Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Aðalmeðferð í máli Elds gegn RÚV hafin

Fyrrum for­maður Sam­tak­anna 22 er ósáttur við ummæli sem frétta­maður lét falla í sjón­varp­inu

Eldur Smári í Héraðsdómi Reykjavíkur
Eldur Smári í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur Hefur verið sak­aður um hatur í garð trans fólks. Mynd: Víkingur

Í morgun hófst aðal­með­ferð í máli Elds Smára Krist­ins­sonar, fyrrum for­manni Sam­tak­anna 22, gegn RÚV og Berg­steini Sig­urðs­syni frétta­manni.

Forsaga máls­ins er sú að Eldur var fram­bjóð­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins sem bauð fram í Alþing­is­kosn­ingum í fyrra og var odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Í þætt­inum ræddi Berg­steinn við Arnar Þór Jónsson, for­mann Lýð­ræð­is­flokks­ins, um Eld.

„Tölum einmitt um þjóna og þá sem þið veljið til þjón­ustu. Oddviti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, Eldur Smári Krist­ins­son, hann er for­maður Sam­tak­anna 22, sam­taka sem hafa verið sökuð um að ala á andúð í garð trans fólks, hefur verið fjar­lægður af lög­reglu úr grunn­skóla fyrir að mæta þar í leyf­is­leysi, og mynda starfs­fólk og börn, hann hefur sakað þau sem berj­ast fyrir rétt­indum trans fólks um barn­a­níð, þar á meðal nafn­greinda íslenska bar­áttu­konu, hann hefur líka þrá­stag­ast um að hún sé karl, farið mjög klúrum og rudda­legum orðum um kyn­færi hennar á opin­berum vett­vangi…“

Eldur var ekki sáttur við þessi ummæli og fór fram á að RÚV greiddi honum miska­bætur og er málið nú komið á borð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Fór fyrir meintum haturssamtökum

Vert er að nefna að Samtökin 22 hafa verið kölluð hat­urs­sam­tök af fólki sem stendur með trans sam­fé­lag­inu en sam­tökin breyttu nýverið nafni sínu í LGB Samtökin. Samtökin segj­ast hins vegar vera bar­áttu­sam­tök fyrir homma og les­b­íur en tæp­lega 300 sam­kyn­hneigðir ein­stak­lingar skrif­uðu undir bréf árið 2023 þar sem var sagt að sam­tökin töl­uðu ekki fyrir hönd þeirra og væru ekki í raun ekki hags­muna­sam­tök fyrir sam­kyn­hneigt fólk.

Eldur var sömu­leiðis sak­aður um að hvatt Uglu Stefaníu Krist­jönu Jóns­dóttur, trans konu og aktí­vista, að fremja sjálfs­víg en hann neit­aði því við­tali við Heim­ild­ina.

Reykja­vík­ur­borg til­kynnti Eld Smára til lög­regl­unar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir að mæta í Lang­holts­skóla í leyf­is­leysi og taka starfs­fólk upp á mynd­band árið 2023. Þá kærðu Samtökin 78 Eld Smára í fyrra fyrir sjö ummæli sem hann hefur látið falla á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas