InnlentArnþór forðast fjölmiðla – Hagnast gífurlega á illri meðferð blóðmera24. nóvember 2021 Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdarstjóri Ísteka, hefur ekki látið ná í sig síðan þýsk/austurísk heimildarmynd um illa meðferð blóðmera leit dagsins ljós á mánudaginn. Ísteka vinnur efni úr blóði meranna, meðal annars til að auka frjósemi svína. Ísteka gaf þó út yfirlýsingu nýlega þar sem fyrirtækið harmar illa meðferð á merunum sem sjá má í myndbandinu. „Í myndbandi sem svissnesk samtök settu...
InnlentÍbúar Reykhólahrepps greiða framvegis ekkert fyrir leikskóla og tónlistarskóla24. nóvember 2021 Íbúar Reykhólahrepps fá framvegis frían leikskóla og gjaldfrjálsa tónlistarkennslu barna en sveitarfélagið hefur nú tekið það inn í fjárhagsáætlun að fella niður öll gjöld fyrir námið. Markmið Reykhólahrepps er að bjóða upp á fjölskylduvænt samfélag. Frá þessu er greint á bb.is þar sem fram kemur að fjárhagsstaða sveitarsjóðsins sé góð og því verði jafnframt boðið upp á akstur fyrir börn...
InnlentBiggi lögga blandar sér í sjóðheita umræðuna um kynferðisbrot: „Slíkt er aldrei í boði. Aldrei“24. nóvember 2021 Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, hefur nú blandað sér inn í sjóðheita samfélagsumræðuna um kynferðisbrot hér á landi. Hann telur að tekin hafi verið gífurlega mikilvæg skref gegn þöggun samfélagsins og segir svo mikið í húfi að ekki megi missa stjórnina á umræðunni. Biggi ritar skoðuna sína í langri færslu á Facebook. Við skulum hreinlega gefa honum...
InnlentÍslenskt hestafólk ræðst í ímyndarherferð fyrir hestamennsku: „Flestir hestamenn eru gott fólk“24. nóvember 2021 Íslenskt hestafólk hefur ákveðið að ráðast í ímyndarherferð fyrir hestamennsku hér á landi sem á nokkuð undir högg að sækja þessa dagana eftir að Mannlíf fjallaði fyrst fjölmiða um skelfilega meðferð á fylfullum hryssum. Í fjölmennum hópi hestafólks á Facebook, Hestar og reiðmenn, er blásið til herferðar þar sem hestafólk er hvatt til þess að senda inn fallega mynd af...
InnlentHaraldur læknir um Áslaugu Örnu: „Mjög óábyrgt af yfirmanni almannavarna að vera með þennan áróður“23. nóvember 2021 Heimilislæknir sem er kominn á eftirlaun, Haraldur Óskar Tómasson, lét skrá sig sem bakvörð í upphafi Covid 19 faraldursins; til að aðstoða við þau mörgu verkefni sem sinna þurfti vegna veirunnar, en þetta kemur fram í frétt DV. Haraldur var í fríi í sumar en núna í haust var aftur leitað til hans þegar verkefnin hrúguðust upp og mjög erfitt...
InnlentStærsta fjárfesting evrópskrar viðskiptasögu: Björgólfur Thor er einn af stærri hluthöfum Telecom23. nóvember 2021 Telecom Italia, stærsta fjarskiptafélag Ítalíu hefur borist yfirtökutilboð frá alþjóðlega fjárfestingafélaginu KKR. Verði yfirtakan samþykkt af hluthöfum Telecom og ítölskum stjórnvöldum verður hún ein af stærstu framtaksfjárfestingum evrópskrar viðskiptasögu. Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, er einn af stærri hluthöfum Telecom, sem hljóðar upp á tæplega þriggja prósenta hlut. Hlutur Björgólfs Thors er metinn á um það bil 320 milljónir evra...
InnlentAfsláttardagurinn Svartur föstudagur: „Fólk mun geta gert góð kaup þennan dag“23. nóvember 2021 Black Friday eða Svartur föstudagur eins og það kallast er dagur sem hefur tekið sér fastan sess hér á landi síðustu ár. Um er að ræða dag þar sem verslanir bjóða upp á hina ýmsu afslætti og tilboð. Sjá má á vefverslunum og heimasíðum fyrirtækja að mörg hver hafa framlengt afsláttardaginn vinsæla og bjóða upp á tilboðin alla vikuna sem...
InnlentHilmar lýsir einelti á skrifstofunni: „Ég lamaðist úr skelfingu og kom varla upp nokkru orði“23. nóvember 2021 Aðalmeðferð í máli Hilmars Vilbergs Gylfasonar, fyrrum fjármálastjóra Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, gegn samtökunum fer fram í dag. Hilmar hefur nú stefnt SSF og krefst sjötíu og fimm milljóna króna í bætur frá SSF eftir að honum var vikið úr starfi eftir að hann kvartaði undan langvarandi einelti og ofbeldi af hendi yfirmanna sinna. Krefst hann 75 milljóna í bætur. Sjá...
InnlentÓmar og miðbæjarelítan æf vegna skemmdarverka: „Hvaða gerpi gerir svona!“23. nóvember 2021 Ómar nokkur, íbúi í miðborginni, er uggandi yfir skemmdarverkahrinu sem virðist vera í miðbænum þar sem veggjakroti með rasískum skilaboðum er krotað á hús. Síðustu daga hefur verið krotað á að minnsta kosti þrjú hús í miðborginni. Þessa mynd birti Ómar en þarna stendur: „Locals onlly“ Ómar vekur máls á vandanum í hópi hverfisbúa á Facebook og birtir þar mynd...
InnlentUngmenni fylgjandi klámbanni: „Mér finnst þetta jákvætt“23. nóvember 2021 Þingmenn Pírata og Sjálfstæðisflokksins taka afstöðu gegn þeirri hugmynd menntamálaráðherra að loka á klám fyrir ungmenni. Sú aðferð hefur verið gagnrýnd síðustu daga á samfélagsmiðlum og sögð bæði óraunhæf og röng. Nemendur virðast hafa ólíkar skoðanir á málinu þó margir séu fylgjandi klámbanni og segja klám skaðlegt. Vísir fjallaði um málið og talaði við nemendur Hagaskóla. „Klám er svosem vandamál...
InnlentHneykslaði vegfarenda og var handtekinn23. nóvember 2021 Lögreglan handtók í gærkvöldi ölvaðan karlmann í Laugardal. Hafði maðurinn látið illa og hneykslað vegfarenda sem varð til þess að lögregla kom á vettvang. Var maðurinn vistaður bak við lás og slá vegna annarlegs ástands. Þá var annar karlmaður handtekinn í Kópavogi í nótt sökum ástands og einnig vistaður í fangaklefa. Þjófnaður á bifreið í Breiðholti átti sér stað í...
InnlentFinnbogi Þorkell: „Mín áfallasaga tengist bæði körlum og konum sem gerendum“22. nóvember 2021 „Á svona vegferð eru mjög mörg smá „aha móment“. Ég held samt að jógakennaranámið sé einhver sú mesta andlega „þvottavél“ sem ég hef farið í gegnum. Það komst ró á öll kerfi líkamans og leiðin var nokkuð skýr eftir það.“ Mannlíf spjallaði við Finnboga Þorkel Jónsson, jógakennara og leikara, sem undanfarið hefur verið að kenna karlajóga og reka Gleðismiðjuna sem...