Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ljósmyndir Nínu Richter innan úr stærsta hljóðfæri landsins

Ljósmyndir Nínu Richter innan úr stærsta hljóðfæri landsins
Nína Richter

Nína Richter heldur ljós­mynda­sýn­ing­una ​Organs of the Organ​ í safn­að­ar­heim­ili Akur­eyr­ar­kirkju við Eyr­ar­lands­veg sunnu­dag­inn 2. ágúst klukkan 18.00. Sýningin verður aðeins opin eitt kvöld. Boðið verður upp á léttar veit­ingar, allir eru vel­komnir og aðgangur er ókeypis, segir í til­kynn­ingu.

Innan í stærsta hljóð­færi lands­ins, Klais-org­eli Hall­gríms­kirkju, er töfra­heimur með á sjötta þús­und pípum og tækni­bún­aði úr málm og timbri, umfangs­miklum tölvu­bún­aði, ótal skápum og innri bygg­ingu á fjórum hæðum, sem lítur út eins og vél­bún­aður af öðrum heimi. Þessi hluti hljóð­fær­is­ins er og verður áfram lok­aður almenn­ingi, en þrátt fyrir það er yfir­bygg­ingin, kirkjan sjálf ein fjöl­sóttasta bygg­ing lands­ins og vafa­laust ein sú mest ljós­mynd­aða, fyrir utan að vera helsta kenni­leiti höf­uð­borg­ar­innar.

Orgel Hall­gríms­kirkju

Nína Richter reynir að nálg­ast org­elið frá nýrri hlið.​ Kirkju­org­elið hefur sér­stöðu meðal hljóð­fær­anna en fáum hljóð­færum er ætlað jafn stórt hlut­verk, að færa hlust­endur nær því sem er af öðrum heimi. Í landi þar sem ríki og kirkja eru sam­einuð í laga­bók­staf öðl­ast þetta hund­ruð millj­óna króna og stærsta hljóð­færi stærstu kirkju lands­ins sér­stakan sess sem rödd hefð­ar­innar. Rödd sem hinn almenni hlust­andi veltir sjaldn­ast fyrir sér – þetta er orgel og hlut­verk þess er ekki fyrst og fremst að gleðja eða skemmta hlust­endum, líkt og önnur hljóð­færi, heldur er merk­ing tón­anna póli­tísk, trú­ar­leg og hluti af yfir­vald­inu. Til þess að hafa aðgang að hljóð­fær­inu er ekki endi­lega nóg að vera tón­list­ar­maður eða áhuga­samur, heldur til­heyrir hljóð­færið umdeildri stofnun sem á snertifleti við líf nán­ast hvers ein­asta Íslend­ings. Orgelið hefur 4 spila­borð og fót­spil, 72 raddir og 5275 pípur. Orgelið er 15 metra hátt, vegur um 25 tonn og stærstu píp­urnar eru um 10 metra háar.

Um ferlið: Organs of the Organ er afrakstur vinnu­stofu í Ljós­mynda­skóla Sissu og verkið er unnið undir hand­leiðslu ljós­mynd­ar­ans Spessa. Ljós­mynd­irnar eru teknar á tíma­bil­inu októ­ber 2019 – júní 2020.

Um lista­mann­inn: Nína Richter er fædd í Reykja­vík árið 1986 og hefur komið víða við á fjöl­breyttum ferli. Hún er menntuð í kvik­mynda­gerð og ljós­myndun og lærir í dag sagn­fræði við Háskóla Íslands.​ Hún hefur unnið sem laga- og texta­höf­undur fyrir lista­menn úr ýmsum áttum og gaf að auki út skáld­sög­una Pól­skipti árið 2006. Nína starf­aði í vef­um­sjón, sam­fé­lags­miðlum og menn­ing­ar­um­fjöllun á RÚV 2016-2019 og sér­hæfði sig þar í umfjöllun um kvik­myndir og sjón­varp. Þá hefur hún komið að aug­lýs­inga­leik og unnið í kynn­ing­ar­málum fyrir tón­list­ar­fólk, mest í elektróník og poppi. Hún hefur einnig starfað sem söng­kona frá ung­lings­árum, hér­lendis og í Aust­ur­ríki, með áherslu á popp- og jazztónlist í lif­andi flutn­ingi.

Við­burður á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti