Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Liðsmenn Orkunnar okkar húrrandi ósáttir við Krakkafréttir. „Hérna hefst forritunin“

„Að vera með krakka­fréttir er hneyksli í sjálfu sér,“ skrifar með­limur bar­áttu­hóps­ins Orkan okkar vegna innslags Krakka­frétta RÚV um þriðja orku­pakk­ann. Hópurinn er sam­tals­vett­vangur and­stæð­inga EES til­skip­un­ar­innar.

Liðsmenn Orkunnar okkar húrrandi ósáttir við Krakkafréttir. „Hérna hefst forritunin“
Krakka­fréttir fjöll­uðu um þriðja orku­pakk­ann þann 27. maí. Mynd: Skáskot.|Krakkafréttir fjölluðu um þriðja orkupakkann þann 27. maí. Mynd: Skáskot.|Krakkafréttir fjölluðu um þriðja orkupakkann þann 27. maí. Mynd: Skáskot.|Krakkafréttir fjölluðu um þriðja orkupakkann þann 27. maí. Mynd: Skáskot.

„Hérna hefst for­rit­unin. Herjað á ungar sálir, sem eiga að vera börn í friði,“ segir sami með­limur en tekur þó fram að innslag Krakka­frétta um orku­pakk­ann sé „frekar hlut­laus, aldrei þessu vant.“ „Eins og í öðrum sós­í­alist­a­ríkjum þar á meðal Norður-Kóreu, Venes­ú­ela byrjar inn­ræt­ingin á barns­aldri, ekki seinna vænna,“ segir annar. „Sorglegt. Þegar ég var barn þá hafði ég engan áhuga á stjórn­málum bara að leika mér,“ bætir sá þriðji við.

Andlegt ofbeldi sem verður að stöðva
Tilvist Krakka­frétta virð­ist fara veru­lega fyrir brjóstið á með­limum hóps­ins. „Þetta er nú orðið einum of. Þetta er and­legt ofbeldi sem bein­ist að æsku lands­ins og verður að stöðva taf­ar­laust,“ segir einn með­limur svo undir er tekið „Nákvæm­lega strax.“

Ísland á hraðri komm­ún­ista­leið
„Ísland er á hraðri leið að verða komm­ún­ista­ríki,“ segir enn annar not­andi. „Já þetta er eins og hvert annað trú­boð. Enda hvat­inn sá sami – að fá aðra á sitt band.“ er bætt við. „Þetta er ein­fald­lega gengið allt of langt. Hvers konar áróð­urs­starf­semi er RÚV eig­in­lega farið að stunda?“ spyr enn einn með­limur. „Krakka­fréttir… það er eng­inn vafi á að börn sem horfa á þessa ræpu hafa ekki skiln­ing á orða­vali eins og t.d. orðið „inn­leið­ingu“ því­líkt rugl og því­líkar predik­anir.“

Krakka­fréttir fjöll­uðu um þriðja orku­pakk­ann þann 27. maí.

Tíma­skekkjan RÚV
Upp­hafs­maður þráð­ar­ins skrifar grein um málið. Honum líst ekki á stöðu tján­ing­ar­frelsis á Vest­ur­löndum. „Háskól­arnir hafa verið að unga í gegnum vinstri­s­inn­aða pró­fess­ora sína, Ný Marxisma. Þessir vinstrisinn­uðu háskólar, unga út síðan blaða­menn og emb­ætt­is­menn sem vinna hjá hinu opin­bera. Þannig hafa hafa þessir for­rit­uðu ein­stak­lingar úr háskól­unum, komið sér fyrir á mik­il­vægum stöðum og náð yfir­hönd­ina í umræð­unni,“ segir í grein­inni. Um RÚV segir hann að stofn­unin sé lit­aða af rétt­trún­aði og ný-marx­isma. „Það þarf ekki að horfa lengi á fréttir RÚV, til að átta sig á að þarna er haldið uppi ströng rétt­trún­að­ar­stefna vinstri­manna.
Allur frétta­flutn­ingur er afbak­aður í anda rétt­trún­að­ar­ins. Og ef þeir ná ekki að flytja fréttir í þeirra anda. þá fer rík­is­fjöl­mið­ill­inn í þöggun. Þá skal mál­efnið þaggað í hel. Þrátt fyrir að allir sam­fé­lags­miðlar og aðrir fjöl­miðlar eru að fjalla um eitt­hvað til­tekið mál, þá er það hunsað. Og þetta á ekki aðeins við um íslenskar fréttir, heldur stór mál utan úr heimi. Þar sem allir fjöl­miðlar heims­ins eru að fjalla um málið.“

Krakka­fréttir fjöll­uðu um þriðja orku­pakk­ann þann 27. maí.

Krakka­fréttir fara yfir orku­pakk­ann
Í innslagi Krakka­frétta um þriðja orku­pakk­ann segir að málið sé umdeilt og mikið fjallað um. „Orku­pakk­inn er í raun safn af sam­eig­in­legum reglum um þá sem búa til raf­magn og dreifa því til okkar,“ segir í innslag­inu. „Regl­urnar eru búnar til í Evrópu og eru teknar upp hér á landi vegna þess að Ísland er hluti af Evrópska efna­hags­svæð­inu eða EES. Alþingi sam­þykkti að Ísland yrði hluti af EES og það gekk í gildi árið 1994.“ Krakka­fréttir segja fá því að EES sé sam­eig­in­legur mark­aður þar sem gildi sam­eig­in­legar reglur. Ísland fái und­an­þágur frá mörgum reglum vegna þess að landið sé eyja. Þar á meðal hluta orku­pakk­ans vegna þess að landið sé ekki tengt inn á raf­magns­markað Evrópu. „Þriðji orku­pakk­inn var svo kynntur fyrir tíu árum, árið 2009, og öll ríki Evr­ópu­sam­bands­ins og EES hafa sam­þykkt alla þrjá pakk­ana nema Ísland.“

Spurt er hvers vegna Íslandi hafi ekki sam­þykkt pakk­ann? „Ísland fram­leiðir mikið raf­magn. það þykir eft­ir­sókn­ar­vert vegna þess að hér er það búið til á umhverf­is­vænni hátt en í mörgum löndum. Við fylgjum reglum EES til dæmis með því að láta sum fyr­ir­tæki búa til ork­una og önnur dreifa henni. Í Evrópu má sá sami ekki bæði búa til ork­una og dreifa henni. Við fáum und­an­þágu frá því sem þýðir að íslenska ríkið má eiga bæði orku­fram­leið­anda og dreif­ingu. Það sem er nýtt í þessum pakka og það sem sumir eru á móti er að stofnuð hefur verið sam­eig­in­leg stofnun sem heitir ACER. Eitt af hlut­verkum hennar er að sjá til þess að farið sé eftir regl­unum. Hún á að vera nokk­urs­konar dóm­ari ef það koma upp deilur á milli ríkja. Sumir eru ósáttir við að ísland heyri undir ACER og segja að regl­urnar eigi ekki við okkar aðstæður og Ísland teng­ist ekki þessum sam­eig­in­lega mark­aði sem hin löndin gera. Þau vilja ekki að þessi stofnun ráði yfir okkur en af því að við tengj­umst ekki hinum löndum og getum ekki flutt ork­una okkar yfir til Evrópu þá eiga reglur ACER ekki við um okkur núna.“

Krakka­fréttir fjöll­uðu um þriðja orku­pakk­ann þann 27. maí.

Sæstrengur ekki hluti af pakk­anum
Krakka­fréttir fjalla líka um hug­myndir um að leggja sæstreng. „Sæstrengur er ekki hluti af pakk­anum þannig að ef það ætti að leggja hann þyrfti Alþingi að ákveða það sér­stak­lega.“ Fram kemur að ef sæstrengur verður lagður þá teng­ist Ísland mark­aði Evrópu og falli þá sjálf­krafa undir ACER. „Sumir hafa áhyggjur af því að þá værum við búin að gefa öðrum of mikið vald yfir okkur og eru þess vegna á móti því. Þeir sem vilja inn­leiða þriðja orku­pakk­ann hafa áhyggjur af sam­starfi EES ef við tökum ekki þátt. EES er mjög mik­il­vægt sam­starf sem þau vilja ekki stofna í hættu og segja ekki víst hvað verður um það sam­starf ef við sam­þykkjum þetta ekki eins og öll hin löndin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.

Myndband

FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum