Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Finnbogi Þorkell: „Mín áfallasaga tengist bæði körlum og konum sem gerendum“

Finnbogi Þorkell: „Mín áfallasaga tengist bæði körlum og konum sem gerendum“

„Á svona veg­ferð eru mjög mörg smá „aha móment“. Ég held samt að jóga­kenn­ara­námið sé ein­hver sú mesta and­lega „þvotta­vél“ sem ég hef farið í gegnum. Það komst ró á öll kerfi lík­am­ans og leiðin var nokkuð skýr eftir það.“

Mannlíf spjall­aði við Finnboga Þorkel Jónsson, jóga­kenn­ara og leik­ara, sem und­an­farið hefur verið að kenna karla­jóga og reka Gleði­s­miðj­una sem tekur að sér hópa m.a. í hlát­urjóga. Ásamt því starfar hann öðru hverju sem leik­ari, kenn­ari og við smíðar.

Finnbogi hefur notað jóga­fræðin sem eina af sínum leiðum til að kom­ast yfir áföll og áskor­anir í líf­inu.

Setja ekki merkimiða á fólk

Mér finnst hlý­legra að setja ekki merki­miða á fólk út frá starfstitli, tekjum eða stöðu.

Hver er Finnbogi? „Ég er mann­eskja sem leit­ast við að verða betri mann­eskja. Mér finnst hlý­legra að setja ekki merki­miða á fólk út frá starfstitli, tekjum eða stöðu, það segir ekk­ert um mann­eskj­una. Ég er að átta mig á minni leið og hún hefur mikið með mann­eskj­una og tengsl að gera.“

Finnbogi er lærður leik­ari, jóga­kenn­ari, hlát­urjóga­leið­bein­andi, með BA í rit­list og hefur unnið sem leið­sögu­maður. Hann seg­ist vera lið­tækur í leik­list­ar­kennslu, smíða­vinnu og lóða­hönnun.

„Mín áfalla­saga teng­ist bæði körlum og konum sem ger­endum og er marg­þætt. Ég þurfti að finna réttu fag­legu aðstoð­ina til að hjálpa mér að vinna úr mínum áföllum. Hún var ekki hjá vini, maka eða gúrú, heldur hjá hlut­lausum fag­legum aðila í rólegu og öruggu umhverfi. Ég leit­aði mikið og próf­aði margar leiðir til sjálfs­hjálpar, jógað, 12 sporin, HAM-með­ferð o.fl. Ég lærði að hlúa að veg­ferð­inni og að lífið ger­ist ekki bara ein­hvern veg­inn.

Það er nokkuð skýrt fyrir mér að mann­legir brestir eru oft­ast knúnir áfram af sárs­auka

Aðal­at­riðið er að halda áfram, þá sér maður það sem maður þarf að sjá, þegar maður er til­bú­inn að sjá það.

Fyrir mér hefur EMDR-áfalla­með­ferð virkað mjög vel. Það hefur ekki alltaf verið auð­velt og en það virkar stór­kost­lega fyrir mig þegar ég vinn sam­visku­sam­lega mína EMDR-heima­vinnu og iðka hug­leiðslu og jóga með. Ég upp­lifi þetta ferli stundum eins og skurð­að­gerð á sál­inni eða til­finn­ing­unum og ekki bara tal og aftur tal „meinið“. Gamli sárs­auk­inn er erf­ið­astur en það er auð­veld­ara að fara í gegnum hann en að mar­íner­ast áfram þótt manni finn­ist það samt alls ekki meðan á ferl­inu stendur. Það er nokkuð skýrt fyrir mér að mann­legir brestir eru oft­ast knúnir áfram af sárs­auka.“

Gríðarlega hamingjusamir vegna viðbragðanna

Finnbogi stofn­aði Gleði­s­miðj­una (gled­is­midjan.is) ásamt vini sínum, Þor­steini Gunnari Bjarna­syni, leik­ara og jóga­kenn­ara, og eru þeir gríð­ar­lega ham­ingju­samir vegna við­bragð­anna.

„Við ætlum að gera þetta á meðan ástríðan logar. Við þró­uðum ein­föld prógrömm sem skapa gleði og við höfum mætt í fyr­ir­tæki, félaga­sam­tök, gæs­anir, veislur og á elli­heim­ili, meðal ann­ars.

Ég kenni líka karla­jóga, það er ýmis­legt í kort­unum í leik­list­inni og inni á milli gríp ég í smíða­vinn­una.

Ég held að ég hafi alltaf verið inni á þess­ari línu, ég hef reynt að loka á þetta og vinna bara „venju­lega“ vinnu, skaffa vel og kaupa dót.

Ég hefði getað stofnað lóða­hönn­un­ar­fyr­ir­tæki og grætt pen­inga. Það er bara ekki mitt leið­ar­ljós og svo eru í raun ekki nema örfá verð­mæti sem mæl­ast í pen­ingum. Hjá mér hefur sköp­unin, að deila sögum, sjá hverf­ul­leika lífs­ins með húmor, gefa af mér, alltaf togað í mig að búa til eitt­hvað og þá er gaman.“

Fólk getur í rauninni miklu meira en það heldur

 Við lærum munstur og við lifum í þessum munstrum. Sem er ágætt út af fyrir sig.

Það sem hefur komið Finnboga helst á óvart er hvað fólk getur í raun­inni miklu meira en það heldur.

„Við lærum munstur og við lifum í þessum munstrum. Sem er ágætt út af fyrir sig. En er maður ekki alltaf að upp­götva eitt­hvað nýtt um sjálfan sig, ef maður er til­bú­inn til þess?

Vísindin segja að alheim­ur­inn sé stærri en við höldum og mér finnst heim­ur­inn innra með okkur vera það líka. Eða eins og einn fyr­ir­les­ari í jóg­anu sagði svo skemmti­lega: Það er fullt af lífi og hug­myndum fyrir utan manns­hug­ann, hafið það hug­fast. Mér finnst þetta þýða að flestir geti upp­lifað meira en þeir halda,“ segir Finnbogi og hlær.

„Ég sé það í giggum hjá Gleði­s­miðj­unni, í jóga­kennsl­unni og hjá sjálfum mér. Þetta er ekk­ert guð­legt „bliss“. Ég hef margoft séð og heyrt venju­legt fólk, mót­or­hjóla­töffar­ann eða flís­peysu­for­eldrið, tala um að allt í einu sé það farið að taka meira eftir umhverf­inu, það upp­lifir tengsl og þakk­læti, upp­lifir að það sé hluti af ein­hverju stærra en það sjálft og þakkar fyrir „sjálf­sögðu“ hlut­ina, til dæmis fal­legu trén úti.“

Aðspurður segir Finnbogi að vinnan úr áfalla­sög­unni hafi verið hans langstærsti, per­sónu­legi sigur. „Ef ekki væri fyrir hana þá væri ég ekki að gera það sem ég er að gera í dag.“

Hann faldi sig á bak við grín og trúðs­grímu, en það var alltaf eitt­hvað sem hindr­aði hann í að blómstra.

Þessi munstur eru lærð hegðun einhvers staðar frá

Hann segir okkur að lífið hafi meira og minna verið í  „fight or flight mode“ (átaka eða flótta-hegðun) og „sur­vi­val­isma“ (kom­ast af-hegðun). „Ef það drepur ekki lík­amann drepur það alla­vega sál­ina. Þessi munstur eru lærð hegðun ein­hvers staðar frá. Kannski er þetta ein­hvers konar „torf­kofatrauma“-kyn­slóð frá kyn­slóð því mér finnst margir tala um þetta.

Mér fannst mikið vera í húfi. Ég er smá bar­daga­maður í mér og hugs­aði líka að ég yrði sterk fyr­ir­mynd fyrir dóttur mína. Mjög snemma í ferl­inu upp­lifði ég frelsi og gríð­ar­legan innri fögnuð þegar ég skynj­aði að gömul munstur moln­uðu niður og stig­veldi féllu hvert á eftir öðru, líkt og við fall Róma­veldis.

Ég var fljót­ari en ég bjóst við að byggja upp nýtt og ham­ingju­sam­ara líf. Ég segi stundum að líf mitt hafi verið storm­ur­inn á undan logn­inu. Ég verð fer­tugur í des­em­ber og finnst eins og mjög mörgum á svip­uðu reki að lífið sé einmitt að byrja núna. Annar per­sónu­legur sigur er nátt­úr­lega dóttir mín, Heiður Ísafold, 9 ára, við erum miklir sálu­fé­lagar.“

Finnbogi segir okkur að helsta áskor­unin sé ein­fald­lega að halda áfram. Það er erf­ið­ara að halda mark­mið­inu, en að ná því.

„Stundum nenni ég ekki þessu jóga­brölti og and­lega þvaðri og vil bara fá mér kaffi og bakk­elsi. Þá bara geri ég það. En þá er stutt í stöðnun.

Mér finnst jafn sjálf­sagt að fara til sál­fræð­ings eins og sjúkra­þjálf­ara eða heim­il­is­læknis. Maður fer alltaf út sem betri mann­eskja.“

Hann seg­ist enn þá finna fyrir skömm og feimni hjá fólki þegar kemur að fag­legri aðstoð varð­andi til­finn­inga­leg mál. Sér­stak­lega ef fólk er fast í gömlum munstrum.

Verk­ur­inn í hnénu er að segja manni eitt­hvað. Sama með and­lega þátt­inn. Þetta á líka við ef manni líður mjög vel, þá er maður að gera eitt­hvað rétt.

„Ég kann­ast við þegar fólk segir jafn­vel með stolti frá bak­verkjum eða vöðva­bólgu vegna vinnu­á­lags, en ef minnst er á að sá vandi geti verið til­finn­inga­legs eðlis eða gam­alt munstur þá er eins og við­kom­andi móðg­ist.

Kannski er þetta hin íslenska „vinnu­alka­gríma“, alveg eins og ég var með trúðs­grímuna mína. En nú er 2021 og það má ræða hlut­ina.

Líðan manns segir manni eitt­hvað, alveg eins og verk­ur­inn í hnénu. Líka þegar manni líður vel, þá er maður að gera eitt­hvað rétt. Hvort sem maður vill losna við eitt­hvert áfall, stórt eða lítið, eða bæta sjálfan sig, þá næst ekki árangur með því að sitja á steini og hug­leiða eða að skoppa um nak­inn í skóg­inum og tengj­ast trjánum. Þetta eru oft átök og stundum mik­ill sárs­auki sem þarf að fara í gegnum. En frelsið sem maður upp­lifir síðan er stór­kost­legt. Þarna held ég að lang­flestir geti meira en þeir halda. Og þessi hug­ljómun eða „bliss“ sem fylgir í kjöl­farið, og ég upp­lifi stundum við jóga­iðkun, er kannski það sem flestir eru að leita að. Mig grunar að því verði aldrei náð með enda­lausum pen­ingum, botn­lausu kyn­lífi, heppi­legri breyt­ingu á öðru fólki eða frama. Þetta er fyrir ofan það og mér heyr­ist að flestir séu bæði með­vitað og ómeð­vitað að leita þessum friði, „blissi“ eða hug­ljómun, ég líka. Eldri kona sagði einu sinni við mig; „ef þetta væri ein­falt og auð­velt væru allir að þessu.“ Kannski er ég bara ótrú­lega hepp­inn að hafa fundið þessa leið en mig langar að sinni þessu á meðan áhug­inn er til staðar.“

Næst á dag­skrá hjá Finnboga er að halda áfram með Gleði­s­miðj­una á meðan eld­ur­inn logar og kenna jóga. „Ég er ekki hefð­bund­inn níu til fimm-gæi þótt svo­leiðis verk­efni detti inn, ég þrífst best í skap­andi umhverfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ