Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Hraðara landris en áður: Kvikugangur nálægt Reykjanesbraut

„Líkur á end­ur­teknum kviku­hlaupum og jafn­vel eld­gosum“.

Gosið 1. apríl
Gosið 1. apríl Óttast var um byggð­ina í Grinda­vík þegar gos­rás opn­að­ist innan varn­ar­garðs­ins, en kvikan hljóp þess í stað til norð­aust­urs í átt­ina að höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Björn Oddsson / Almannavarnir

Landris er hrað­ara nú í Svarts­engi en í kjöl­far síð­ustu eld­gosa. Því virð­ast spár jarð­vís­inda­manna um enda­lok eld­gosa­hrin­unnar á Sund­hnúks­gíga­röð­inni vera ótíma­bærar.

Í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stof­unni kemur fram að skýr­ingin getur legið í því hversu mikið tæmd­ist úr kerf­inu í kvik­hlaupi 1. apríl, þar sem kviku­gangur teygði sig lang­leið­ina í átt­ina að Reykja­nes­braut og hálfa leið til Hafn­ar­fjarðar.

„Aflög­un­ar­gögn sýna skýrt merki um að land­ris haldi áfram undir Svarts­engi. Landris mælist nú hrað­ara en eftir síð­ustu eld­gos. Það gæti skýrst af því hversu mikið rúm­mál kviku fór úr kerf­inu í þessum síð­asta atburði,“ segir Veð­ur­stofan.

Kviku­gang­ur­inn er sá stærsti sem mynd­ast hefur frá 10. nóv­em­ber 2023, þegar miklar skemmdir urðu í Grinda­vík. Óttast var að gjósa myndi nærri Reykja­nes­braut­inni og Vogum í Vatns­leysu­strönd, en kvikan var á eins til eins og hálfs kíló­metra dýpi. Svo fór ekki, en atburða­rásin heldur áfram.

„Hins vegar er enn of snemmt að segja til um áfram­hald­andi þróun á hraða kviku­söfn­un­ar­innar. Reynsla frá fyrri atburðum sýnir þó að hraði kviku­söfn­unar minnkar yfir­leitt eftir því sem líður á kviku­söfn­un­ar­tíma­bilið milli gosa. Bíða þarf í alla­vega viku, mögu­lega nokkrar vikur, til að segja til um hvort og þá hversu mikið hraði kviku­söfn­unar mun breyt­ast,“ segir Veð­ur­stofan.

Kviku­gang­ur­inn séstMyndin sýnir jarð­skjálfta frá seinni parti föstu­dags­ins 4. apríl til dags­ins í dag. Þar kemur fram hvernig kviku­gang­ur­inn hefur þrýst sér leið ská­hallt gegnum Reykja­nesskag­ann. Rauðir punktar eru nýlegri og bláir eldri.

Smá­skjálfta­virkni er áfram við kviku­gang­inn, vestan og norð­vestan við Keili, sem og skammt vestan við Kleif­ar­vatn.

Veð­ur­stofan mun því halda áfram nánu eft­ir­liti.

„Miðað við þau gögn sem liggja fyrir er ljóst að inn­flæði kviku undir Svarts­engi heldur áfram og er því atburða­rásinni á Sund­hnúks­gíga­röð­inni ekki lokið. Á meðan kviku­söfnun heldur áfram undir Svarts­engi eru líkur á end­ur­teknum kviku­hlaupum og jafn­vel eld­gosum. Veð­ur­stofan heldur áfram að vakta svæðið og meta mögu­legar sviðs­myndir út frá nýj­ustu gögnum.“

Einn helsti eld­fjalla­fræð­ingur Íslands, Ármann Hösk­ulds­son, spáði því í febr­úar að eld­gosa­hrin­unni færi að ljúka, þar sem hægst hefði á land­ris­inu. „Það er ekk­ert ó­lík­legt að þessi Sund­hnúks­syrpa sé að koma að enda­lokum,“ sagði hann í sam­tali við Stöð 2. Nú virð­ist ný staða hafa opn­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði