InnlentStarfsmaður skólabúða rekinn fyrir að kenna börnum sjálfsvíg og ofbeldi: „Við erum miður okkar“2. apríl 2023 „Við erum miður okkar yfir því að þetta mál, og þetta atvik, kom upp,“ sagði Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands, í samtali við Ríkisútvarpið um ofbeldismálið sem upp kom í skólabúðum á Reykjum í Hrútafirði. Tólf ára skólabörn úr Kópavogi voru í skólabúðunum fyrir rúmri viku. Starfsmaður Ungmennafélagsins í búðunum leiðbeindi þeim í smáatriðum um það hvernig væri hægt...
InnlentGlúmur biður Helgu afsökunar: „Hún er fjórði leiðinlegasti þingmaður Íslands og sá hrokafyllsti“1. apríl 2023 Glúmur Baldvinsson ritaði nýverið að Helga Vala Helgadóttir væri leiðinlegasti pólitíkus landsins. Hann segir það hafa verið mistök og vill hann biðja Helgu Völu afsökunar. Segir: „Það er með trega í hjarta og tár í hvarmi sem ég rita eftirfarandi afsökunarbeiðni til Helgu Völu. Ég hef aðeins íhugað þennan pistil minn og að vandlega hugsuðu máli vil ég biðjast afsökunar....
InnlentBjörgvin Páll segist hafa reynt að biðjast afsökunar: „Minn tilgangur er að vera góð fyrirmynd“1. apríl 2023 „Þar sem að mál okkar Kristjáns hefur verið sent inn til EHF (af PAUC) þá vil ég loka þessu öllu saman frá mínum bæjardyrum. Í fyrsta lagi þá finnst mér gjörsamlega galið að þetta mál hafi farið svona langt og hefði ég kosið að leysa þetta með símtali eða hitting, en það var ekki ósk Kristjáns,“ skrifar Björgvin Páll Gústavsson,...
InnlentJakob Bjarnar minnist Fréttablaðsins: „Þá var ekki lengur hægt að þegja og svæfa mál“1. apríl 2023 Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson tjáir sig um brotthvarf Fréttablaðsins. „Ef maður vissi ekki hversu getulaus söfnuður pólitíkusar eru væri augljós ályktun að draga að þeir hatist við fjölmiðla. Þó þeir þori ekki að láta neitt slíkt tal út fyrir sínar varir; þeir vilji þá beinlínis feiga.“ Bætir því við að það að „Fréttablaðið sé nú komið í þrot eru vatnaskil...
InnlentRitstjóri Heimildarinnar segir ráðamenn líta á fjölmiðla sem óvini: „Skipta fjölmiðlar máli?“1. apríl 2023 Þórður Snær Júlíusson, annar ritstjóra Heimildarinnar tjáði áhyggjur sínar á stöðu einkarekinna íslenskra fjölmiðla eftir niðurlagningu Fréttablaðsins og Hringbrautar. „Þetta er afleiðing af pólitískri stefnumörkun sem felur í sér að gera nánast ekkert til að bregðast við stöðu sem hefur blasað við árum saman. Það blasir við að ráðamenn lita ekki á frjálsa og fjölbreytt fjölmiðla sem mikilvæga lýðræðisstoð heldur...
InnlentEinar segir ritstuld „vera eitt hrikalegasta brot sem hægt er að fremja í háskólaheiminum“31. mars 2023 Eftir að Mannlíf burti grein fyrr í kvöld um að mögulega hafi Edda Falak nýtt sér efni úr meistararitgerð annars nemanda við Copenhagen Business School fyrir nokkrum árum síðan. Haukur Már Haraldsson segir í athugasemd við frétt Mannlífs inni á Facebook-síðu Einars: „Er það nýjasta markmiðið í lífinu; að koma Eddu Falak á kné? Til hamingju með karlmennskuna.“ Myndin sem...
InnlentEinar Steingrímsson segir Eddu Falak hafa stolið köflum úr ritgerð: „Augljós ritstuldur“31. mars 2023 Stærðfræðingurinn Einar Steingrímsson segir frá því á Facebook-síðu sinni að fjölmiðlakonan Edda Falak hafi hreinlega stolið hluta af ritgerð – nefnir hann að svo virðist sem allavega tíu atriði í ritgerð sem Edda Falak hafi notað án heimilda í ritgerðinni áðurnefndu. „Mér var bent á sláandi líkindi milli meistararitgerðar Eddu Falak við Copenhagen Business School og meistararitgerðar annars nemanda við...
InnlentGlúmur segir hver sé leiðinlegasti pólitíkusinn: „Eitthvað í fasinu sem drepur mig úr leiðindum“31. mars 2023 Glúmur Baldvinsson segist hafa „átt því láni að fagna um ævina að hafa kynnst mörgum skemmtilegum og kjaftforum stjórnmálamanninum. Ævintýralegir karakterar. Og sumir ógleymanlegir.“ Hann segir einnig að hann hafi „líka átt því óláni að ófagna að hafa hitt og neyðst til að heilsa einhverjum leiðinlegustu pólitíkusum allra tíma. Ég nefni engin nöfn af virðingu fyrir hinu háa Alþingi. En...
InnlentKSÍ vill ekki segja hvort milljarðahöllin í Garðabæ fái vallarleyfi – Benda hvert á annað31. mars 2023 Erfitt hefur reynst að fá upplýsingar frá Knattspyrnusambandi Íslands varðandi ákvörðun stjórnarinnar um nýju íþróttahöll Garðabæjar, Miðgarð. Ákvörðun var tekin í fyrradag en stjórnin gefur sér viku til að birta hana. Stjórn KSÍ fer undan í flæmingi þegar Mannlíf hefur reynt að fá upplýsingar um stöðu milljarðahallarinnar í Garðabæjar, Miðgarðs. Samskiptastjóri bæjarins fullyrti í svari til Mannlífs fyrir nokkrum vikum,...
InnlentEgill Helgason syrgir: „Eigum eftir að sakna Kára óskaplega en góðar minningar eru okkur raunabót“31. mars 2023 Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason segir frá heldur dapurlegum tíðindum. „Kári tengdafaðir minn er dáinn. Hann var einstakur sómamamaður, góðgjarn, velviljaður, hjálpsamur, heill og sannur – alvöru séntilmaður.“ Egill bætir við: „Þau voru sérlega glæsilegt par hann og Guðrún. Missir hennar er mikill, þau voru saman upp á hvern dag frá unglingsaldri.“ Egill segir frá því að konan hans, Sigurveig „skrifar fallega...
InnlentSegir VG reisa skjaldborg um Jón Gunnarsson:„Engar líkur eru á að þetta fólk kunni að skammast sín“31. mars 2023 Björn Birgisson fer mikinn í færslu á Facebook eftir að ljóst var að vantrauststillaga stjórnarandstöðunnar, utan Miðflokksins, var felld á Alþingi í gær. Orðhákurinn frá Grindavík, samfélagsrýnirinn Björn Birgisson segir að nú liggi það algjörlega fyrir að þingflokkur Vinstri grænna styðji Sjálfstæðisflokkinn í einu og öllu. Efast hann um að þingmenn flokksins „kunni að skammast sín.“ Með færslunni birti hann...
InnlentSigmundur Ernir áhyggjulaus eftir að Fréttablaðið sigldi í strand – Fær vinnu hjá eiginkonunni31. mars 2023 Sigmundur Ernir Rúnarsson, fráfarandi ritstjóri Fréttablaðsins og Hringbrautar hefur litlar áhyggjur af sjálfum sér, nú þegar rekstri miðlanna er hætt. Hann segir hug sinn vera með starfsmönnunum sem misstu vinnuna. Í samtali við Mannlíf sagði Sigmundur Ernir að hugur hans væri með starfsmönnum Fréttablaðsins og Hringbrautar. „Hugur minn er hjá starfsmönnunum sem hafa með þrotlausri vinnu við að halda þessum...