InnlentRósa bæjarstjóri gerði lítið úr óförum óléttrar konu: „Það er nú fólk sem sefur í bílunum sínum“22. nóvember 2021 Agnes Gróa Jónsdóttir er ung og ólétt kona sem er á leið á götuna fljótlega, en henni hefur ekkert gengið að fá leigða íbúð og kvíðir næstu mánuðum mikið, enda er von á barninu í febrúar. Agnes leitaði til Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Agnes fékk ekki neina hjálp né samúð hjá Rósu bæjarstjóra, en Agnes fór sem betur fer á...
InnlentÁslaug Arna ánægð að eiga góða að: „Við höfum gengið í gegnum ýmislegt“22. nóvember 2021 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur gengið í gegnum ýmislegt síðustu árin líkt og flestir í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem þurft hefur að kljást við heimsfaraldur sem engan enda virðist ætla að taka. Þegar mikið mæðir á ráðherra er gott að eiga góða aðstoðarmenn að og það veit Áslaug. Á Instagram síðu sinni birti hún eftirfarandi texta: „Það er mikilvægt að...
InnlentMAST rannsakar hryllilega meðferð á blóðmerum22. nóvember 2021 Heimildarmynd sem sýnir slæma meðferð á fylfullum hryssum við blóðtöku er nú til rannsóknar hjá Matvælastofnun. Segir dýralæknir í samtali við Vísi að málið sé litið grafalvarlegum augum en að meðferðin sé ekki lýsandi fyrir blóðtökuhald á Íslandi. Mannlíf fjallaði fyrst fjölmiðla um meðferðina sem sýnd er í heimildarmyndinni, síðasta föstudag en þá birti Mannlíf stiklu úr myndinni sem frumsýnd...
InnlentJólaþorpið í Hafnarfirði opnar næsta föstudag22. nóvember 2021 Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði opnar næsta föstudag, þann 26. nóvember klukkan 17:00. Jólaþorpið nú orðið árlegur viðburður þar sem fólk getur bæði verslað jólagjafir og smakkað á ýmsu góðgæti. Þá verður jólaþorpið opið allar helgar fram að jólum frá klukkan 13:00 til 18:00 en allar upplýsingar má finna á Facebook síðunni Jólaþorpið í Hafnarfirði. En á Facebook síðunni segir...
InnlentSÖFNUN – Aníta biður um aðstoð fyrir móður sína: „Á mjög erfitt með að spyrja um hjálp“22. nóvember 2021 Aníta nokkur biðlar til netverja um fjárhagsaðstoð fyrir móður sína en hún þarf að fara með hundinn sinn, Mane, í erfiða aðgerð á mjöðm. Kostnaðurinn er mikill og þar sem móðirin er einstæð og tryggingarnar hafna bótagreiðslu biður Aníta um hjálp. Það gerir hún í fjölmennu samfélagi kattaeigenda á Facebook, Kettir á Facebook, aðdáendur katta og allir dýravinir. Þar segir...
InnlentSoffía neitar að ljúga fyrir Svandísi: „Við erum búin að fá nóg. Sorry“22. nóvember 2021 Hjúkrunarfræðingurinn Soffía Steingrímsdóttir, vakstjóri á bráðamóttöku, er ekki tilbúin til að ljúga fyrir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Hún segir starfsfólk Landspítala einfaldlega komið með nóg af sorglegu ástandi sjúkrahússins. Þetta kemur fram í færslu Soffíu á Facebook þar sem hún fullyrðir að ástandið á Landspítalanum versni með hverjum deginum. Hún skilur illa beiðni Svandísar um að heilbrigðissstarfsfólk tali ekki niður ástandið...
InnlentByssumaðurinn á Egilsstöðum ákærður – Er í gæsluvarðhaldi til 30. nóvember22. nóvember 2021 Ákæra hefur verið gefin út af embætti héraðssaksóknara í máli gegni karlmanni á Egilsstöðum vegna skotárásar sem átti sér stað 26. ágúst. Maðurinn var skotinn af lögreglunni en er á batavegi. Mbl.is segir frá málinu í dag. Þar segir að Friðrik Smári Björgvinsson hjá héraðssaksóknara staðfestir að búið sé að ákæra manninn. Maðurinn fór vopnaður haglabyssu og riffli á heimili...
Innlent„Við stefnum inn í pestavetur“22. nóvember 2021 Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir ljóst að Íslendingar stendi inn í mikinn pestavetur þennan vetur. Ástæðan er sú að pestirnar hafa legið í dvala á meðan fólk hefur haldið sig til hlés vegna covid-19 en koma nú inn af miklum þunga og blandast saman. „Ef spár ganga eftir má reikna með talsvert miklu álagi á heilbrigðiskerfið af völdum algengra...
InnlentKári vill skylda bólusetningu: „Drullusokksháttur að láta ekki bólusetja sig“22. nóvember 2021 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskra erfðagreiningar, telur ríka ástæðu til þess að skylda bólusetningar hér á landi gegn Covid-19. Að bólusetja sig ekki kallar hann einfaldlega drullusokkahátt. „Ég myndi ekki gráta það ef þess yrði krafist af fólki að það færi í bólusetningu. Ég veit að það er fullt af fólki þarna úti sem fyndist það mikill fasismi og ljótt að...
InnlentAlgjör barnabomba framundan: „Spilaði inn í að manni kannski leiddist pínu“21. nóvember 2021 Allt bendir til þess að um fimm þúsund börn fæðist hér á landi á árinu. Væri það langmesti fjöldi fæðinga á einu ári frá upphafi Íslandsbyggðar. Aðjúnkt á Félags- og Mannvísindadeild Háskóla Íslands segir ástæðuna sennilega vera kórónufaraldurinn.Fram kom í sjónvarpsfréttum Rúv í kvöld að miðað við tölur frá fyrstu þremur ársfjórðungum hafa ekki fleiri börn fæðst á einu ári...
InnlentÖfgar taka við peningagjöfum á erlendri vefsíðu: „Óhóflega mikill tími og launalaus vinna“21. nóvember 2021 Meðlimir Öfga hafa að undanförnu drýgt tekjur sínar með því að taka við peningum í gegnum vefsíðu þar sem fólk getur keypt kaffibolla sem þó er ekki alvöru kaffibolli, heldur einungis andvirði hans. Hafa þær fengið rúmlega 300.000 kr. upp úr krafsinu. Nýjasta leiðin fyrir einstaklinga og góðgerðasamtök að safna pening á vefnum er síða sem heitir BuyMeACoffee.com. Þar er...
InnlentNýtt líf Friðriks Ómars: „Ég fór úr 96 kílóum niður í 63 kíló á einu ári“21. nóvember 2021 Söngvarinn síkáti, Friðrik Ómar Hjörleifsson missti 33 kíló á einu ári. Hann var að undirbúa það að koma út úr skápnum og missti sveindóminn, 25 ára gamall. Friðrik Ómar var gestur vikunnar í Einkalífinu á Vísi.is. Þar talar Dalvíkingurinn brosmildi meðal annars um þann tíma er hann missti 33 kíló á einu ári. „Ég kem hingað suður árið 2003 og...