Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Aðkallandi verkefni fyrir atvinnulífið og þjóðina“

„Aðkallandi verkefni fyrir atvinnulífið og þjóðina“
Ragnar Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri og einn eig­enda Brand­en­burg. Mynd / Aðsend

Átaks­her­ferðin Íslenskt – gjörið svo vel fellur í skaut íslensku aug­lýs­inga­stof­unnar Brand­en­burg. Vinnsla á her­ferð­inni er þegar hafin, en fjöl­mennur hópur fólks kemur að henni og hljóðar kostn­aður upp á nítíu millj­ónir.

„Þetta er frá­bær til­finnig. Við erum ótrú­lega ánægð með að hafa unnið þetta verk­efni, alveg í skýj­unum enda lögðum við mikla vinnu í það. Nú erum við bara full til­hlökk­unar að keyra þetta í gang,“ segir Ragnar Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Brand­en­burgar aug­lýs­inga­stofu og einn fjög­urra eig­enda.

Nú á haust­dögum buðu Rík­is­kaup út kynn­ing­ar­verk­efni í tengslum við átakið Íslenskt – gjörið svo vel, en til­gangur átaks­ins er að efla vit­und Íslend­inga á íslenskum vörum og þjón­ustu og er það hugsað sem hluti af mót­væg­is­að­gerum stjórn­valda vegna far­ald­urs kór­ónu­veiru. Sex aðilar sendu inn hug­mynd og fór svo að Brand­en­burg bar sigur úr býtum.

„Við vorum beðin um að koma hug­mynd og útfærslu, stefnu­mörkun og birt­ing­ar­stefnu líka, en kostn­að­ar­á­ætl­unin var 90 millj­ónir,“ segir Ragnar, „og ég held að óhætt sé að segja að hug­myndin hafi slegið í gegn og stefnu­mót­unin og stra­gedían hafi hrifið dóm­nefnd­ina því við vorum nán­ast með fullt hús stiga, eða 99,8 stig, sem er auð­vitað mjög góður árangur.“

Dóm­nefndin var að sögn Ragnars skipuð full­trúa sjávar- og land­bún­að­ar­ráð­herra og full­trúa ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, ásamt þremur full­trúum atvinnu­lífs­ins, og réði úrslitum sam­an­lögð ein­kunna­gjöf á nokkrum aðsildum þáttum, þar á meðal stefnu­mörkun, birt­ing­ar­stefnu og auð­vitað hug­mynd­inni sjálfri. Má Ragnar tjá sig um hana? „Ég get nú ekki sagt frá henni að svo stöddu,“ segir hann leynd­ar­dóms­fullur, „en við erum alla vega gríð­ar­lega spennt að kynna hana fyrir þjóð­inni þegar að því kemur.“

Og hvenær verður það? „Mark­miðið er að her­ferðin fari af stað þann 8. sept­em­ber næst­kom­andi,“ svarar hann. „Þannig að það þarf að keyra þetta verk­efni hratt og örugg­lega áfram, eins og gengur og ger­ist í aug­lýs­inga­brans­anum, fyrir utan að þetta er auð­vitað aðkallandi verk­efni fyrir atvinnu­lífið og þjóð­ina. Við erum þegar byrjuð á þessu og erum á fullu að undi­búa og fram­leiða og það er stór hópur fólks sem kemur að þessu verk­efni, kvik­mynda­gerð­ar­fólk, ljós­mynd­arar og fleiri. Það er ekki eftir neinu að bíða.“

„Þetta hefur allt áhrif og skiptir máli, ekki bara fyrir fyr­ir­tæki og stofn­anir, heldur fyrir fólkið í land­inu.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Brand­en­burg kemur að átaks­verk­efnum af þessu tagi. „Við vorum fengin til að sjá um átakið Ísland – komdu með sem fékk Íslend­inga til að ferð­ast inn­an­lands í sumar og er óhætt að segja að land­inn hafið tekið við sér, þannig að við höfum tekið þátt í herð­ferðum sem ganga út á að fá fólk til að velja íslenska vöru og þjón­ustu og þau hafa hjálpað til.

Fyrir fyrstu Inspired by Iceland her­ferð­ina gerðum við fræga aug­lýs­ingu með fólki að dansa víðs­vegar um landið sem vakti mikla athygli á Íslandi sem áfanga­stað fyrir erlenda ferða­menn og gekk mög vel á sínum tíma. Átakið Ísland – komdu með skipti líka máli fyrir inn­lenda ferða­þón­ustu. Þessar her­ferðir hafa hjálpað til og sjálf­sagt hefur aldrei skipt jafn miklu máli og nú, í þessu COVID-19 ástandi, að keyra af stað her­ferð eins og þessa.

Við bindum vonir við að fá Íslend­inga til að kaupa íslenska vöru og þjón­ustu af íslenskum fyr­ir­tækjum, því um leið og maður á við­skipti við íslenskan aðila fær hann fjár­muni til að versla við íslenska byrgja og svo koll af kolli. Þetta er ákveðin hringrás og skiptir sköpum því þannig höldum við störfum og sköpum ný störf,“ segir Ragnar.

Hann seg­ist því vera með­vit­aður um að Íslenskt – gjörið svo vel sé mik­il­vægt verk­efni fyrir þjóð­ar­búið. „Já, að sjálf­sögðu gerum við það. Við vitum hversu mik­il­vægt það er að bæði fyri­tæki og stofn­anir reyni að setja sína vöru og þjón­ustu og ráð­gjöf í fókus, eins og hægt er, því þetta hefur allt áhrif og skiptir máli,“ segir hann með áherslu, „ekki bara fyrir fyr­ir­tæki og stofn­anir, heldur fyrir fólkið í land­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum