Meðlimir Öfga hafa að undanförnu drýgt tekjur sínar með því að taka við peningum í gegnum vefsíðu þar sem fólk getur keypt kaffibolla sem þó er ekki alvöru kaffibolli, heldur einungis andvirði hans. Hafa þær fengið rúmlega 300.000 kr. upp úr krafsinu.
Nýjasta leiðin fyrir einstaklinga og góðgerðasamtök að safna pening á vefnum er síða sem heitir BuyMeACoffee.com. Þar er hægt að kaupa svokallaðan vefkaffibolla handa fólkinu sem um það biður og þannig gefa þeim andvirði kaffibolla að gjöf en bollinn kostar 5 dollara. Sé síðan skoðuð má sjá rithöfunda, hlaðvarpsstjórnendur, listamenn og fleiri safna peningum en þar má einnig sjá góðgerðasamtök.
Samkvæmt frétt Dv.is er þar einnig að finna meðlimi baráttuhópsins Öfga og virðist sem þeim gangi ágætlega að safna pening í vasann. Hafa þær fengið alls 457 „bolla“ frá styrkjendum sem gera um það bil 300 þúsund krónur.
Baráttukonan Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann skráði sig á síðuna fyrir hálfum mánuði síðan og tilkynnti hún skráninguna á Twitter. „Óhóflega mikill tími og launalaus vinna sem fer í umræðuna, fræðslu, viðtöl og skilaboð. Þið sem viljið kaupa cappuchino eða ískaffi með haframjólk fyrir mig megið ýmist gera það í raunheiminum eða hér, fyrirfram þakkir.“
Hefur Kolbrún fengið talsvert af styrkjum á síðunni en hún hefur fengið rétt undir 200 bolla eða um 130 þúsund krónur.
Gera má ráð fyrir því að vefsíðan taki einhverja prósentu af peningaupphæðinni en restin af kaffinu rennur þó ljúft ofan í baráttukonurnar.
Dv segir frá því að Öfgakonur séu einnig með sér aðgang og hafa þær mismikið upp úr krafsinu. Þórhildur Gyða Arnarsdóttir sem mikið hefur verið í fréttum undanfarið eftir að hún sagði frá ofbeldi sem hún sagðist hafa lent í af hendi Kolbeins Sigþórssonar. Hún hefur ekki fengið eins marga bolla og Kolbrún en þó 30 stykki eða tæpar 20 þúsund krónur.
Þá er Tanja Ísjförð sem einnig er meðlimur í Öfgum, einnig með sinn eigin aðgang á vefsíðunni. Hefur hún fengið meira að drekka en Þórhildur eða 58 bolla af rjúkandi heitu kaffi frá 18 mismunandi styrkjendum. Það er um það bil 40 þúsund krónur.































Athugasemdir