Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Unglingsstelpa handtekin á leið í próf

Veikri konu í hjóla­stól og dóttur hennar vísað frá landi.

Flensborg
Flens­borg Farah var hand­tekin á leið í próf. Mynd: flensborg.is

Sómölskum mæðgum hefur nú verið vísað frá Íslandi eftir að hafa verið hér síðan 2023. Móðirin, Zahra Hussein er veik og í hjóla­stól og dóttirin, hin 17 ára Farah Mohamed talar orðið íslensku og stund­aði nám í Flens­borg­ar­skóla í Hafn­ar­firði. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var hún hand­tekin á leið í próf í gær­morgun og færð ásamt móður sinni á hótel í Hafn­ar­firði.

FarahFarah var í skát­unum.

Skáta­vinir, sam­nem­endur og kenn­arar stúlkunnar mættu fyrir utan hót­elið í gær­kvöldi til að mót­mæla brott­vís­un­inni. Var mægð­unum bannað að yfir­gefa hót­el­her­bergið og gat því Farah ekki kvatt vini sína. Söng hóp­ur­inn fyrir mæðgurnar fyrir utan hót­el­her­bergið.

Mótmælt við hót­eliðVinir Farah mættu fyrir utan hót­elið.

Samkvæmt Sam­stöð­inni er mál mæðgn­anna flókið en þær komu hingað til lands árið 2023 en áður hafði eig­in­maður Zöhru og faðir Farah fengið vernd hér á landi. Áður höfðu mæðgurnar haft aðkomu á Kýpur og fengið þar mann­úð­ar­vernd. Í ljós kom síðan að eig­in­mað­ur­inn hafði ekki verið alveg heið­ar­legur í sinni umsókn og því var dval­ar­leyfi hans rift og hann sendur úr landi. Samkvæmt Sam­stöð­inni er síð­ast vitað af honum í Eþíópíu, þar sem hann var kvaddur í her­inn en mæðgurnar hafa ekki heyrt frá honum í nokkra mán­uði.

Farah og for­set­inn fyrr­ver­andiFarah með Guðna Th. Jóhann­essyni.

Eins og áður kemur fram er Zahra veik og bundin við hjóla­stól og reiðir sig aðgjör­lega á dóttur sína í dag­legum athöfnum en þeim var í morgum vísað úr landi.

Zahra og FarahMæðgunum hefur verið vísað úr landi.

Mannlíf heyrði í Jóni Sig­urðs­syni, lög­manni mæðgn­anna, sem segir and­lega líðan þeirra hræði­lega.

„Þeim líður hræði­lega. Stelpan er í algjöru áfalli. En nú er staðan sú að þeim hefur verið brott­vísað, þær eru farnar úr landi. Þannig að allt sem ég hef verið að reyna að gera fyrir þær, opna þetta aftur og svona, það í raun fellur um sig því öllu verður vísað frá.“

Aðspurður hvort það sé þá engin von, neitar Jón því. „Nei, raun­veru­lega ekki. Það eru engin sér­stök úrræði til, til þess að berj­ast gegn þessu núna.“

Jón segir að dóttirin, Farah, hafi verið búin að koma sér vel inn í sam­fé­lagið á Íslandi.
„Hún var búin að aðlag­ast mjög vel, tal­aði fína íslensku og frá­bæra ensku og búin að mynda mjög góðar teng­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði