InnlentLögreglan leitar að ökumanni sem keyrði á ungan dreng – Skorar á hann að gefa sig fram27. mars 2023 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á ungan pilt á rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á Neshaga í Reykjavík, hjá Melaskóla, síðastliðinn föstudagsmorgun, 24. mars, rétt fyrir níu, eða um kl. 8.50. Fyrrnefndur ökumaður nam staðar á vettvangi og átti orðaskipti við piltinn, en ók síðan á brott. Lögreglu var tilkynnt um slysið í dag, en við skoðun á slysadeild...
LandiðSæþór var enn að vakna er snjóflóð féll á húsið:„Svo komu þessi miklu neyðaröskur af neðri hæðinni“27. mars 2023 „Það tók okkur stundarkorn að gera okkur grein fyrir hvað hafði gerst enda vorum við ekki alveg vöknuð en svo heyrðum við bara neyðaröskrin og lætin frá neðri hæðinni strax í kjölfarið,“ sagði Sæþór Sigursteinsson, íbúi í öðru af þeim tveimur fjölbýlishúsum í Neskaupstað sem urðu fyrir snjóflóði snemma í morgun en hann var í viðtali við Austurfrétt. Fram kemur...
InnlentBorga 713 milljónir eða sitja inni í eitt ár: „Býst við að fæstir væru í vandræðum með valið!“27. mars 2023 Á dögunum var verktakinn Þorkell Kristján Guðgeirsson dæmdur til að greiða 713 milljónir króna á innan við fjórar vikur ellegar sitja í fangelsi í ár. Hlaut hann dóminn vegna lögbrota í rekstri tveggja félaga sinna. Björn Birgisson samfélagsgrýnir veltir fyrir sér hvorum kostinum fyrir sig. Björn Birgisson. Sjá einnig: Verktakinn sem lét fólk sofa í svefnskápum: Þorkell fær fjórar vikur...
InnlentNeyðarástand á Austfjörðum: Björgunarsveitarmenn ganga hús í hús og rýma á Seyðisfirði og Norðfirði27. mars 2023 Búið er að rýma öll hús sem átti að rýma á Seyðisfirði og rýming er langt komin í Neskaupsstað. Ófremdarástand ríkir nú á Austurlandi vegna mikillar snjókomu en snjóflóð féll í Neskaupsstað í morgun. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er rýmingu nú lokið á Seyðisfirði og er hún langt komin í Neskaupsstað. Björgunarsveitarmenn hafa gengið hús úr húsi og munu hafa farið...
InnlentMáni segir bless: „Ég kveð alla í mikilli vinsemd og kærleik“27. mars 2023 Hinn frábæri fjölmiðlamaður, Þorkell Máni Pétursson – Máni – segir frá því á Facebook-síðu sinni að hann sé að kveðja SÝN. „Kæru vinir og vandamenn. Um síðustu mánaðarmót lauk ég formlega störfum hjá SÝN (áður (Aflvakinn, Fínn miðill, íslenska útvarpsfélagið, 365 ofl skemmtilegt).“ Bætir við: „Þetta hefur verið áhugavert ferðalag í rúm 25 ár. Oftast skemmtilegt. Ég kveð alla í...
InnlentGuðni og Eliza: „Enn erum við minnt á að við búum í nánd við náttúruöfl sem geta verið óblíð“27. mars 2023 „Við hjónin hugsum hlýtt til Norðfirðinga eftir snjóflóðin sem féllu í nótt,“ skrifar forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og bætir við: „Margt fólk hefur þurft að yfirgefa heimili sín í öryggisskyni og björgunarsveitir sinna mikilvægum störfum, auk annarra á vettvangi. Einnig er verið að rýma hús á Seyðisfirði og hætt er við snjóflóðum á öllum Austfjörðum.“ Guðni segir að „enn...
InnlentSjáðu myndirnar frá Eskifirði þar sem bílar eru á kafi í snjó: „Við komumst ekki lengra út í bili“27. mars 2023 Snjóflóð féll í Neskaupstað í nótt en verið er að rýma tugi húsa á svæðinu. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, sagði í samtali við RÚV í morgun að snjóflóðið hafi ekki verið þykkt en ljóst er að það hafi fallið á miklum hraða. „Við virðumst hafa sloppið vel, sem betur fer,“ sagði Víðir en aðstæður á svæðinu eru erfiðar. Snjóflóðahætta er...
MenningSjóðandi heitur Kleini snýr aftur með ískalda ljósmynd26. mars 2023 Kristján Einar Sigurbjörnsson eða Kleini eins og hann kallar sig, fékk að skreppa í bæjarferð en hann er í meðferð í Krýsuvík. Notaði hann tækifærið og skellti flottri mynd á Instagrammið sitt. Kleini, sem sat inni í átta mánuði í fangelsi í spænsku borginni Malaga í fyrra fyrir nokkrar líkamsárásir, fór í meðferð í byrjun árs í Krýsuvík. Kleini snéri...
MenningSvala Björgvins vinnur að nýrri tónlist – Sjáðu hverju hún klæðist í tökunum – MYNDIR26. mars 2023 Svala Björgvinsdóttir deilir með fylgjendum sínum í nýrri Instagram-færslu hverju hún klæðist í hljóðverinu. En Svala stendur í ströngu þessa dagana en samkvæmt stiklu (story) á Instagram er hún að vinna í nýrri tónlist – sem vonandi kemur út sem fyrst. Víð og þægileg föt eru eftirlæti Svölu, enda má álykta að þægindin séu mikilvæg þegar taka skal upp hina...
MenningFann ástina í Hagkaup: „Hún kokgleypti þetta allt og varð óheyrilega skotin í mér“26. mars 2023 „Svona getur smá missögli eyðilagt allt það góða í lífinu,“ ritar Glúmur Baldvinsson og skaut föstum skotum að orðavali ritstjórnar Heimildarinnar í máli Eddu Falak. Glúmer er vinsæll á samfélagsmiðlum og feikiklár penni. Stílvopnið notar hann til að ydda og lita frásagnir sínar og sjónarmið listavel. Í nýjustu færslu sinni á Facebook segir hann frá uppdiktuðu ferðalagi sínu í Hagkaup...
InnlentBiðlar til almennings um fjárhagsaðstoð: „Tjáningarfrelsið er sem sagt fyrir fáeina útvalda“26. mars 2023 Páll Vilhjálmsson kennari og mbl-bloggari hefur óskað eftir fjárhagsaðstoð vegna málskostnaðar eftir að hafa verið dæmdur, í Héraðsrétti, til að greiða tveimur blaðamönnum Heimildarinnar 1,5 milljón. Færsla Páls ber yfirskriftina Áfrýjun til landsrétt, málskostnaður. Málið Blaðamennirnir Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson kærðu Pál Vilhjálmsson fyrir meiðyrði vegna ummæla sem framhaldsskólakennarinn hafði uppi um þá á bloggsíðu sinni, þar...
InnlentFærsla Eddu um að senda Gunna Nelson á næsta lúser: „Þetta var augljóslega grín“26. mars 2023 Edda Falak hefur útskýrt færslu eftir sig sem hún birti á samfélagsmiðlinum Twitter á föstudagskvöldið. Í færslunni stóð um að hún myndi senda Gunnar Nelson bardagaíþróttamann á næsta „lúser“ sem fengi hana næsta á heilann. Til að ná frekari drefingu var færslan merkt myllumerkinu vikan og birtist einnig í sjónvarpsþættinum Vikunni með Gísla Marteini. Ummæli Eddu vöktu umtalsverð viðbrögð og...