Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Trump „myndi elska“ að senda bandaríska borgara í fangelsi í El Salvador

For­set­inn hefur látið senda inn­flytj­endur í fang­elsi án dóms og laga. Næstir eru banda­rískir rík­is­borg­arar sem telj­ast brota­menn.

Trump og Bukele
Trump og Bukele Ein­ræð­is­herra miðam­er­íku­rík­is­ins El Salvador hefur tekið á móti brott­fluttum inn­flytj­endum og vistað í risafang­elsi á for­sendum þess að þeir kunni að vera með­limir í gengjum. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti bætti í dag í óvenju­legar hót­anir sínar um að senda Banda­ríkja­menn í erlend fang­elsi og sagði að hann myndi gjarnan vilja vísa „heima­öldum“ banda­rískum rík­is­borg­urum sem fremja ofbeld­is­glæpi í alræmt risafang­elsi í El Salvador.

Trump ræddi hug­mynd­ina á mánu­dag í við­ræðum við Nayib Bukele, for­seta El Salvador - sem kallar sjálfan sig „svalasta ein­ræð­is­herra heims“ og hefur þegar tekið við brott­fluttum inn­flytj­endum frá Banda­ríkj­unum í fang­elsi lands­ins.

Hinn 78 ára gamli Trump ítrek­aði hug­mynd­ina um að senda einnig banda­ríska rík­is­borg­ara til El Salvador og reyna þar með enn frekar á mörk grund­vall­ar­rétt­inda Banda­ríkja­manna.

„Ég kalla þá heima­alda glæpa­menn,“ sagði Trump sam­kvæmt brotum úr við­tali við Fox Noticias, spænsku­mæl­andi dag­skrár­lið, sem verður sýndur síðar í dag.

„Þeir sem ólust upp hér og eitt­hvað fór úrskeiðis og lemja fólk í haus­inn með hafna­bolta­kylfu og ýta fólki fram af neð­an­jarð­ar­lestar­braut­ar­pöllum,“ bætti hann við.

„Við erum að skoða þetta og viljum gera það. Ég myndi elska að gera þetta.“

Á mánu­dag sagði Trump á fundi sínum með Bukele í for­seta­skrif­stof­unni að hann hefði beðið Pam Bondi dóms­mála­ráð­herra að kanna mögu­leik­ann á að senda Banda­ríkja­menn til El Salvador.

Hinn harð­henti Bukele kom með þetta óvenju­lega til­boð um að taka við föngum frá Banda­ríkj­unum skömmu eftir að Trump tók við emb­ætti í annað sinn, í skiptum fyrir 6 millj­óna doll­ara gjald.

Trump hefur þegar sent meira en 250 inn­flytj­endur þangað, flesta sam­kvæmt alda­gömlum lögum frá stríðs­tímum sem svipta þá rétt­látri máls­með­ferð - en hann hefur í auknum mæli farið að tala um að senda banda­ríska rík­is­borg­ara líka.

Stjórn Trumps er þegar undir þrýst­ingi vegna máls inn­flytj­anda sem var fyrir mis­tök vísað úr landi frá Banda­ríkj­unum til El Salvador sam­kvæmt samn­ingi við Bukele.

Bukele vís­aði á mánu­dag á bug þeirri „fárán­legu“ hug­mynd að skila mann­inum - Kilmar Abrego Garcia, föður sem bjó í Maryland-ríki Banda­ríkj­anna - aftur til Banda­ríkj­anna. Enda gæti hann ekki „smyglað hryðju­verka­manni“ til Banda­ríkj­anna.

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna hefur skipað stjórn Trumps að greiða fyrir end­ur­komu hans frá hinu alræmda fang­elsi Cecot eftir að Hvíta húsið sagði að honum hefði verið vísað úr landi vegna „stjórn­sýslu­mistaka“.

Emb­ætt­is­menn Trumps halda því fram að hann sé ólög­legur inn­flytj­andi og með­limur í hinu alræmda MS-13 glæpa­gengi í El Salvador, þrátt fyrir að hann hafi aldrei verið dæmdur og verið með gilt land­vist­ar­leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt