Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Karen ætlaði að klífa Drangaskarð í nóvember 1986 – Fannst látin nokkrum dögum síðar

Drangaskarð.
Dranga­skarð. Mynd: Facebook-síða Norðfirðingafélags Reykjavíkur

Hollensk stúlka, Karen Van Der Stan hóf starf sem sjúkra­þjálf­ari á Nes­kaups­stað árið 1985 og hafði unnið þar í ár þegar hún skyndi­lega hvarf.

Karen, sem var 23 ára þegar hún hvarf í nóv­em­ber 1986, var mikil úti­vista­kona og hafði lýst áhuga sínum á að ganga á Dranga­skarð, milli Norð­fjarðar og Mjóa­fjarðar og þangað sást einmitt til hennar síð­ast á lífi. Mikil leit var gerð að hinni ungu konu en yfir 60 leit­ar­menn úr björg­un­ar­sveitium af svæð­inu leit­uðu hennar til að byrja með en sífellt bætt­ist við mann­skapur og þegar mest var, leit­uðu 120 manns að Kareni. Það var svo á þriðju­dags­morgni um klukkan 9:30, sem hún fannst látin í Dranga­skarði en hún hafði fallið fram af kletta­syllum.

Morg­un­blaðið fjall­aði um hið sorg­lega slys á sínum tíma. Hér má lesa þá umfjöllun:

Hol­lenska stúlkan fannst látin í Dranga­skarði

HOLLENSKA stúlkan, sem leitað var á Nes­kaup­stað á mánu­dag og aðfara­nótt þriðju­dags, fannst látin í Dranga­skarði um klukkan 9.30 í gær­morgun. Stúlkan hafði fallið fram af kletta­syllum og talið að hún hafi lát­ist í fall­inu.

Stúlkan hafði starfað sem sjúkra­þjálfi við sjúkra­húsið á Nes­kaup­stað í um það bil eitt ár. Hún bjó ein í íbúð á vegum sjúkra­húss­ins. Hún hafði mik­inn áhuga á úti­vist og fjall­göngum og hafði áður lýst áhuga sínum á að ganga á Dranga­skarð. Síðast sást til hennar á leið upp fjallið á sunnu­dag. Er hún kom ekki til vinnu sinnar á mánu­dag var farið að grennsl­ast fyrir um ferðir hennar. Skipuleg leit var síðan hafin um klukkan 17.00 á mánu­dag. Yfir 60 leit­ar­menn úr björg­un­ar­sveit­unum Gerpi og Brimrúnu hófu leit­ina og síðan bætt­ust fleiri við og tóku um 120 manns þátt í leit­inni þegar mest var.

Leitin beind­ist einkum að Dranga­skarði á milli Norð­fjarðar og Mjóa­fjarðar, sem er í um það bil 500 metra hæð. Stúlkan fannst þar látin um klukkan 9.30 í gær­morgun. Hafði hún fallið niður tvær kletta­syllur og er talið lík­legt að hún hafi lát­ist í fall­inu.

Stúlkan hét Karen Van Der Stan, 23 ára gömul, frá bænum Waddinxveen , skammt norður af Rott­er­dam í Hollandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Eftir tíu ár í starfi segir flugfreyjan að val á fatnaði, töskum og öðrum ferðabúnaði geti skipt máli fyrir þægindi í flugi.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi