InnlentUmboðsmaður barna segir ástandið óviðunandi: „Ekkert meðferðarúrræði til staðar fyrir drengi“14. nóvember 2024 Salvör Nordal, umboðsmaður barna, fer hörðum orðum um ástandið sem ríkir í málefnum barna með fjölþættan vanda í bréfi til mennta- og barnamálráðherra. Eitt af því sem hún nefnir sérstaklega er að rými sem var útbúið fyrir neyðarvistun barna í Hafnarfirði sé með öllu óviðunandi fyrir þá starfsemi sem á að fara þar fram en rýmið var opnað tímabundið eftir...
MenningÖssur saknar Hrafns Jökulssonar: „Hann gengur stöðugt aftur, í besta skilningi þess orðs“14. nóvember 2024 Össur Skarphéðinsson saknar Hrafns Jökulssonar, eins og svo margir. Líffræðingurinn og ráðherrann fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson minnist Hrafns Jökulssonar sem lést 2022 eftir harða baráttu við krabbamein. Í færslu sem Össur birti á Facebook rifjar hann upp fallega minningu um lífskúnstnerinn Hrafn: „Hrafn minn, hvað ég sakna hans. Á hverjum degi. Hann gengur stöðugt aftur, í besta skilningi þess orðs. Nú...
InnlentStöð 2 birti leyniupptökurnar með syni Jóns Gunnarssonar – Lögreglan leitar að tálbeitunni14. nóvember 2024 Fréttastofa Stöðvar 2 birti í gærkvöld upptökur sem eru að baki fréttum Heimildarinnar um Gunnar Bergmann Jónsson fasteignasali em lýsti því að faðir hans, Jón Gunnarsson, hefði gert hrossakaup um að fá að fara inn í matvælaráðuneytið og tgryggja þar framgang hvalveiðileyfi. Á upptökunni hér að neðan má sjá Gunnar lýsa bralli föður síns á fundi með viðskiptavini sem hafði...
MenningHeimsþekktar ljósmyndir lifna við með hjálp gervigreindar – MYNDBAND13. nóvember 2024 Heimsfrægar ljósmyndir lifna við með hjálp gervigreindarinnar. Gervigreindin er á allra vörum um þessar mundir enda um stórkostlegar tækniframfarir að ræða, þó ekki séu allir á einu máli um ágæti hennar. Gervigreindina er hægt að nota á ótrúlega fjölhæfan hátt, meðal annars til þess að spyrja um hvað sem huganum girnist, til þess að semja tónlist, skrifa ritgerðir og hvað...
InnlentFleiri gömul skrif Þórðar Snæs rifjuð upp: „Var að reyna að pikka upp eina 12 ára handa mér“13. nóvember 2024 DV hefur nú birt fleiri skrif frá árum Þórðar Snæs Júlíussonar er hann nam stjórnmálafræði í Edinborg. Þar koma fram fordómafullar færslur sem fjölmiðlamaðurinn og frambjóðandi Samfylkingarinnar skrifaði um kvenfólk og minnihlutahópa. Bloggsíðan þar sem skrif Þórðar Snæs birtust hét „Þessar elskur“ en henni hélt hann úti ásamt félögum sínum. Þórður Snær var þó sá sem skrifaði langmest á síðunni...
HeimurOfurfyrirsæta handtekin grunuð um hrottafengið morð13. nóvember 2024 Ofurfyrirsætan Dynus Saxon hefur verið handtekinn grunaður um morð. Samkvæmt lögreglunni í New York borg stakk Saxon hinn 35 ára gamla Kadeem Grant til bana á sunnudaginn í íbúð hans í Bronxhverfinu. Grant fannst liggjandi í sófa í íbúðinni með hníf í brjóstkassanum og skorinn á höndum og fótum. Farið var með Grant á nærliggjandi sjúkrahúsi þar sem hann lést...
InnlentBjarni Ben fékk það óþvegið frá Pírötum: „Af hverju ertu svona? Þarftu alltaf að ljúga?“13. nóvember 2024 Bjarni Benediktsson fékk aldeilis að heyra það á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter) en hann skrifaði færslu þar í fyrradag þar sem hann skaut á Pírata. „Í dag er pabba og afadagur í leikskólanum. Ég mæti í kaffi sem stoltur afi. Það er ótrúlegt en satt að nokkrir þingmenn vildu breyta kenninöfnum í mannanafnalögum. Ég væri ekki lengur afi heldur foreldri...
InnlentMeðritstjóri Þórðar gagnrýnir hann harðlega: „Það er ekki mikil auðmýkt í þessari framsetningu“13. nóvember 2024 Þórður Snær Júlíusson, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður og fyrrverandi ristjóri Heimildarinnar, viðurkenndi í gær í þættinum Spursmál að hafa skrifað niðrandi greinar um konur undir dulnefni. „Konur eru flugklárar, miklu klárari en einfeldningarnir við sem getum mest átt þrjú áhugamál, þær taka eftir öllu og kryfja það. En þær eru líka lævísar, miskunnarlausar, undirförlar tíkur sem svífast einskis til...
InnlentMóðirin sem banaði syni sínum var alvarlega þunglynd – Taldi sig vera með krabbamein12. nóvember 2024 Móðirin sem dæmd var í fangelsi á dögunum fyrir að verða ungum syni sínum að bana við Nýbýlaveg í Kópavogi, þjáðist af alvarlegu þunglyndi. Kemur þetta fram í dóminum sem birtur var á heimasíðu Héraðsdóms Reykjaness í dag. Samkvæmt frétt RÚV komust þrír dómkvaddir matsmenn að þeirri niðurstöðu að konan hefði verið alvarlega veik af þunglyndi en ekki haldin geðveiki...
InnlentKristján dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás – Kannaðist ekki við að hafa framið glæpinn12. nóvember 2024 Kristján Markús Sívarsson hefur verið dæmdur í Héraðdómi Reykjavíkur í 16 mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás auk fleiri minni brota en árásin átti sér stað í janúar árið 2022. Kristján var meðal annars dæmdur fyrir að hafa kastað kertastjaka í höfuð konu sem var gestur á heimili hans. Konan fór á slysamóttökuna í Fossvogi og hafði starfsfólk þar samband...
InnlentÞekktir tjá sig um hlerunarmálið: „Jón er birtingarmynd spillingar“12. nóvember 2024 Fátt annað er talað um á kaffistofum landsins en hlerunarmál Jóns Gunnarssonar en fjölmargir landsmenn eru afar ósáttir við uppljóstrun Heimildarinnar, ef dæma má út frá samfélagsmiðlunum. Hér má sjá nokkur viðbrögð þjóðþekktra einstaklinga sem birtust á Facebook. Björn Þorláksson, rithöfundur, frambjóðandi Flokks fólksins og starfsmaður Samstöðunnar spyr hvort um sé að ræða besta vin aðal, en nýútkomin bók hans...
MenningHagaskóli vann Skrekk með atriði um loftslagsvána – Hefur unnið langoftast12. nóvember 2024 Hagaskóli vann í gær Skrekk en keppnin er árleg leiklistar- og hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur. Atriði Hagaskóla heitir Stingum af og fjallar um loftslagsvána. Í öðru sæti var Laugalækjarskóli með Kæra dagbók og Réttarholtsskóli með Einbeittur brotavilji. Þá hlaut Ölduselsskóli sérstök verðlaun fyrir skapi notkun íslensku. Seljaskóli, Fellaskóli, Breiðholtsskóli og Árbæjarskóli komust einnig í úrslit þetta árið. Þetta var í 10....