppskriftir auk góðra ráða, hugmynda að matarjólagjöfum, viðtala við sælkera og margt fleira. Blaðamenn Gestgjafans stóðu í ströngu við undirbúning blaðsins en allar uppskriftir þess eru útbúnar í tilraunaeldhúsi Gestgjafans og útkoman síðan mynduð af ljósmyndurum blaðsins. Nanna Teitsdóttir eldaði marga af þessum réttum.
InnlentRígheldur í jólakortahefðina12. desember 2018 Margrét Eir Hönnudóttir, söngkona, leikkona og kennari, segir mikilvægt að slaka aðeins á og njóta aðventunnar og jólanna. Hún heldur í ýmsar gamlar hefðir á þessum tíma og síðustu þrjú ár hefur tónleikahald bæst við. Tónleikar hennar verða í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þann 14. desember klukkan 20.
InnlentKettirnir í Kattholti ekki jólagjafir12. desember 2018 Starfsfólk Kattholts bendir á að ekki sé skynsamlegt að gefa gæludýr í jólagjöf. Forstöðukona Kattholts segir að ekki verði hægt að fá kött í Kattholti fyrir jólin ef ætlunin er að gefa köttinn í jólagjöf.
SkoðunTeitur AtlasonNetið hans Inters kemur til bjargar10. desember 2018 Höfundur / Teitur Atlason, fulltrúi hjá Neytendastofu Orðið jól er svolítið merkilegt í samhengi íslenskunar. Það er ekki vitað með vissu hvaðan það kom og hvernig það kom og áhöld eru um það hvert það sé að fara. Það sem er vitað er að orðið er eldgamalt og finnst í tungumálum sem eru af sama meiði og íslenskan. Orðið er...
MannlífiðLitríkur bóhemstíll hjá eiganda Akkúrat10. desember 2018 Sigrún Guðný Markúsdóttir er eigandi hönnunarverslunarinnar Akkúrat en hún hefur verið viðloðandi verslunarbransann í mörg herrans ár. Við heyrðum í Sigrúnu og fengum að kíkja til hennar í morgunkaffi á Kvisthagann þar sem hún býr í skemmtilegri risíbúð ásamt dætrum sínum tveimur; Aniku og Salvöru.
MannlífiðJólalegt sætabrauð9. desember 2018 Mikil hefð er fyrir epla-strudel í Austurríki og Þýskalandi og bjóða flest kaffihús upp á þetta dásamlega sætabrauð. Þunnt stökkt deig með kryddaðri eplafyllingu, borið fram með vanillusósu eða ís, getur ekki klikkað. Margir halda að erfitt sé að búa til strudel en það er mikill miskilningur og tekur ekki langan tíma. Þeir sem elska epli, kanil og vanillusósu ættu því ekki að láta þessa fram hjá sér fara.
InnlentHvetur fólk til að hugsa í umhverfisvænum lausnum5. desember 2018 Í kvöld mun myndlistarkonan Edda Ýr Garðarsdóttir leiða opna smiðju á Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Hún mun skoða leiðir til að nýta gamlar bækur, tímarit og jólakort til að pakka inn gjöfum og gera kort og skraut. Einnig verður farið í það hvernig hægt er að nota nánast allt sem til fellur af heimilinu og nýta í eitthvað fallegt fyrir jólin.
InnlentSkemmtilegar staðreyndir um jólatré29. nóvember 2018 Sumir geta ekki hugsað sér að vera með annað en lifandi jólatré á meðan aðrir eru alsælir með gervitré. Svo er til fólk sem sættir sig alveg við lítið jólatré úr vírherðatrjám með jólaseríu, keramikjólatré, eða jafnvel ekkert tré. Hér eru nokkrar staðreyndir um jólatré.
InnlentSnjórinn, jólaljósin og samveran best28. nóvember 2018 Laura Elena Cervera Magallanes, kennari hjá Hjallastefnunni og túlkur, flutti til Íslands frá Mexíkó ásamt eiginmanni og tveimur sonum sumarið 2011. Hún segir fyrstu jólin á Íslandi hafa verið ógleymanleg og þar hafi snjórinn átt stærstan þátt.
InnlentVandaðar bækur fyrir vandláta lesendur28. nóvember 2018 Áhugaverðar bækur af ýmsu tagi er að finna í jólabókaflóðinu í ár. Þetta eru nokkrar þeirra.
InnlentSami reykkofi og pabbi og afi notuðu27. nóvember 2018 Aðalsteinn Sigurðarson og Eyrún Harpa Eyfells Eyjólfsdóttir búa á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal á Fljótsdalshéraði með tíu mánaða gömlum syni sínum. Þau eru með stórt fjárbú, 420 kindur, og allt þeirra hangikjöt um jólin er af heimaslátruðu, taðreykt í gömlum reykkofa. Þau borða þó ekki hangikjöt á aðfangadagskvöld heldur svínakjöt sem þau keyra 90 kílómetra niður á Egilsstaði til að kaupa.