MannlífiðLjúffengar linsubaunabollur með kryddaðri jógúrtídýfu25. apríl 2020 Linsubaunir eru hráefni sem brýtur upp á marga möguleika ásamt því að vera meinhollar og seðjandi. Ólíkt þurrkuðum baunum þarf ekki að láta linsubaunirnar liggja í bleyti. Gott er samt að skola þær fyrst og róta í gegnum þær ef það skyldu leynast smásteinar í pokanum. Linsubaunabollur með kryddaðri jógúrtídýu gerir u.þ.b. 20 bollur 200 g brúnar eða rauðar linsubaunir...
MannlífiðFisléttur og fantagóður fiskréttur21. apríl 2020 Fiskur er afar hollur matur sem vert er að hafa á boðstólnum nokkrum sinnum í viku. Hér erum við með uppskrift að rétti sem fékk góðar viðtökur í tilraunaeldhúsi Gestgjafans enda er hann virkilega bragðgóður og einfaldur að gerð.
MannlífiðFullkominn kvöldmatur á 30 mínútum – góður og ódýr20. apríl 2020 Frittata, sem er tegund af eggjakökur, er afar auðvelt og fljótlegt að elda og hún er sérstaklega heppileg þegar nota á afganga og hráefni sem er komið á síðasta snúning í kælinum. Það er því tilvalið að kíkja í ísskápinn eftir helgina og skoða hvað er til áður en hlaupið er út í búð. Gott er að bera fram salat...
MannlífiðFrábær fiskisúpa sem bítur í16. apríl 2020 Súpur eru fyrirtaksmatur og tilvalið að bera þær fram með góðu brauði. Þessi fiskisúpa heppnaðist mjög vel í tilraunaeldhúsi Gestgjafans en hún er bragðmikil og svolítið sterk. Hægt er að gera hana daginn áður og hita upp rétt áður en á að bera hana fram, en þó er betra að setja fiskinn út í samdægurs.
MannlífiðGómsæt og tignarleg súkkulaðikaka í tilefni af afmæli Frú Vigdísar Finnbogadóttur15. apríl 2020 Ein virtasta og flottasta kona Íslandssögunnar á afmæli í dag, Frú Vigdís Finnbogadóttir. Hún var fyrsta konan í heiminum til að verða kjörin forseti lýðveldisríkis og veitti konum um heim allan innblástur. Vigdís er frábær fyrirmynd og var flottur leiðtogi í forsetatíð sinni og er reyndar enn. Við hér á ritstjórn Gestgjafans óskum henni innilega til hamingju með 90 árin og deilum um leið einni forsetalegri og afar bragðgóðri súkkulaðikökuuppskrift í tilefni dagsins.
MannlífiðÆðislegar tartalettur með aspas og sveppum sem allir verða að prófa13. apríl 2020 Margir eiga góðar minningar um tartalettur úr æsku en þær voru vinsælar í veislur á síðustu öld. Margir tengja þær líka afgöngum enda eru þær tilvaldar til að nota undir restar af kjöti og meðlæti. En þegar öllu er á botninn hvolft eru heitar tartalettur dásamglega góðar og tilvaldar sem kvöldmatur með góðu salati. Þessi uppskrift að tartalettum með aspas og sveppum er alger klassík og agalega góð. Tartalettur fást tilbúnar í flestum matvöruverslunum.
MannlífiðTerta sem gerir páskana gleðilega og gómsæta12. apríl 2020 Um leið og við á ritstjórna Gestgjafans óskum ykkur gleðilegra páska þá bjóðum við upp á þessa flottu tertu sem sómir sér vel á páskaborðinu og fellur eflaust vel í kramið hjá yngri kynslóðinni. Fallegt er líka að nota eingöngu súkkulaðiegg ofan á kökuna
MannlífiðBananakaka sem slær allstaðar í gegn7. apríl 2020 Sniðugt er að baka þessa köku þegar bananarnir ykkar eru á síðasta snúningi en þeir þurfa einmitt að vera vel þroskaðir til þess að fá gott bananabragð í kökuna. Ef þeir eru það ekki getur verið gott að setja 1 tsk. af vanilludropum út í deigið. Verði ykkur að góðu.
MannlífiðTveir frábærir blómkálsréttir6. apríl 2020 Blómkál er spennandi hráefni sem hægt er að nýta á margvíslegan máta. Það er hægt að grilla, nota í súpur og salöt, ofnrétti, pizzabotna og margt annað. Hér gefum við ykkur uppskriftir að bökuðu blómkáli og ristuðum blómkálsbitum sem okkur finnst verulega góðir.
MannlífiðDöðlukaka með engifer og karamellu – bragðast best volg með þeyttum rjóma eða ís1. apríl 2020 Karamella fullkomin leið til þess að gera vel við sig og við mælum með þessari dásamlegu köku ef þið viljið slá í gegn. Hún bragðast best volg, borin fram með þeyttum rjóma eða jafnvel ís. Deigið er mjög þunnt og því verður kakan alveg sérstaklega blaut og gómsæt.
MannlífiðRosaleg rúlluterta31. mars 2020 Þessi skemmtilega útgáfa af rúllutertu vakti mikla lukku í tilraunaeldhúsi Gestgjafans enda algert hnossgæti fyrir þá sem hafa unun að marsípani og núggati. Einföld og góð.
MannlífiðMarokkóskar kjötbollur gerðar frá grunni30. mars 2020 Fátt jafnast á við heimalagaðar kjötbollur og svo virðist sem hver þjóð eigi sína útgáfu af þeim. Þær eru tilvalinn heimilismatur og skemmtileg tilbreyting á því sem hægt er að gera úr hakki. Gaman er að prófa sig áfram með hakkið og finna muninn á mismunandi hráefnum.