Breska lögreglan hefur handtekið fimm einstaklinga í bænum Thetford í austurhluta Englands eftir þrjú kvöld í röð þar sem mótmælendur beindu sjónum sínum að húsnæði sem þeir töldu hýsa hælisleitendur. Lögregla þurfti í nokkrum tilfellum að flytja íbúa húsanna á brott til að tryggja öryggi þeirra.
Mótmælin stóðu yfir frá þriðjudegi til fimmtudags og tengjast fyrirætlunum um að nýta yfirgefna herstöð í nágrenni Thetford sem húsnæði fyrir hælisleitendur.
Paul Sanford, lögreglustjóri Norfolk, sagði í samtali við BBC Radio 4 að mótmælendur hefðu beint aðgerðum sínum að byggingum sem þeir töldu tengjast gistingu hælisleitenda. Í að minnsta kosti tveimur tilfellum hefði lögregla þurft að fylgja íbúum húsanna á öruggan stað. Sumir þeirra hefðu verið hælisleitendur.
Samkvæmt The Guardian tóku meira en hundrað manns þátt í mótmælunum á þriðjudag og miðvikudag eftir að listi yfir heimilisföng, sem sögð voru tengjast húsnæði hælisleitenda, fór í dreifingu á netinu.
Lögregla greindi jafnframt frá því að lögreglumaður hefði orðið fyrir grjótkasti, annar verið bitinn og hrækt hafi verið á þriðja.
Myndskeið sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum sýna lögreglu fylgja fólki frá húsum á meðan tugir mótmælenda hrópa meðal annars að það eigi að fara og að flóttafólk sé ekki velkomið.
Sanford sagði miklar líkur á því að mótmælendur hefðu komist inn í eitt húsanna og stofnað öryggi íbúa þess í hættu ef lögregla hefði ekki gripið inn í.
Bresk stjórnvöld hafa undanfarin misseri leitað leiða til að draga úr notkun hótela sem húsnæðis fyrir hælisleitendur á meðan umsóknir þeirra eru afgreiddar. Fyrirætlanir um nýtt húsnæði hafa ítrekað leitt til mótmæla.
Sambærileg ólga varð í Belfast á Norður-Írlandi í júní, þar sem ráðist var gegn fólki af erlendum uppruna og húsnæði sem talið var tengjast innflytjendum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir