Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rjómatertukastarinn mikli er fallinn frá

Tertukast hans hafði lagalegar afleiðingar

Noël Godin vísað af rauða dreglinum á Cannes árið 2004
Noël Godin vísað af rauða dregl­inum á Cannes árið 2004 Mynd: FRANCOIS GUILLOT / AFP

Belgíski grín­istinn Noël Godin, sem varð heims­þekktur fyrir að kasta rjóma­tertum í andlit frægra einstaklinga, er látinn, 80 ára að aldri. Sambýlis­kona hans, Sylvie Broodthaers, staðfesti andlátið við AFP, en Godin lést á sunnudags­morgun.

Godin, sem lýsti sjálfum sér sem „anarkískum sælgætis­gerðarmanni“, stundaði tertukast í meira en þrjá áratugi. Skotmörk hans voru einkum auðugir og áhrifa­miklir einstaklingar sem hann taldi þurfa að taka sjálfa sig minna alvarlega.

Fyrsta þekkta atlaga hans var gegn franska rithöfundinum Marguerite Duras árið 1969. Síðar urðu meðal annars kvikmynda­gerðar­maðurinn Jean-Luc Godard og Nicolas Sarkozy, síðar forseti Frakk­lands, fyrir barðinu á honum.

Godin vakti heims­athygli árið 1998 þegar honum tókst að koma tertu í andlit Bills Gates, stofnanda Microsoft. Uppátækið varð öðrum hópum víða um heim innblástur og sambærileg mótmæli fylgdu í kjölfarið.

Godin sagðist þó aldrei hafa viljað taka að sér tertuköst gegn greiðslu. Hann hafnaði meðal annars boðum um að ráðast með þessum hætti á leik­konurnar Sharon Stone og Catherine Deneuve. Hann lýsti aðferðum sínum sem „skrípa­legu formi friðar­stefnu“ þar sem markmiðið væri aðeins að særa stolt fórnar­lambanna.

Tertukast hans hafði þó einnig lagalegar afleiðingar. Eftir að hann kastaði ananas tertu í franska forseta­fram­bjóðandann Jean-Pierre Chevènement árið 2002 var hann sakfelldur og sektaður.

Eftirlætis­skotmark Godins var franski heim­spekingurinn Bernard-Henri Lévy. Godin náði að hitta hann með tertu að minnsta kosti átta sinnum á árunum 1985 til 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár