Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Agnes Veronika hætt eftir „persónulegar árásir“

Foreldar margra barna vildu leik­skóla­stjór­ann í burtu

Leikskólinn Maríuborg í Grafarholti
Leik­skól­inn Mar­íu­borg í Graf­ar­holti Fyrr­ver­andi starfs­maður segir vanda­mál hafa lengi verið til staðar Mynd: Reykjavíkurborg

Agnes Veronika Hauks­dóttir hefur ákveðið að hætta sem leik­skóla­stjóri Mar­íu­borgar í Graf­ar­holti en hún greindi frá þessu í hverf­is­grúppu fyrir íbúa í Graf­ar­holti og Úlf­arsár­dal á Facebook en hún gerir það í kjöl­fari kvört­unar for­eldra barna á leik­skól­anum.

„Ég gerði mitt allra besta fyrir börnin, starfs­fólkið for­eldra – og þrátt fyrir að alls konar óvæntar upp­á­komur geti alltaf átt sér stað í flóknum störfum, þá á eng­inn að þurfa að þola nið­ur­rif eða per­sónu­legar árásir,“ sagði Agnes Veronika í færsl­unni.

Í jan­úar vildu for­eldrar 60 barna sem eru í eða hafa verið í leik­skól­anum Mar­íu­borg í Graf­ar­holti krefj­ast þess að hún segi af sér eða verði rekin og sendu á borg­ar­ráð þess efnis. Í bréf­inu til­greina for­eldr­arnir um það bil 30 atvik sem for­eldrar telji óásætt­an­leg. Sem dæmi nefna for­eldr­arnir að starfs­maður hafi „látið barn heyra það,“ aðeins þrír starfs­menn hafi verið úti með 35 börn og talað sé niður til barna. Þá hefur Morg­un­blaðið það eftir for­eldrum að börn kvíði að fara í leik­skól­ann og starfs­menn hegði sér óvið­eig­andi í garð barn­anna.

Mannlíf tók við­tal við fyrr­ver­andi starfs­mann Mar­íu­borgar í jan­úar sem sagði að vanda­mál leik­skól­ans hefðu verið lengi til staðar og sagði að Guðný Hjálm­ars­dóttir, fyrr­ver­andi leik­skóla­stjóri og þáver­andi yfir­maður Agnesar, hefði staðið sig illa í starfi.

„Þegar ég vann þarna var Agnes deild­ar­stjóri og Guðný [Hjálm­ars­dóttir] var skóla­stjóri. Það var rosa­lega sér­stakur andi á leik­skól­anum. Ég hef aldrei séð starfs­fólk jafn óvilj­ugt til að leika við börn. Fólkið sem vann með mér á deild vildi bara lita og púsla með börn­unum og vildi helst ekki standa upp úr stólum og í úti­veru stóðu allir starfs­menn upp við húsið og hreyfðu sig ekki frá því nema að heyra barns­grátur. Þetta afsakar auð­vitað ekki Agnesi ef hún hefur staðið sig illa sem leik­skóla­stjóri en þegar maður vinnur í svona lélegu umhverfi lengi þá getur verið erfitt að hrista það af sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði