SlúðurÓlafur Ragnar sakaður um trúnaðarbrot5. febrúar 2021 Píslarsaga Jóns Ásgeirs Jóhannessonar athafnamanns, Málsvörn, hefur valdið nokkrum usla. Meðal þeirra sem hafa fjallað um bókina er Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor sem fer nokkuð mildum höndum um efni hennar. Hannes bendir á að fram kemur í bókinni að trúnaðarbrot hafi verið gagnvart Davíð Oddssyni þar sem vitnað er í fund hans og Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi forseta sem kveður...
SlúðurMilljarðamærin sem braut sóttvarnalög4. febrúar 2021 Víst er að margir munu sperra upp augu og eyru þegar Kveikur birtir viðtal við bandarísku kaupsýslukonuna Michelle Ballarin, sem einnig gengur undir nafninu Michelle Roosevelt Edwards. Hún hefur dúkkað reglulega upp á Íslandi og boðað flugrekstur eða þátttöku í honum. Fyrst var það WOW en síðan vildi hún stóran hlut í Icelandair en var hrakin frá þeim áformum. Sjö...
SlúðurDavíð 100 sinnum í bók Jóns Ásgeirs3. febrúar 2021 Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi allskonar, er efst í huga Jóns Ásgeisr Jóhannessonar athafnamanns ef marka má nýja bók þeirra Einars Kárasonar, rithöfundar og varaþingmanns Samfylkingarinnar. Nafn Davíðs kemur 100 sinnum fyrir í bókinni og langoftast sem ódámur. Til samanburðar kemur nafn Jóhannesar Jónssonar í Bónus, föður Jóns Ásgeirs 69 sinnum fyrir. Svo virðist sem bókinni sé ætlað að...
SlúðurKratar vilja Alþýðuflokk2. febrúar 2021 Sá hluti Samfylkingar sem tilheyrir Krötum er með órólegasta móti eftir að Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður var sleginn af í leynilegri skoðanakönnun. Könnunin í Reykjavík leiðir i ljós að kvennabylting hefur átt sér stað þar sem fjórir af fimm efstu kandídötum eru konur. Helsti jarðskjálftamælirinn innan Samfylkingar er Birgir Dýrfjörð, gamall og seigur flokkshestur, sem fylgdi Alþýðuflokknum inn í samrunann....
SlúðurUppreisn Friðjóns og kjökur Brynjars2. febrúar 2021 Sjálfstæðisflokkurinn nötrar stafna í milli eftir harða gagnrýni Friðjóns Friðjónssonar, miðstjórnarmanns og trölltryggs Sjálfstæðismanns. Friðjón lýsti því yfir að flokkur hans væri staðnaður undir formennsku Bjarna Benediktssonar. Þetta eru þung orð frá manni sem kemur innan úr kjarna flokksins. Víða má heyra kjökurhljóð flokksbræðranna vegna svikanna. Þeirra á meðal er Brynjar Níelsson alþingismaður, sem þó verður seint kallaður grátgjarn. Flokksbræðurnir...
SlúðurBolli iðrast en Vigdís ei1. febrúar 2021 Bolli Kristinsson kaupmaður sem framleiddi myndband með falsfréttum um borgarstjóra er nú iðrandi log hefur beðist afsökunar í framhaldi þess. „Flest er rétt með haft en ein alvarleg rangfærsla hefur komið fram, að Dagur B. Eggertsson hafi keypt þrjú bílastæði af borginni án útboðs, þetta er rangt og þar sem mitt nafn er í kredit-lista í lok myndbandsins bið ég...
SlúðurEinar Kárason bíður eftir sleggjunni1. febrúar 2021 Einar Kárason, einn virtasti rithöfundur þjóðarinnar, á ekki sjö dagana sæla eftir að bók hans um Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamann, Málsvörn, kom út. Jón Ásgeir stóð sjálfur undir hluta af kostnaði við bókina og þar með launum höfundarins. Helstu viðskiptablaðamenn landsins hafa hakkað í sig hluta bókarinnar og rakið þær rangfærslur og þann hvítþvott sem væri er að finna. Bæði...
SlúðurFalsfrétt Vigdísar Hauksdóttur30. janúar 2021 Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hefur undanfarin misseri haldið uppi látlausum áróðri gegn Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Þannig hefur hún haldið því fram að Dagur hafi fengið þrjú bílastæði á kostakjörum frá Reykjavíkurborg sem hefur verið rekið ofan í hana sem falsfrétt. Þá fullyrðir Vigdís að framkvæmdir við Óðinstorg hafi kostað margfalt meira en áætlað hefur verið. Segja má að Vigdís...
SlúðurRáðherrann, laxinn og Samherji29. janúar 2021 Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra svarar Stundinni ekki varðandi laxveiðar á vegum Samherja. Blaðið fullyrðir að ráðherrann hafi verið í boðsferðum í Rangá í sumar og ljósmyndir staðfesti það. Kristján Þór hefur legið undir því að vera handgenginn Samherja sem rekinn er af frændum hans. Sjálfur var hann á árum áður stjórnarformaður samstæðunnar. Samherji stendur í ströngu vegna ásakana um mútur...
SlúðurGuðmundur Andri og valkyrjurnar28. janúar 2021 Talsverður titringur er á meðal Sjálfstæðismanna í Kraganum með að Rósa Brynjólfsdóttir, fyrrverandi þingmaður VG, leggur til atlögu um fyrsta sæti á lista Samfylkingar í stað þess að fara fram í Reykjavík þar sem hún býr. Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Rannveigar – félags ungra jafnaðarmanna í Kópavogi, gefur einnig kost á sér í fyrsta sætið og nýtur mikillar velþóknunar innan...
SlúðurSkiltakarlarnir í Græna herbergið27. janúar 2021 Skiltakarlarnir frægu, Leifur A. Benediktsson og Ólafur Sigurðsson eru orðnir einskonar sammviska þjóðarinnar. Þeir heimsóttu Gísla Martein Baldursson sjónvarpsmann í höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins á dögunum til að hvetja hann til að dekra ekki við auðvaldið og bjóða alþýðufólki í þátt sinn inn. Gísli Marteinn tók þeim vel og bauð þeim í Græna herbergið fræga til að ræða erindið. Tilefnið mun vera...
SlúðurÓþægilegt fyrir Róbert27. janúar 2021 Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, er í snúinni stöðu eftir að Fréttablaðið upplýsti að hann vildi taka slaginn um sæti á framboðslista Vinstri-grænna í Reykjavík. Framboð hans yrði með velþóknun Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Róbert er upplýsingafulltrúi allra þriggja flokkanna sem sitja í ríkisstjórn en ekki aðeins VG. Ekki eru allir Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn sáttir með að upplýsingafulltrúinn stigi pólitískan dans á...