Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Nótt hinna óvelkomnu – Móðir sótti drukkinn ungling í verslun

Lögreglan að störfum í miðborginni Mynd/Lára Garðarsdóttir
Lög­reglan að störfum í mið­borg­inni Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Talsvert var um óvel­komna ein­stak­linga á ýmsum stöðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær­kvöldi og í nótt, sam­kvæmt dag­bók lög­regl­unnar.

Ken­gölv­aður ein­stak­lingur var til vand­ræða á end­ur­vinnslu­stöð í gær en hann veitt­ist að lög­reglu­mönnum sem ætl­uðu sér að ræða við hann. Var hann að lokum hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa þar til víman rennur af honum og hægt verður að taka af honum skýrslu vegna máls­ins.

Annar ein­stak­lingur var hand­tek­inn af lög­regl­unni sem þjón­ustar Vest­ur­bænum, Mið­borg­inni, Hlíðunum, Laug­ar­dalnum, Háaleiti og Sel­tjarn­ar­nesi. Hafði hann gert heið­ar­lega til­raun til þess að sparka í lög­reglu­menn sem höfðu afskipti af honum. Hótaði hann lög­reglu­mönnum og fjöl­skyldum þeirra líf­láti. Var hann hand­tek­inn eins og fyrr segir og settur í fanga­klefa en skýrsla verður tekin af honum þegar víman rennur af honum.

Þá var óskað eftir aðstoð lög­reglu á veit­inga­stað vegna tveggja ölv­aðra ein­stak­linga sem voru til vand­ræða. Var þeim vísað út. Lög­reglan kom þriðja ölv­aða ein­stak­lingnum af öðrum veit­inga­stað, til síns heima en hann hafði verið til vand­ræða.

Barn féll af reið­hjóli og hlaut minni­háttar áverka en var flutt með sjúkra­bíl á Bráða­mót­tök­una til skoð­unar.

Óvel­kom­inn aðili kom sér fyrir á hót­eli og var óskað eftir aðstoð lög­reglu, sem vís­aði honum út. Þá var einnig óskað eftir aðstoð lög­reglu í verslun eftir að ein­stak­lingur neit­aði að yfir­gefa versl­un­ina. Var honum vísað út.

Ökumaður bif­reiðar var stöðv­aður, grun­aður um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Reyndist hann vera sviptur öku­rétt­indum vegna fyrri afskipta lög­reglu.

Í Hafn­ar­firði var lög­reglan kölluð til vegna mót­mæla við Hér­aðs­dóm Reykja­ness.

Lög­reglan sem ann­ast útköll í Kópavogi og í Breið­holt­inu fékk til­kynn­ingu um þjófnað úr verslun. Þá vís­aði hún kengdrukknum ein­stak­lingi af veit­inga­stað en hann hafði verið þar til vand­ræða.

Eitt og annað gekk á hjá lög­regl­unni sem ann­ast útköll í Árbænum, Graf­ar­holt­inu, Graf­ar­vog­inum, Norð­linga­holt­inu, Mos­fells­bænum, Kjós­ar­hrepp­inum og á Kjal­ar­nesi. Ölvaður ein­stak­lingur neit­aði að yfir­gefa veit­inga­stað þar sem hann hafði verið til vand­ræða. Lög­reglan vís­aði honum út.

Óskað var eftir aðstoðar lög­regl­unnar í verslun vegna ölv­aðs ung­lings. Lög­reglan hafði sam­band við móður ung­lings­ins sem sótti hann.

Ökumaður var stöðv­aður grun­aður um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Einnig er hann grun­aður um vörslu fíkni­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Hestarnir fóru inn um fremri dyr vagnsins og út um þær aftari
Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði