SlúðurUppnámið í Gettu betur22. febrúar 2021 Algjör þögn ríkir um ástæður þess að keppandi Fjölbrautarskólans í Ármúla reiddist mjög og missti stjórn á sér og velti um borði þegar fyrir lá að Tækniskólinn náði að svara spurningu sem nægði þeim til sigurs. Úr varð eitt dramatískasta augnablik íslenskrar sjónvarpssögu. Einhverjir vilja halda því fram að bjallan á borði drengsins hafi ekki virkað. Ríkisútvarpið eða Kristjana Arnarsdóttir,...
SlúðurKjörísskona horfir til Páls22. febrúar 2021 Mikill áhugi er á meðal Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi að bylta Páli Magnússyni, leiðtoga flokksins, úr efsta sætinu. Páll á ekki upp á pallborðið hjá innvígðum og innmúruðum flokksmönnum eftir að hafa svikið lit í Vestmannaeyjum þegar hann studdi klofningsframboð Írisar Róbertsdóttur og hrakti þar með Elliða Vignisson bæjarstjóra til Þorlákshafnar. Það þykir því einhverjum vera dauðafæri á efsta sætið. Mogginn...
SlúðurVilhjálmur hjólar í Pál20. febrúar 2021 Vilhjálmur Árnason, alþingismaður Sjáfstæðisflokksins, hefur ákveðið að steypa Páli Magnússyni af stóli sem leiðtoga í kjördæminu. Páll nýtur ekki mikils stuðnings í kjördæminu. Hann hefur átt náðuga daga á Alþingi og lítið eftirminnilegt skilið eftir sig. Líkur eru á því að Vilhjálmur og Ásmundur Friðriksson alþingismaður hafi myndað með sér bandalag. Páll er afar óvinsæll í Vestmannaeyjum eftir að hafa...
SlúðurEldri borgari kallar Helga lygara20. febrúar 2021 Gríðarlegur hiti er hlaupinn í Samherjamálið eftir að Kveikur kortlagði höfuðstöðvar fyrirtækisins á Kýpur og leiddi fram rök fyrir því að þar sé ekki raunverulegur rekstur. Samherji neitaði að svara spurningum varðandi þetta atriði og meintar mútur. En nú eru allir kallaðir á dekk í vörninni. Eftirlaunamaður nokkur, Hjörleifur Hallgrímsson á Akureyri, skrifar grein í moggann og kallar Helga Seljan...
SlúðurEgill sagður vilja hengja Trump!19. febrúar 2021 Morgunblaðið birti í morgun ásakanir Gústafs Adolfs Skúlasonar á hendur sjónvarpsmanninum geðþekka, Agli Helgasyni. Gústaf Adolf er lítt þekktur öðrum en hlustendum Útvarps Sögu. Hann heldur því að Egill vilji hengja Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta. Sú ályktun er dregin á frekar hæpnum forsendum. Egill birti á Facebook mynd frá uppþotinu í janúar þar sem Trumpistar héldu á gálga með snöru....
SlúðurGuðlaugur dauðhræddur við Áslaugu19. febrúar 2021 Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður, er sagður óttast mjög sigurgöngu Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Talið er víst að Áslaug muni verða efst í sameiginlegu prófkjöri í Reykjavík en Guðlaugur Þór lendi í öðru sæti en verði samt leiðtogi í öðru kjördæminu. Sigríður Andersen, fyrrverandi ráðherra dómsmála, er núverandi leiðtrogi í Reykjavík suður og fráleitt...
SlúðurJón í stórvandræðum18. febrúar 2021 Jón þórisson, ritstjóri Fréttablaðsins, er í stórvandræðum vegna furðufréttar og dylgjum um að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefði átt aðild að veiðiþjófnaði. Ragnar hefur þvertekið fyrir aðild sína og lögreglan staðfestir að hann sé ekki grunaður. Samt biðst ritstjórinn ekki afsökunar á framsetningunni og áburðinum heldur þverskallast við. Í dag er enn áréttað á blaðið hafi trausta heimildarmenn að...
SlúðurRáðherra vill forstjóra burt17. febrúar 2021 Fullyrt er að Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra ætli að flæma, Sigurð Guðjónsson, núverandi forstjóra Hafrannsóknastofnunar, úr starfi og setja í hans stað Þorstein Sigurðsson, fyrrverandi starfsmann Hafró í starfið. Ráðherra auglýsti starf forstjórans laust í september og sótti Sigurður um endurráðningu. Hermt er að hann hafi fallið í ónáð hjá ráðherranum þar sem hann hafi ekki fallist á það að...
SlúðurÓli lagði Bjarkey17. febrúar 2021 Óli Halldórsson, varaþingmaður VG, vann stórsigur í rafrænu kjöri VG í Norðusturkjördæmi, þegar hann lagði sitjandi þingmann, Bjarkey Olsen, alþingismann og þingflokksformann VG. Bæðu kepptu þau um sæti þess mosagróna stjórnmálaskörungs, Steingríms J. Sigfússonar, sem nú tekur á sig pólitískar náðir eftir langan feril í þjónustu almennings. Bjarkey er að vonum súr með örlög sín og segir við Moggann að...
SlúðurNiðurlæging Sigríðar16. febrúar 2021 Sigríður Andersen, leiðtogi Sjálfstæðismanna í Reykjavík suður og fyrrverandi dómsmálaráðherra, er í miklum vanda eftir að Hæstiréttur dæmdi tveimur einstaklingum háar bætur vegna þess að hún sniðgekk þá við skipan dómara við Landsdóm. Sá gjörningur ráðherrans að breyta og fara gegn tillögu dómnefndar og raða inn fjórum sínum dómurum hafði áður verið dæmd brotleg fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu en Sigríður gerði...
SlúðurSvona var Ágústi Ólafi hent út15. febrúar 2021 Hermt er að uppstillinganefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík hafi aldrei greitt atkvæði um stöðu Ágústs Ólafs Ágústssonar á framboðslistum flokksins og það sáttaboð hans að taka annað sætið á lista. Formaður uppstillinganefndar, Hörður Oddfríðarson, mun ekki hafa fengist til að bera málið undir atkvæði nefndarinnar. Þess í stað fór formaðurinn með málið fyrir stjórn fulltrúaráðs flokksins, sem skipað er sjö manns...
SlúðurÁkall til Guðmundar Árna15. febrúar 2021 Ólgan innan Samfylkingar á sér ýmsar birtingamyndir. Sá hluti flokksins sem áður aðhylltist Alþýðuflokkinn finnur sig í munaðarleysi við meinta yfirtöku femínista sem raða sér í framlínuna. Þá fer fyrir brjóst Kratanna að Ágústi Ólafi Ágústssyni var hent útbyrðis. Gamli Alþýðuflokkurinn hefur aldrei verið lagður niður formlega. Sá sem gegnir formennsku þar er Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra. Tveir aðrir fyrrverandi...