Undirskriftir fólks sem hafnar Bjarna Benediktssyni sem forsætisráðherra halda áfram að hrúgast inn. Nú hafa rúmlega 37 þúsund manns skrifað undir áskorun gegn Bjarna. Yfirskrift mótmælaskjalsins er: Bjarni Benediktsson nýtur ekki okkar stuðnings sem forsætisráðherra. Vísað er til kannana sem sína að Bjarni hefur mælst sem óvinsælasti stjórnmálamaður landsins og sá lægst metni.
Listinn á island.is
verður opinn til 24 mars. Ábyrgðarmaður er Eva Lín Vilhjálmsdóttir.
Ekki er búist við viðbrögðum hins umdeilda forsætisráðherra þrátt fyrir hina miklu andstöðu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir