MannlífiðJólablað Gestgjafans – veisla fyrir bragðlaukana27. nóvember 2019 Kokkar Gestgjafans fóru á kostum á dögunum í tilraunaeldhúsinu þegar þeir elduðu hvern veisluréttinn á fætur öðrum fyrir þetta glæsilega blað sem nú er að koma út. Kalkúnninn sem prýðir forsíðuna smakkaðist frábærlega og hægt að segja með sanni að þarna sé uppskrift að hinum fullkomna kalkún.
MannlífiðNokkur frábær eldhúsráð sem allir ættu að kunna26. nóvember 2019 Hér koma nokkur frábær eldhúsráð.
MannlífiðTeppanyaki-staður í fyrsta sinn á Íslandi26. nóvember 2019 Flame er nýr veitingastaður sem opnar bráðlega að Katrínartúni 4. Á staðnum er svokallað teppanyaki-grill og mun vera þetta verða fyrsti teppanyaki-staðurinn sem opnar á Íslandi. Þá munu kokkar elda matinn fyrir framan gestina sem sitja við grillið. „Í síðustu viku prufuðum við teppanyaki borðið okkar. Það kom ekkert smá vel út og við getum ekki beðið eftir að opna,“...
MannlífiðCrostini með þeyttum rjómaosti, fíkjum, heslihnetum og hunangi24. nóvember 2019 Eftirmiðdagste á sér langa sögu í Bretlandi. Ein sagan segir að í kringum 1840 hafi Anna, hertogaynja í Bedford, þurft eitthvað til að seðja hungrið fram að kvöldverði en í þá daga var borðað tvisvar á dag.
MannlífiðAlltaf með tónlist í eyrunum22. nóvember 2019 Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, þingmaður og söngvari Spaðanna, á stórt og mikið plötusafn, en hann hlustar stöðugt á tónlist þegar hann skrifar, semur greinar, ryksugar, spjallar við vini sína eða þegar hann er aleinn og angurvær að íhuga og grúska.
MannlífiðBleikar og braðgóðar í brönsinn21. nóvember 2019 Fátt er betra en nýbakaðar brauðbollur nema kannski ef þær eru bleikar. Rauðrófurnar gefa þessum skemmtilega dökkbleikan lit og eru hollar og góðar. Þær passa til dæmis vel í brönsinn með þínu uppáhaldsáleggi eða með súpunni með vænni klípu af smjöri.
MannlífiðSýnir gerð kokteila með norrænu tvisti21. nóvember 2019 Um helgina veður danski kokteilabarþjónninn Selma Slabiak, sem býr og starfar í New York, með pop-up á veitingastaðnum Skál! á Hlemmi. Hún verður mætt á föstudags- og laugardagskvöldið klukkan 18 og mun hrista sína vinsælustu drykki. Í gegnum drykkina segir hún sögu norðurslóða.
MannlífiðGómsæt og girnileg ostakaka með vínberjum20. nóvember 2019 Í botninn á þessari dásamlegu ostaköku eru notaðar litlar amaretto-kökur sem gefa henni sparilegt marsipanbragð. Það er auðvitað hægt að nota annað kex, t.d. grahams-kex eða kanilkex en við mælum með að prófa Amarettini ef þið getið nálgast þær. Eins fæst frá sama framleiðanda litlar biscotti-kökur (Cantuccini) sem einnig ganga vel í botninn.
MannlífiðFerlega freistandi pekanhnetukaka með karamellu19. nóvember 2019 Ef þú elskar hnetur og karamellu þá er þetta uppskrift fyrir þig en þessi kaka er tilvalin í sunnudagskaffið, afmælið eða saumaklúbbinn.
MannlífiðKanntu brauð að baka?18. nóvember 2019 Það er bæði einfalt og ódýrt að baka brauð auk þess sem nýbakað heimagert brauð er einfaldlega ómótstæðilegt. Lyktin af nýbökuðu brauði framkallar minningu hjá mörgum og færir oft mikla vellíðan. Það er því vel til fallið að kalla fram svolítinn hlýleika í þennan heim, bretta upp ermar, taka fram hveiti, vatn og ger og baka sitt eigið brauð.
MannlífiðKaka sem klikkar ekki með kaffinu17. nóvember 2019 Hefðin að bera eitthvað sætt fram með kaffinu er löng og mörg okkar eiga góðar minningar af afslöppuðum eftirmiðdögum þar sem gestgjafinn bar fram einfalt brauð eða köku bakaða í brauðformi ásamt kaffi. Hér er uppskrift sem er svo sannarlega vert að prófa.