Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rósa bæjarstjóri gerði lítið úr óförum óléttrar konu: „Það er nú fólk sem sefur í bílunum sínum“

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar

Agnes Gróa Jóns­dóttir er ung og ólétt kona sem er á leið á götuna fljótlega, en henni hefur ekkert gengið að fá leigða íbúð og kvíðir næstu mánuðum mikið, enda er von á barninu í febrúar.

Agnes leitaði til Rósu Guðbjarts­dóttur bæjar­stjóra Hafnar­fjarðar. Agnes fékk ekki neina hjálp né samúð hjá Rósu bæjar­stjóra, en Agnes fór sem betur fer á fundinn með frænku sinni sem getur staðfest hvað fram fór á fundinum.

Agnes skrifar allsvakalega færslu um málið á Facebook þar sem hún nánast grátbiður fólk að hjálpa sér að finna litla íbúð áður en barnið kemur í heiminn; hjálpina við það fékk hún allavega ekki frá bæjar­stjóranum í Hafnar­firði, Rósu Guðbjarts­dóttur:

Færsla Agnesar hefst svona:

„Ég trúi eiginlega ekki að ég sé að gera þetta en svona er staðan. Ég er 27 ára gömul, ófrísk af mínu fyrsta barni; gengin 6 mánuði á leið. Ég kem af mjög brotnu heimili, hef þurft að sjá um mig sjálf frá því ég man eftir mér.“

Agnes Gróa Jóns­dóttir.

Hún bætir við að „ég þekki það ekki að eiga bakland eða normal fjölskyldulíf; ég hef bara þurft að redda mér sjálf og sjá um mig sjálf. Ég þekki ekkert annað og hefur mér tekist það nokkuð andskoti vel þangað til núna þegar ég er í fyrsta skipti að biðja um hjálp.“

Agnes er að missa íbúðina sem hún bjó og verður nú bráðlega ólétt á götunni:

„Núna er ég búin að vera í næstum 2 mánuði að reyna finna íbúð á höfuð­borgar­svæðinu, aðallega í Kópavogi eða Hafnar­firði, þar sem að ég er bíllaus og alltof einangruð hérna í Keflavík og líður hreinlega illa.“

Bætir við:

„Ég er byrjuð að vinna í bænum líka og er svo sem ekki mikið að fara flytja eftir 1-2 mánuði þar sem að ég er sett 23. febrúar. Ég er gjör­samlega að gefast upp þar sem að ég labba á veggi allstaðar!“

Hún segist liggja inni á „leigu­síðum, er að senda og senda á fólk með íbúðir sem eru undir 200.000 á mánuði, það eru yfirleitt 20+manns þá búnir að sækja um og trygging yfirleitt 300-600 þúsund, sem er upphæð sem ég hvorki á né kemst í; ég er með mikið af tattooum og ef ég á að vera hrein­skilin er ég ekki beint þannig útlítandi að fólk vilji endilega leiga mér, sem ég skil svo sem alveg; sorglegt en staðreynd.“

Agnes nefnir að hingað til hafi hún fundið íbúðir í gegnum vini sína, en nú er það ekki að ganga upp:

„Þeir sem að þekkja mig vita að ég er algjör snyrtipinni og hef alltaf átt fallegt heimili og skiptir það mig mjög miklu máli. Ég geng það langt að ég fór að hitta bæjar­stjórann í Hafnar­firði og aðstoðar­konu hennar, frænka mín fór með mér og hún átti ekki til orð! Það sem ég fékk frá þeim var bókstaf­lega: „Það er nú fólk sem sefur í bílunum sínum.“

Ég er búin að tala við Barnaverndanefnd, Félags­ráðgjafa hér og þar, menn sem eiga leigu­félag, ALLT, það virðist engin geta hjálpað mér með íbúð eða aðstoðað mig. Ég geng um gólfin heima hjá mér þar sem að ég er að falla á tíma og vil ekkert meira en öruggt húsnæði fyrir mig og dóttir mína sem fer að koma í heimin. Ég vil biðja ykkur um að hafa mig í huga ef þið vitið um einhverja sæta litla íbúð helst í Hfj, Kóp eða Grb sem leyfir 2 kisur sem fylgja mér og eru mér allt. Með von um það besta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim