InnlentForstjóri hafnar birtingu innherjaupplýsinga: „Man ekki hvernig þetta var orðað“28. ágúst 2020 Guðjón Auðunsson, forstjóri fasteignafélagsins Reita, hafnar því alfarið að innherjaupplýsingar hafi verið gefnar frá félaginu áður en það tilkynnti opinberlega um fyrirhugaða hlutafjáraukningu í vikunni. Hann segir engar slíkar hafa verið til hjá félaginu fyrr en stjórnin tók ákvörðun um aukninguna síðastliðinn mánudag og því hafi ekki verið hægt að miðla neinum innherjaupplýsingum í þreifingunum sem áttu sér stað við...
Innlent„Þreifingar“ fasteignafélagsins Reita á gráu svæði – Kauphöllin skoðar málið – Fjármálaeftirlitið neitar að tjá sig27. ágúst 2020 Kauphöll Íslands mun skoða hvort tilefni sé til rannsóknar á meðferð innherjaupplýsinga fasteignafélagsins Reita. Félagið tilkynnti í vikunni um boðun hluthafafundar þann 22. september næstkomandi þar sem það hyggst auka hlutafé félagsins um allt að 200.000.000 hluta eða um 9 milljarða króna sé horft til núverandi markaðsvirði Reita. Í gær sagði Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, að stjórnendur fyrirtækisins hafi þreifað...
InnlentKvartað undan fjölda sjálfsafgreiðsluútibúa bankanna – aðeins tíu þjónustuútibú á öllu höfuðborgarsvæðinu27. ágúst 2020 Á höfuðborgarsvæðinu má aðeins finna tíu útibú sem bjóða uppá þjónustu gjaldkera og þjónustufulltrúa hjá öllum þremur stóru viðskiptabönkunum þrátt fyrir að á svæðinu búi nú ríflega 60 prósent allra Íslendinga. Önnur útíbú bjóða ýmist bara uppá sjálfsafgreiðslu eða fyrirtækjaþjónustu. Það gerir eitt útibú fyrir hverja tæplega 25 þúsund höfuðborgarbúa. Elda fólk og þeir sem eru illa tölvulæsir hafa kvartað...
InnlentBogi sagði ríkisábyrgð fásinnu þegar WOW féll – enn óvissa með eignarhald Play27. ágúst 2020 Þegar WOW var á barmi gjaldþrots sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair í samtali við Vísi að erfitt væri að skilja að þeir sem ættu að leggja til áhættufjármagn til WOW ættu ekki að eignast það að fullu. Þá sagði Bogi að í raun væri miklu ódýrara að stofna bara nýtt flugfélag á grunni þess fallna. Bogi sagðist við sama...
InnlentSamherjamyndböndin breyta engu um múturannsókn26. ágúst 2020 Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari gefur ekkert upp um gang rannsóknar á meintum mútum Samherja í Namibíu. Hann svarar því neitandi hvort Samherjamyndböndin hafi orðið til að stöðva eða hafa áhrif á rannsóknina. Þau fjalli einfaldlega um allt annað mál. „Hvers vegna í ósköpunum ættu þau að gera það? Þessi myndbönd koma lítið inn á það sem við erum að gera...
MenningAuður óskar eftir leigjanda26. ágúst 2020 Tónlistarmaðurinn og hjartaknúsarinn Auður vill setja íbúðina sína í pössun. „Omg! Hún er svo næs og kósý – nennir plís einhver meistari að taka hana í pössun,“ segir tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, eða Auður eins og hann er gjarnan kallaður, sem auglýsir nú íbúð sína við Leifsgötu til leigu á Facebook. Með færslunni lætur Auður fylgja slóð á auglýsingu á fasteignavef...
InnlentSamherjaskjalið varðveitt hjá Seðlabankanum25. ágúst 2020 Seðlabanki Íslands varðveitir enn skjal sem Helgi Seljan fréttamaður afhenti bankanum árið 2012. Þar er um að ræða skjalið umdeilda sem var undirstaða Kastljóssþáttar um meint gjaldeyrislagabrot útgerðarfyrirtækisins Samherja og mikill styr hefur staðið um. Brot sem snerust um sölu afurða á undirverði til dótturfélags fyrirtækisins. Afrit umrædds skjals er enn í vörslu bankans Samherjamenn hafa reynt mikið að koma...
InnlentEinkaviðtal við eiganda Farvel ferðaskrifstofunnar: „Ég hef ekkert óhreint í pokahorninu“24. ágúst 2020 Viktor Heiðdal Sveinsson, eigandi ferðaskrifstofunnar Farvel, óttast ekki niðurstöðu lögreglurannsóknar sem boðuð hefur verið af yfirvöldum. Hann segist ekki hafa gert neitt rangt og er sannfærður um að sú verði niðurstaða rannsóknarinnar. Lögregla rannsakar hvort saknæmt athæfi hafi átt sér stað við gjaldþrot ferðaskrifstofunnar. Fjöldi íslenskra ferðalanga er sagður hafa tapað háum fjárhæðum við þrotið þar sem flestir þeirra höfðu...
InnlentLögmaður gagnrýnir meintar njósnir tryggingafyrirtækis – „Þetta er með því ógeðfelldasta sem ég hef séð lengi“24. ágúst 2020 Fyrirhugaður Ökuvísir VÍS tryggingafélagsins fær harða gagnrýni inni á Facebook-síðu Ómars R. Valdimarssonar lögmanns. Flestir þeir sem taka þar þátt í umræðunni segja hugmyndina ógeðfellda og eftirlitið sem henni fylgir óboðlegt. Ökuvísirinn er kubbur sem ökumenn setja í bíla sína og er í raun ökuriti sem fylgist með akstri bílstjóra. Þannig nemur kubburinn til dæmis hvort ekið er of hratt...
InnlentSvikahrappar á Facebook – „Af gefnu tilefni vara ég alla við“21. ágúst 2020 Svikahrappar nýta gjafaleiki á Facebook til að klekkja á þeim sem taka þátt. Fjölmörg fyrirtæki á Facebook bjóða reglulega upp á gjafaleiki á samfélagsmiðlinum þar sem boðið er upp á að skrifa athugasemdir og/eða tagga vin/i í von um að hljóta vinning. Leikjaglaðir ættu þó að hafa varann á því svo sem virðist sem svikahrappar nýti sér leikina til að...
Innlent„Aðkallandi verkefni fyrir atvinnulífið og þjóðina“20. ágúst 2020 Átaksherferðin Íslenskt – gjörið svo vel fellur í skaut íslensku auglýsingastofunnar Brandenburg. Vinnsla á herferðinni er þegar hafin, en fjölmennur hópur fólks kemur að henni og hljóðar kostnaður upp á nítíu milljónir. „Þetta er frábær tilfinnig. Við erum ótrúlega ánægð með að hafa unnið þetta verkefni, alveg í skýjunum enda lögðum við mikla vinnu í það. Nú erum við bara...
InnlentSvona lítur fjárfestakynning Icelandair út19. ágúst 2020 Icelandair hefur birt kynningargögn fyrir hlutafjárútborð flugfélagsins sem fer fram um miðjan næsta mánuð. Að því gefnu að samþykki fyrir frestun útboðsins fáist á hluthafafundi þann 9. september næstkomandi. Icelandair hefur lokið öllum samningum sem nauðsynlegir voru í björgunaraðgerðum félagsins og hlutfjárútboðið fyrirhugaða er lokahnykkurinn. Kynningargögn flugfélagsins fyrir fjárfesta, rúmar 100 blaðsíður á heildina, liggja nú fyrir þar sem finna...