Þá tók hún upp á því að panta sér te, kökur og brauð. Þetta komst fljótt í tísku hjá aristókrötum samfélagsins á Viktoríutímabilinu í Bretlandi. Þar með hófst eftirmiðdagstemenningin sem nýtur enn í dag mikilla vinsælda.
Crostini með þeyttum rjómaosti, fíkjum, heslihnetum og hunangi
fyrir 8
Gott er að skera brauðið örlítið á ská til að fá lengri sneiðar. Þetta er afar einfaldur réttur og því skiptar gæði hráefnisins miklu máli.
½ steinbakað baguette-brauð
80 g rjómaostur, léttþeyttur í hrærivél
4-6 ferskar fíkjur
heslihnetuflögur, til skrauts
fljótandi hunang
Hitið ofn í 180°C. Skerið 8 sneiðar af brauðinu og raðið á bökunarplötu með bökunarpappír á.
Setjið nokkra dropa af ólífuolíu yfir brauðið og bakið í ofni í 5-7 mín. takið úr ofninum og látið kólna. Þeytið rjómaostinn í u.þ.b. 3 mín. á miðlungshraða. Skerið fíkjurnar í sneiðar.
Smyrjið brauðið með rjómaostinum og raðið fíkjunum á. Dreifið heslihnetunum yfir fíkjurnar og setjið hunang yfir rétt áður en borið er fram.
Umsjón / Folda Guðlaugsdóttir
Stílisti / Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir
Myndir / Hákon Davíð Björnsson































Athugasemdir