Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Tjáir sig um sambandið við piltinn: „Hann var mjög aðgangsharður“

Ást­hildur Lóa kallar 16 ára pilt­inn „mann“ og segir að hann hafi verið „mjög hrif­inn“ af henni.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir Barna­mála­ráð­herra hefur sagt af sér emb­ætti vegna sam­bands við ung­lings­pilt árið 1990.

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, mennta- og barna­mála­ráð­herra, opnar sig um sam­band við ung­lings­pilt í við­tali við Stöð 2 í kvöld. Ást­hildur, sem eign­að­ist barn með 16 ára pilti árið 1990, talar um hann sem „mann“. Hún segir málið ósann­gjarnt, en hefur sagt af sér ráð­herra­emb­ætti, að hennar sögn vegna þess „hvernig fréttir eru í dag“.

„Það er út af því að fyrir núna um þrjá­tíu og sex árum var ég 22 ára gömul og var í sam­bandi við mann sem var yngri en ég, 16 ára,“ segir Ást­hildur Lóa í við­tali við Vísi.is. „Það voru ýmsar aðstæður þar í gangi sem ég get ekki farið út í hér. En fyrst það er verið að draga þetta fram núna þá ætla ég ekki að láta þetta skyggja á störf rík­is­stjórn­ar­innar og öll þau góðu mál­efni sem þarf að vinna í mennta­mála­ráðu­neyt­inu.“

Ást­hildur kemst við í sam­tali við frétta­mann Stöðvar 2 þegar hann spyr hana hvort erfitt sé að kveðja ráðu­neyti barna- og mennta­mála.

„Það er erf­ið­ara en hægt er að lýsa,“ segir hún.

Þá seg­ist hún ekki sam­þykkja ásak­anir barns­föður um að hún hafi tálmað umgengni. „Ég í raun hafna þeim. Ég tálm­aði ekki.“

„Ég veit bara hver sann­leik­ur­inn er,“ segir hún. „Hann sótti mjög í mig. Hann var ofboðs­lega hrif­inn af mér. Hann var mjög aðgangs­harður, svo ekki sé meira sagt. Og fyrir rest, ég bara réð ekki við ástandið, eins og það var.“

Eins og segir í lýs­ingu á vef Mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins er „hlut­verk mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins að tryggja að menntun, aðbún­aður og rétt­indi barna á Íslandi séu ávallt í fyr­ir­rúmi“. Málið var til­kynnt til for­sæt­is­ráð­herra fyrir um viku síðan.

„Mér var bara sagt að það hefði kona að nafni Ólöf haft sam­band við for­sæt­is­ráðu­neytið og beðið um fund,“ segir Ást­hildur í við­tali við Vísi. „Og ég var spurð hvort ég þekkti hana og ég sagði nei. Ég vissi ekk­ert hver þessi kona var og hef aldrei hitt hana.“

„Mér varð illa við af því að ég geri mér grein fyrir hvernig hægt er að mat­reiða svona og hvernig þetta lítur út. Og það er mjög erfitt að koma réttri sögu á fram­færi í fréttum í dag þegar mál standa svona.“

Heimir Már Pét­urs­son, upp­lýs­inga­full­trúi og fram­kvæmda­stjóri Flokks fólks­ins, grípur inn í við­talið. „Hún reyndi að kom­ast að því hvaða kona þetta væri og hvað hún vildi,“ sagði Heimir, sem þó var ekki í við­tali.

„Það er nú það fyrsta sem ég gerði,“ segir Ást­hildur Lóa. „Ég reyndi að kom­ast að því hvaða kona þetta væri og hvað hún vildi. Hvað hana varðar. Ég held hún sé fyrr­ver­andi tengda­móðir hans, eftir því sem mér skilst.“

„Hún veit ekk­ert mikið um það,“ segir Heimir Már.

„Við vitum það, hvernig fréttir eru í dag og við vitum að svona mál, ef ég væri áfram ráð­herra, þá yrði það dregið upp aftur og aftur og aftur og aftur. Og það yrði í raun­inni aldrei neinn vinnu­friður fyrir rík­is­stjórn­ina og ekki heldur fyrir mál­efn­unum sem ég brenn fyrir í mennta­mála­ráðu­neyt­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Pólitík

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun