InnlentGrænkerar bjóða í bíó og aðgerðarsinninn Jake Conroy svarar spurningum áhorfenda7. janúar 2020 Á fimmtudaginn, þann 9. janúar, verður The Animal People sýnd í Bíó Paradís. Sýningin er í boði Veganúar og Samtök grænkera á Íslandi og er frítt inn á sýninguna. Myndin fjallar um aðgerðasinna sem hlutu dóm í tengslum við mótmæli gegn tilraunum á dýrum. Jake Conroy (The Cranky Vegan) er einn þessarra aðgerðasinna og mun koma og svara spurningum eftir...
InnlentBára stofnar Kærleikur í hverri lykkju – Þú getur verið með4. janúar 2020 Bára Tómasdóttir hefur hrundið af stað verkefninu Kærleikur í hverri lykkju, þar sem hún og allir sem vilja taka þátt prjóna peysu, sem gefnar verða einstaklingum sem dvelja á meðferðarheimilum.
InnlentGuðrún Ögmundsdóttir látin1. janúar 2020 Guðrún Ögmundsdóttir baráttukona og fyrrum þingmaður lést á líknardeild Landspítalans í gær, að morgni gamlársdags. Hún var 69 ára að aldri. Guðrún greindist með krabbamein síðustu áramót og var langt komin með lyfjameðferð við því þegar hún var í forsíðuviðtali Mannlífs 20. september. „Já, ég er með krabbamein, á ýmsum stöðum,“ segir hún. „Þetta uppgötvaðist svo seint. Ég hafði verið...
InnlentGleðilegt nýtt ár!31. desember 2019 Ritstjórn Mannlífs óskar lesendum gleðilegs árs með þökk fyrir samfylgdina á árinu og góðar viðtökur við blaðinu og vefnum. Kæru lesendur við þökkum ykkur fyrir samfylgdina og fjölmörg góð skilaboð og viðbrögð við viðtölum okkar og greinum á árinu 2019. Við hlökkum til að færa ykkur nýtt efni á árinu 2020 og vonum að þið eigið góð áramót framundan. Gleðilegt...
InnlentEftirminnileg ummæli sem féllu á árinu31. desember 2019 Landinn lá ekki á skoðunum sínum á árinu sem er að líða, ekki frekar en fyrri ár. Mannlíf tók saman nokkur vægast sagt áhugaverð ummæli sem féllu á árinu sem er að líða.
InnlentPáll Óskar: „Áramótaballið mitt er on“30. desember 2019 Söngvarinn sívinsæli fær að halda árlegt áramótaball á Spot í Kópavogi eftir að Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu endurnýjaði vínveitingaleyfi staðarins.
HeimurDauðarefsingin á undanhaldi í BNA29. desember 2019 Rangar sakfellingar og umdeildar aftökuaðferðir eru meðal þess sem hefur gert það að verkum að sífellt fleiri ríki í Bandaríkjunum ákveða að stöðva aftökur um óákveðinn tíma eða banna dauðarefsinguna. Samkvæmt nýrri könnun vilja 60% Bandaríkjamanna heldur dæma fólk í ævilangt fangelsi en til dauða.
HeimurSá feiti – nei, ekki jólasveinninn …29. desember 2019 Dregið var í Sorteo Extraordinario de Navidad í fyrsta sinn 18. desember 1812, þegar stóri vinningurinn fór á miða númer 03604. Í dag er jólaúrdrátturinn í spænska lottóinu einfaldlega kallaður El Gordo, sá stóri, en hann er fastur þáttur í aðdraganda jóla og beðið með mikilli eftirvæntingu ár hvert. Lottóið er hannað þannig að sem flestir fái einhvern vinning, eða...
HeimurEkki alveg jafnglysgjarn og frændinn á Íslandi29. desember 2019 Í sænska bænum Gävla stendur stór og myndarlegur geithafur. Hann heimsótti bæinn í fyrsta sinn fyrir jólin 1966 og síðan þá birtist hann á Kastalatorginu fyrsta sunnudag í aðventu ár hvert, gestum og gangandi til ánægju og yndisauka. Því miður þá er jafnsterk hefð fyrir því að geithafurinn mæti grimmilegum örlögum og þykir fréttnæmt ef hann stendur fram yfir áramót....
InnlentAllt í lagi að fólk vilji ekki svona prest29. desember 2019 Davíð Þór Jónsson hefur verið starfandi prestur í fimm ár og dálítill styr staðið um hann í því embætti. Sumum þykir til dæmis ekki við hæfi að prestur semji og syngi hápólitíska og róttæka texta eins og hann gerir með hljómsveitinni Austurvígstöðvunum. Öðrum þykir fortíð hans ekki presti sæmandi, en Davíð blæs á slíkt tal.
InnlentBætt siðferði mikilvægara en ölmusugjafir28. desember 2019 Davíð Þór Jónsson segir kirkjuna vinna verk sín í hljóði en viðurkennir að hún mætti vera betur í stakk búin til þess að hjálpa þeim sem minna mega sín á Íslandi.
Innlent„Við þurfum ekkert presta“27. desember 2019 Davíð Þór Jónsson hefur verið starfandi prestur í fimm ár og dálítill styr staðið um hann í því embætti. Sumum þykir til dæmis ekki við hæfi að prestur semji og syngi hápólitíska og róttæka texta eins og hann gerir með hljómsveitinni Austurvígstöðvunum. Öðrum þykir fortíð hans ekki presti sæmandi, en Davíð blæs á slíkt tal. Það sé löng hefð fyrir því að prestar séu virkir í stjórnmálum og fortíð hans geri hann, ef eitthvað er, hæfari til að sinna mörgum af þeim sem til hans leiti sem prests. Hann hafi þó reyndar ekki stefnt að því að taka prestvígslu þegar hann hóf nám í guðfræði, en starfið hafi staðið undir öllum hans væntingum og rúmlega það.