Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Meðritstjóri Þórðar gagnrýnir hann harðlega: „Það er ekki mikil auðmýkt í þessari framsetningu“

Meðritstjóri Þórðar gagnrýnir hann harðlega: „Það er ekki mikil auðmýkt í þessari framsetningu“
Ingi­björg Dögg rit­stjóri og ungur Þórður Snær – Myndin er sam­sett

Þórður Snær Júl­í­us­son, fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Reykja­víku­rkjör­dæmi norður og fyrr­ver­andi rist­jóri Heim­ild­ar­innar, við­ur­kenndi í gær í þætt­inum Spursmál að hafa skrifað niðr­andi greinar um konur undir dul­nefni.

„Kon­ur eru flug­klár­ar, miklu klár­ari en ein­feldn­ing­arn­ir við sem get­um mest átt þrjú áhuga­mál, þær taka eft­ir öllu og kryfja það. En þær eru líka lævís­ar, mis­kunn­ar­laus­ar, und­ir­förl­ar tík­ur sem svíf­ast einskis til að ná því fram sem þær vilja og helst með því að láta sjálf­ar sig líta út sem fórn­ar­lömb at­b­urðarás­ar­inn­ar á meðan,“ skrif­aði Þórður meðal ann­ars á blogg frá árunum 2006 til 2007. 

„Það veita sér all­ir karl­menn unað. Hvort sem það er pabbi ykk­ar, bisk­up­inn eða gæ­inn sem dæl­ir bens­íni á bíl­inn, þeir fikta all­ir reglu­lega í drasl­inu á sér, það er í eðli okk­ar. Heim­ur­inn yrði lík­lega óbæri­leg­ur ef að karl­menn gerðu ekki slíkt, þeir væru enda­laust frú­st­reraðir og pirraðir þar sem meiri­hluti kven­kyns viður­kenn­ir ekki að þær séu jafn graðar og við og nota kyn­líf til að stjórna körl­um. Límið sem held­ur heim­in­um sam­an er unaðsveit­ing­in og aðal hjálp­armeðal henn­ar er klámið,“ eru einnig orð sem Þórður skrif­aði. Á blogg­inu skrif­aði Þórður einnig að Rannveig Rist „daðri við að vera þroska­heft.“

Ingi­björg ósátt

Í færslu á Facebook sem Þórður birti í nótt seg­ist hann hafa verið rúm­lega tví­tugur þegar hann skrif­aði þetta. Hann biðst auð­mjúk­lega afsök­unar í færsl­unni og segir að þetta hafi verið heimsku­legt og rangt af honum. Hann tekur fram að þessi skrif hans end­ur­spegli ekki þau gildi sem hann hefur í dag. Þá segir hann að færsl­urnar hafa að mestu verið frá árinu 2004.

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Heim­ild­ar­innar, er ekki hrifin af færslu Þórðar. „Maður sem er fæddur árið 1980 er ekki rúm­lega tví­tugur á árunum 2006 og 2007, heldur 26 og 27 ára. Það er ekki mikil auð­mýkt í þess­ari fram­setn­ingu. Á þeim tíma varst þú ekki bara með krull­urnar á djamm­inu heldur einnig að skrifa fréttir í fjöl­miðla,“ skrifar Ingi­björg við afsök­un­ar­beiðni Þórðar, sem var ekki lengi að svara. 

„Sæl. Færslan sem vitnað er er frá fyrri hluta árs 2004. Ég var ekki starf­andi blaða­maður heldur i háskóla­námi. Ég var því ekki að skrifa fréttir i fjöl­miðla. En ég ber samt sem áður auð­vitað fulla àbyrgð á þessum vondu skrifum, og vík mér ekki undan henni. Ég sé þau fyrir það sem þau eru og biðst afsök­unar á þeim.“

Ingi­björg og Þórður Snær unnu náið saman sem meðrit­stjórar Heim­ild­ar­innar um nokk­urt skeið þar til Þórður hætti skyndi­lega sem rit­stjóri fyrr á þessu ári.

Miklu klárari en konurnar

Stuttu eftir að Ingi­björg rit­aði athuga­semd sína setti hún sjálf færslu á Facebook sem hægt er að lesa hér fyrir neðan. Ekki liggur nákvæm­lega fyrir í hvað eða hvern Ingi­björg vísar með þess­ari færslu en bent hefur verið á að Þórður Snær sat um tíma í stjórn UN Women á Íslandi.

„Til eru mis­mun­andi gerðir karl­rembu. Sú sem mér hefur þótt einna erf­ið­ast að eiga við og finnst eig­in­lega verst eru karl­arnir sem koma fram sem femínistar. Þeir halda jafn­vel sjálfir að þeir séu það en þeir eru bara svo miklu klár­ari en kon­urnar í kringum þá. Mín reynsla er sú að þessir karlar eiga auð­veld­ast með að bera virð­ingu fyrir konum sem rífa kjaft og eru dálítið töff – eins og strák­arnir. Eða eru þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ