Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Sérsveitin kölluð til vegna vopnaðs manns við Karfavog – Reyndist halda á kertastjaka, ekki byssu

Hinn „vopnaði“ kíkir út um glugga á heimili sínu.
Hinn „vopn­aði“ kíkir út um glugga á heim­ili sínu. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lög­reglan og sér­sveit lög­regl­unnar var kölluð á vett­vang við Karfavog í Reykja­vík 14. nóv­em­ber árið 1989. Maður á fer­tugs­aldri hafði þá lokað sig inni í her­bergi sínu í húsi sínu við Karfavog og sagð­ist vopn­aður skamm­byssu.

Starfs­menn Rann­sókn­ar­lög­reglu hafði heim­sótt mann­inn vegna gruns um að hann hefði ólög­leg vopn undir höndum. Maðurinn brást við með því að læsa sig inni í her­bergi en starfs­menn­irnir töldu lík­legt að þar geymdi hann vopn og köll­uðu því til lög­regl­una og sér­sveit­ina. Eftir um tveggja og hálfs klukku­stundar umsátur gafst mað­ur­inn loks­ins upp en við ítar­lega leit kom í ljós að hann var alls ekki vopn­aður skot­vopni, heldur kerta­stjaka. Reyndist mað­ur­inn undir áhrifum vímu­efna.

Hér fyrir neðan má sjá frétt Morg­un­blaðs­ins af atvik­inu:

Lögregla hand­tók mann eftir hálfs ann­ars tíma umsátur:

Þóttist vopn­aður skamm­byssu og hót­aði að skjóta

Byssan reynd­ist síðar vera kerta­stjaki

MAÐUR lok­aði sig inni í her­bergi í húsi sínu við Karfavog í Reykja­vík síð­degis í gær. Hann þótt­ist vera vopn­aður skamm­byssu og hót­aði að beita henni. Lög­reglan kom á vett­vang skömmu fyrir klukkan 15.30 og sér­sveit lög­regl­unnar, vík­inga­sveitin, um hálfri stundu síðar. Um klukkan 17 gafst mað­ur­inn upp og kom út úr hús­inu, vopn­laus, með hendur á höfði. Síðar kom í ljós að hann hafði ekki verið með skamm­byssu, heldur kerta­stjaka í hend­inni. Maðurinn, sem er 33 ára gam­all, hefur marg­sinnis komið við sögu lög­regl­unnar vegna ýmissa afbrota.

Hinn „vopn­aði“ kíkir út um glugga á heim­ili sínu. Sér­sveit­ar­maður bíður átektar.

Forsaga máls­ins er sú, að menn frá Rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins komu heim til manns­ins með hús­leit­ar­heim­ild, þar sem grunur lék á að hann hefði ólög­leg vopn undir höndum. Maðurinn stökk inn í her­bergi og læsti að sér og þar sem rann­sókn­ar­lög­reglu­menn­irnir höfðu ástæðu til að ætla að hann væri vopn­aður var lög­reglan í Reykja­vík látin vita. Þá var klukkan 15.11 og klukkan 15.58 var vík­inga­sveitin kölluð út.
Lög­reglan hafði mik­inn við­búnað við Karfavog og var gatan lokuð allri umferð frá Gnoð­ar­vogi að Skeið­ar­vogi. Íbúar við göt­una fengu ekki að kom­ast að húsum sínum og lög­reglu­menn leið­beindu þeim fáu, sem þurftu að kom­ast burt. Þegar vík­inga­sveitin kom á vett­vang fóru vopn­aðir liðs­menn hennar inn í nær­liggj­andi garða og hús, þar sem þeir sáu vel hús manns­ins og umhverfi þess.
Maðurinn gaf til kynna að hann væri vopn­aður, lög­reglan heyrði smell og síðan sagði mað­ur­inn að næst skyldi hann skjóta. Þá sáu vík­inga­sveit­ar­menn, sem komust í návígi við mann­inn, að hann faldi sig á bak við sófa og lát­bragð hans allt var eins og hann væri vopn­aður.
Um klukkan 17 náðu lög­reglu­menn sam­komu­lagi við mann­inn um að hann gengi út úr hús­inu. Þá renndi hvít, ómerkt Toyota-bif­reið rann­sókn­ar­lög­regl­unnar upp að hús­inu. Tveir óein­kenn­is­klæddir menn stigu út og gengu á móti mann­inum, sem kom út með hendur á höfði. Liðsmenn vík­inga­sveit­ar­innar voru í við­bragðs­stöðu, ef vera kynni að mað­ur­inn gripi til vopna. Hann sýndi hins vegar engan mót­þróa, var settur í járn og leiddur aftur inn í húsið. Við leit lög­regl­unnar fund­ust engin vopn í hús­inu, en í ljós kom að mað­ur­inn hafði haldið á kerta­stjaka.
Klukkan 17.29 var lok­aðri lög­reglu­bif­reið bakkað upp að hús­inu og mann­inum var síðan ekið á brott. Hann var fluttur í fanga­geymslu í lög­reglu­stöð­inni við Hverf­is­götu. Samkvæmt upp­lýs­ingum lög­regl­unnar var hann undir ann­ar­legum áhrifum, lík­lega vegna lyfja­töku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Eftir tíu ár í starfi segir flugfreyjan að val á fatnaði, töskum og öðrum ferðabúnaði geti skipt máli fyrir þægindi í flugi.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi