SlúðurSigga græðir á jarðskjálftum3. mars 2021 Einn snjallasti rithöfundur þjóðarinnar er Sigríður Hagalín Björnsdóttir sem nú græðir á tá og fingri vegna umbrotanna á Reykjanesskaga. Bók hennar kom út um seinastu jól en þar segir frá því að jarðskjálftar skekja Reykjanes. Bókin, Eldarnir – Ástin og aðrar hamfarir,kom út fyrirsíðustu jól og er nú farin í endurprentun og útgefandinn, Guðrún Vilmundardóttir, hlær alla leið í bankann....
SlúðurUmhverfisráðherra gegn Ólafi2. mars 2021 Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra hefur ákveðið að skora Ólaf Þór Gunnarsson alþingismann á hólm og sækjast einnig eftir 1. sæti á lista VG í Kraganum. Guðmundur Ingi er í sterkri stöðu sem vinsæll ráðherra umhverfismála. Hann var skipaður ráðherra sem ópólitískur en á rætur í Landvernd og þykir hafa verið staðfastur í umhverfismálum en af sumum talinn óþarflega róttækur. Hann...
SlúðurSamherji rifar seglin2. mars 2021 Samherji með Þorstein Má Baldvinsson við stjórnvölinn glímir við mikinn ímyndarvanda vegna mútumálsins í Namibíu og brask með veiðiheimildir þar. Stjórnendur félagsins hafa reynt endalaust að berja á fréttamönnum Ríkisútvarpsins og véfengja trúverðugleika þeirra með aðstoð manna á borð við Jón Óttar Ólafsson rannsakanda og Þorbjörn Þórðarson, lögfræðings og fyrrverandi fréttamanns. Svo rammt kveður að varnarbaráttunni að félagið hefur lagt...
SlúðurInga Dóra þakklát Trump2. mars 2021 Einn efnilegasti stjórnmálamaður Grænlands er Inga Dóra Guðmundsdóttir, sem stefnir á það að verað borgarstjóri í Nuuk. Hún leiðir lista Siumut í bænum fyrir komandi kosningar. Inga Dóra er með sterkt bakland í Grænlandi. Hún er útivistarkona og leiðir meðal annars Ferðafélag Grænlands sem stofnað var í samvinnu við Ferðafélag Íslands. Margir spá því að hún eigi eftir að verða...
SlúðurJóhann á hælum löggunnar1. mars 2021 Halla Bergþóra Björnsdóttir , l ögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, var á flótta undan fréttamanninum Jóhanni Bjarna Kolbeinssyni í útvarpshúsinu um helgina. lögreglustjórinn mætti í Silfrið til að ræða flest annað en símtalið fræga á aðfangadag þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir vildi skýringar á dagbókarfærslu lögreglunnar um Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra sem var þáttakandi í sóttvarnabroti í Ásmundarsal. Mun Halla Bergþóra hafa sagt að...
SlúðurFrægðarfólk Covid ársgamalt28. febrúar 2021 Rétt rúmt ár er síðan sá ófögnuður Kórónaveiran nam land á Íslandi og allt fór í baklás. Fyrsta greinda tilvikið er rakið til rúmlega fertugs karlmanns sem kom úr skíðaferð til Ítalíu. Þá varð um leið til svokallað þríeyki. Þau Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafa síðan verið gestir á sjónvarpsskjám landsmanna. Annar sem hlaut...
SlúðurPíratar fela nauðgarafrétt27. febrúar 2021 Píratar eru í miklum vandræðum eftir að upplýst var að virkur félagsmaður og áheyrnarfulltrúi flokksins var dæmdur fyrir grófa nauðgun. Mannlíf birti frétt um málið og allt fór á annan endann á Pírataspjallinu. Fram að þessu hafa Píratar verið þekktir fyrir að vilja opna umræðu um allt sem við kemur spillingu og glæpum. En nú kveður við annan tón. Frambjóðandi...
SlúðurTryggvi lét ekki Davíð hóta sér26. febrúar 2021 Umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, er á förum eftir farsælt starf í áraugi. Tryggvi nýtur virðingar allra þeirra sem sækjast eftir réttlátu samfélagi. Hann hefur hiklaust úrskurðað um viðkvæm mál sem vitað var að kostuðu hann óvild ráðamanna. Þegar Ólafur Börkur Þorvaldsson, náfrændi Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, var skipaður dómari við Hæstarétt án þess að vera metinn með þeim hæfustu kom...
SlúðurÓgnandi símtöl dómsmálaráðherra25. febrúar 2021 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra er í slæmum málum eftir að hún hringdi í lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag til að leita skýringa á vinnulagi lögreglunnar við að upplýsa um glæpi eða lögbrot. Þá hafði lögreglan upplýst að í hópi þeirra sem grunuð voru um brot á sóttvarnareglum í Ásmundarssal hafi verið háttvirtur ráðherra sem reyndist vera Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins....
SlúðurVillikötturinn sem varð ráðherra24. febrúar 2021 Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, þykir hafa staðið sig einstaklega vel á kjörtímabilinu. Hann hefur unnið mikið starf í þágu barna og til að tryggja réttindi þeirra. Ásmundur Einar var á sínum tíma einn af villiköttunum í Vinstri Grænum en söðlaði yfir í Framsóknarflokkinn. Um tíma var hann, samhliða þingmennsku, einn af þónokkrum aðstoðarmönnum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi formanns...
SlúðurForstjórinn í felum fyrir fjölmiðlum23. febrúar 2021 Á morgun siglir frystitogarinn Júlíus Geirmundsson ÍS til hafs með Svein Arnarson, brottdæmdan skipstjóra, sem stýrimann. Mikill urgur er í áhöfninni, sem haldið var sumum hverjum veikum við vinnu, og hafa nokkrir sagt upp störfum. Athyglisvert er að enginn vilji er hjá útgerðinni til að vera í samráði við mannskapinn. Einar Valur Kristjánsson framkvæmdastjóri er af sumum talinn hafa att...
SlúðurEins og lögregluforingi á upplýsingafundi23. febrúar 2021 Það fór mjög fyrir brjóst Samherjamanna þegar blaðamaður Stundarinnar, Alma Mjöll Ólafsdóttir, mætti í höfuðvígi félagsins á Akureyri til að spyrja heimafólk spurninga um skoðun þess á meintum mútum félagsins í Namibíu. Rætt var við fjölda manns á áhrifasvæði Samherja sem leggur árlega hundruðir milljóna króna til góðra mála í héraðinu. Meðal þeirra sem svöruðu voru María Björk Ingvadóttir sjónvarpsstjóri...