FólkMeð veiðibakteríuna í blóðinu1. ágúst 2020 María Anna Clausen hefur haft ástríðu fyrir veiði nánast síðan hún man eftir sér og þegar hún kynntist ástinni í lífi sínu, Ólafi Vigfússyni, smitaði hún hann svo rækilega af veiðibakteríunni að síðan má segja að allt þeirra líf hafi snúist um veiði. Auk þess að reka Veiðihornið í Síðumúla, þar sem þau selja allt sem til veiðinnar þarf, nota...
InnlentSteinunn heldur útgáfuhóf30. júlí 2020 Á fimmtudag verður Hjartastaður, skáldsaga Steinunnar Sigurðardóttur endurútgefin. Af því tilefni verður haldið útgáfuhóf í Bókakaffi á Selfossi klukkan 19.30 sama dag. Hjartastaður er ein þekktasta skáldsaga Steinunnar og hefur verið ófáanleg lengi. Guðni Elísson ritar eftirmála. Steinunn hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1995 fyrir bókina og jafnframt var bókin tilnefnd til Evrópsku Aristeion Bókmenntaverðlaunanna og til Bókmentaverðlauna Norðurlandaráðs. Fyrir utan...
InnlentLoftslagstónleikarnir +2,0°C fyrir norðan30. júlí 2020 Um verslunarmannahelgina flytur organistinn Kristján Hrannar Pálsson loftslagsverkið +2,0°C á Hólum í Hjaltadal, Dalvíkurkirkju og Akureyrarkirkju. Samhliða því verður ljósmyndarinn Nína Richter með ljósmyndasýninguna The organs of the Organ í safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Pípuorgelið býr til sitt eigið vistkerfi inni í kirkjunni. Það tekur inn og blæs út lofti, sem áheyrendur anda svo inn og út og aftur til baka. Verkið... Myndband
InnlentHeimildarmynd um Gretu Thunberg frumsýnd í Feneyjum29. júlí 2020 Heimildarmyndin Greta, sem fjallar um leið Gretu Thunberg frá því að vera óþekkt skólastelpa í Stokkhólmi til þess að verða heimsfrægur aktífisti, verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem haldin verður 2. til 12. september. Leikstjórinn Nathan Grossman byrjaði að fylgja Gretu eftir þegar hún hóf að berjast fyrir umbótum í loftslagsmálum með verkföllum fyrir loftslagið aðeins fimmtán ára gömul....
InnlentHildur Eir minnist Gísla Rúnars: „Öllu hans gamni fylgdi einhver lífsspeki“29. júlí 2020 Séra Hildur Eir Bolladóttir minnist Gísla Rúnars Jónssonar leikara. „Elsku Björgvin Franz, Eva Dögg og Edda, hjartans samúðarkveðjur, ég græt með ykkur hér í norðrinu,“ skrifar séra Hildur Eir Bolladóttir, í færslu á Facebook, þar sem hún minnist Gísla Rúnars Jónssonar, leikstjóra og leikara með meiru. Gísli Rúnar lést á heimili sínu í gær, 67 ára að aldri og minnist...
InnlentSigurjón Sighvatsson nýr formaður kvikmyndaráðs29. júlí 2020 Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, hefur verið skipaður formaður nýs átta manna kvikmyndaráðs sem Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra skipaði nýlega. Varaformaður ráðsins er Margrét Örnólfsdóttir. Auk Sigurjóns og Margrétar sitja Anna Þóra Steinþórsdóttir, Ragnar Bragason, Lilja Ósk Snorradóttir, Lilja Ósk Diðriksdóttir, Birna Hafstein og Bergsteinn Björgúlfsson í ráðinu. Ráðherra skipar kvikmyndaráð til þriggja ára í senn. Formaðurinn er skipaður án tilnefningar...
InnlentLjósmyndir Nínu Richter innan úr stærsta hljóðfæri landsins29. júlí 2020 Nína Richter heldur ljósmyndasýninguna Organs of the Organ í safnaðarheimili Akureyrarkirkju við Eyrarlandsveg sunnudaginn 2. ágúst klukkan 18.00. Sýningin verður aðeins opin eitt kvöld. Boðið verður upp á léttar veitingar, allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis, segir í tilkynningu. Innan í stærsta hljóðfæri landsins, Klais-orgeli Hallgrímskirkju, er töfraheimur með á sjötta þúsund pípum og tæknibúnaði úr málm og timbri,...
HeimurTimothée Chalamet leikur Bob Dylan28. júlí 2020 Hjartaknúsarinn Timothée Chalamet æfir nú stíft fyrir hlutverk sitt sem Bob Dylan í myndinni Going Electric sem James Mangold leikstýrir. Myndin fjallar um þann tíma í lífi Dylans þegar hann skipti úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist yfir í rafmagnað rokk, breyting sem olli miklum usla á sínum tíma. Bob Dylan sjálfur virðist hæstánægður með verkefnið og er sagður einn framleiðenda myndarinnar. Timothée...
InnlentNína Dögg leikur móður Júlíu27. júlí 2020 Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir er gengin til liðs við Þjóðleikhúsið og mun leika tvö stór hlutverk á leikárinu, í Jólaboðinu og Rómeó & Júlíu. Nína Dögg lék Júlíu í rómaðri uppsetningu Vesturports sem sýnd var víða um heim árum saman en að þessu sinni eftirlætur hún Ebbu Katrínu Finnsdóttur hlutverk Júlíu en tekur sjálf við hlutverki móður hennar, Lafði Kapúlet....
InnlentCovid-19Tom Hanks og Rita Wilson orðin Grikkir27. júlí 2020 Hinn geysivinsæli leikari Tom Hanks og eiginkona hans, leikkonan Rita Wilson, eru nú orðin grískir ríkisborgarar. Forsætisráðherra Grikklands, Kyriakos Mitsotakis, afhenti þeim grísku vegabréfin um helgina og birti af því tilefni mynd af sér og eiginkonu sinni með Tom og Ritu veifandi nýju vegabréfunum á Instagram-síðu sinni. Rita Wilson á ættir að rekja til Grikklands og Tom Hanks var gerður...
InnlentAct alone haldið í sautjánda sinn26. júlí 2020 Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, verður haldin dagana 6. til 8. ágúst á Suðureyri við Súgandafjörð. Þetta er sautjánda árið í röð sem hátíðin er haldin. Elfar Logi Hannesson er aðalhvatamaðurinn að hátíðinni og hann hvetur fólk til að muna fjarlægðarmörk vegna kórónuveirufaraldursins. „Stöndum saman á Actinu, samt ekki of þétt og berum virðingu fyrir hvert öðru,“ er haft eftir...
MannlífiðHandan mannlegs tíma – Ólafur Elíasson sýnir vatnslitaverk í i8 –24. júlí 2020 Ólafur hefur viðhaldið stöðugum áhuga sínum á vatnslitamiðlinum og notað hann allt frá 2009 til þess að rannsaka liti, hreyfingu og tíma. Verkin vekja tilfinningar um rými og birtu en Ólafur bar síendurtekið örþunnt vatnslitalag á pappírsörk í mjög nákvæmu sköpunarferli.