InnlentHalldóra Mogensen um stjórnmálamenn í kosningaham: „Lofa öllu fögru til að halda völdum.”29. maí 2019 „Lofa öllu fögru til að halda völdum,” sagði Halldóra Mogensen , þingkona Pírata, um stjórnmálamenn í kosningaham. Þetta sagði hún í eldhúsdagsumræðum í kvöld. Halldóra bætti við að eftir kosningar hefði fólk mátt venjast því að loforðin standist ekki. Nefndi hún sem dæmi að allir flokkar hefðu lofað að enda krónu á móti krónu skerðingu en slíkt hafi enn ekki gerst.
Innlent„Sjálfsagt að fólk hafi ofan í sig og á”29. maí 2019 „Samstarf þessara þriggja flokka er óvenjulegt” sagði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona Vinstri grænna, í eldhúsdagsumræðum á Alþingi um samstarf flokkanna þriggja VG , Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
InnlentEldhúsdagsumræðurOddný Harðardóttir gefur umhverfisstefnu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur: „algjöra falleinkunn”29. maí 2019 Oddný G. Harðardóttir, þingkona Samfylkingar, lagði áherslu á loftslagsmál í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. Stefnu ríkisstjórnarinnar í loftlagsmálum gagnrýndi hún harðlega. „Máttleysislega loftslagsáætlun ríkisstjórnar Íslands fær algjöra falleinkunn.”
InnlentEldhúsdagsumræður„Vissulega er ekki sjálfgefið að samstarf líkt og við höfum í þessari ríkisstjórn gangi upp“29. maí 2019 Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði góða samstöðu innan ríkisstjórnarinnar og fagnaði samstarfinu í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. Hann notaði ræðuna sína til að gagnrýna ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar fyrir fyrirætlanir um að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.
InnlentEldhúsdagsumræðurÞingkona Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn beygja sig undir VG í heilbrigðismálum29. maí 2019 „Ljóst er að stjórnvöld eru á rangri leið,” sagði Anna Kolbrún Árnadóttir, þingkona Miðflokksins, í elduhúsdagsumræðum á Alþingi og gagnrýndi getuleysi ríkisstjórnarflokkanna í heilbrigðismálum.
HeimurBoris Johnson mætir fyrir dóm vegna gruns um að hann hafi blekkt almenning í Brexit-kosningum29. maí 2019 Boris Johnson er sakaður um lygar og villandi málflutning í aðdraganda Brexit . Breskur kjósandi kærði Boris vegna fullyrðinga um að aðild Bretlands að Evrópusambandinu kostið breskan almenning 350 milljónir punda í viku hverri. Upphæðin er um 55 mlljarðar íslenskra króna.
InnlentÞriðji orkupakkinnLiðsmenn Orkunnar okkar húrrandi ósáttir við Krakkafréttir. „Hérna hefst forritunin“28. maí 2019 „Að vera með krakkafréttir er hneyksli í sjálfu sér,“ skrifar meðlimur baráttuhópsins Orkan okkar vegna innslags Krakkafrétta RÚV um þriðja orkupakkann. Hópurinn er samtalsvettvangur andstæðinga EES tilskipunarinnar.
InnlentÞungunarrofÞrautaganga kvenna sem vilja enda þungun „Útlimir barnsins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið“28. maí 2019 Andstæðingar þungunarrofs í Bandaríkunum beita harkalegum aðferðum til að þrýsta á konur að leita ekki réttar síns og rjúfa þungun. „Ekki drepa barnið þitt,“ og „Við getum hjálpað þér“ er meðal þess sem mótmælendur gegn þungunarrofi kalla á konur sem leita sér aðstoðar. Konur sem vilja fóstureyðingu njóta fylgdar sjálfboðaliða í gegnum hóp mótmælenda.
InnlentÞriðji orkupakkinnHúðskammar Miðflokkinn fyrir að auka bið fátækra eftir réttlætismálum með málþófi28. maí 2019 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, húðskammaði Miðflokksmenn á Alþingi í dag. Inga sagði Miðflokksmenn ekki þekkja sinn vitjunartíma, hygla sjálfum sér og halda þinginu í gíslingu. Afleiðingin sé sú að þingmál sem varði fátæka komist ekkert áfram.
InnlentÞorsteinn Víglundsson segir innflytjendur styðja við aukin lífsgæði með myndarbrag28. maí 2019 Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, kvað sér orðs í þinginu nú í morgun og sagði fjölgun innflytjenda hér á landi mikið fagnaðarefni. Hann sagði fólk sem hingað flytur standa undir lífsgæðum samfélagsins af myndarbrag með þeim sem hér eru fæddir.
InnlentLögfræðingur í vinnurétti segir kæru Orkunnar okkar „ógeðslega fyndin“ misskilningur á EES tilskipun27. maí 2019 Fulltrúar Orkunnar okkar hafa kært fundarstjórn forseta til Vinnueftirlitsins. Dagný Ósk Aradóttir Pind, lögfræðingur hjá BSRB segir þingmenn ekki vera hefðbundna starfsmenn. „Þingmenn eru sérstaklega undanskildir starfsmannalögum.“
InnlentInga Sæland gagnrýnir heilbrigðisráðherra vegna koníaksdeyfingar sjúklings27. maí 2019 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, gagnrýndi slæma stöðu heilbrigðisþjónustu í dreifðari byggðum í fyrrispurnartíma Alþingis í dag. Inga vitnaði til fréttar um erfiða stöðu í heilbrigðisþjónustu á Borgarfirði eystra þar sem sjúklingur var nýlega deyfður með koníaki. „Þó það sé gaman að fá sér stundum koníak er þetta eitthvað annað,“ sagði Inga.