Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Steinunn sakar Katrínu um landráð: „Þegar nú öðru sinni á að gefa frá okkur auðlindir okkar“

Katrín og Steinunn þegar þær hittust við Pallborðið.
Katrín og Steinunn þegar þær hitt­ust við Pall­borðið. Mynd: Facebook-skjáskot

For­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir vænir Katrínu Jak­obs­dóttur og Svandísi Svav­ars­dóttur um land­ráð í nýju mynd­skeiði sem birt­ist á Facebook í dag.

Steinunn Ólína varar við að nýtt „gjafa­kvóta­frum­varp“ Katrínar Jak­obs­dóttur og Svan­dísar Svav­ars­dóttur, gæti orðið að veru­leika en með því segir hún Íslend­inga gefa einka­leyf­is­höfum í fisk­eldi í hafi, „ótíma­bundin aðgang og yfir­ráð yfir okkar fal­legu íslensku fjörðum á Vest­ur­landi og Aust­ur­landi“.

„Nýtt gjafa­kvóta­kerfi.

Á meðan ég tók þátt í pall­borðsum­ræðum í beinni útsend­ingu á móti Katrínu Jak­obs­dóttur og Höllu Tóm­as­dóttur hjá Vísi í gær hófust á Alþingi Íslend­inga umræður um frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur Vinstri – Grænum þá mat­væla­ráð­herra sem skilað var inn til þings­ins þann 27. Mars síð­ast­lið­inn. Þann dag var Katrín Jak­obs­dóttir starf­andi mat­væla­ráð­herra í fjar­vist Svan­dísar sem þá var í veik­inda­leyfi.“

Þannig hefst ræða Stein­unnar en næst var­aði hún við sam­þykkt á frum­varp­inu.

„Verði þetta frum­varp Katrínar Jak­obs­dótturr og Svandís Svav­ars­dóttir um lagar­eldi sam­þykkt, þá höfum við Íslend­ingar gefið einka­leyf­is­höfum í fisk­eldi í hafi, ótíma­bundin aðgang og yfir­ráð yfir okkar fal­legu íslensku fjörðum á Vest­ur­landi og Aust­ur­landi. Þetta er smjör­þef­ur­inn af því sem íslensk sjáv­ar­út­vegs­stefna rík­is­stjórn­ar­innar hyggst fyrir.Það skal eng­inn velkj­ast í vafa um að þetta er nýtt gjafa­kvóta­kerfi sem deilt verður út með leyfum fjarða á milli sem bæði má selja og leigja áfram meðan birgðir end­ast.

En birgð­irnar munu ekki end­ast lengi, því litla sem enga ábyrgð eða skyldur skulu fjarð­ar­gafa­kvóta­eig­end­urnir nýju bera gagn­vart nátt­úru og líf­ríki Íslands. Afleið­ingar ófyr­ir­sjá­an­legar og óaft­ur­kræfar munum við Íslend­ingar hins­vegar bera.“

Þá segir Steinunn að greini­legt sé að Katrín hafi „orð­aði sér úr stjórn­mál­unum“ áður en frum­varpið fór til umræðu á þing­inu.

„Auðsýnt er að fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra forð­aði sér úr stjórn­mál­unum áður en frum­varp hennar og Svan­dísar fór til umræðu í þing­inu. Þetta gjafa­kvóta­frum­varp ætlar hún að reyna að þvo hendur sínar af sér með for­seta­fram­boði sínu.“

Í næstu orðum sínum segir hún auð­séð að það skipti máli hver situr í emb­ætti for­seta Íslands þegar frum­varpið fer til atkvæða­greiðslu í þing­inu.

„Nú illu heilli er að raun­ger­ast fyrir augum okkar um hvað mál­skots­réttur for­seta Íslands fjallar og það mun því skipta máli hver situr í emb­ætti for­seta Íslands þegar frum­varp þetta mun fara í atkvæða­greiðslu í þing­inu. Og verði þá í emb­ætti for­seta Íslands Katrín Jak­obs­dóttir þarf ekki að spyrja að leikslokum. Hver trúir því að hún í emb­ætti for­seta Íslands muni hafna frum­varpi því sem var samið af hennar flokks­fólki í hennar rík­is­stjórn? Hugtakið van­hæfi snýr öðrum þræði að yfir­bragði kerf­is­ins. Hafið á að vera yfir allan vafa hvort for­seti Íslands sé hæfur þegar kemur að und­ir­ritun laga frá Alþingi.“

Að lokum biðlar Steinunn til fjöl­miðla að fjalla ein­ungis fréttir af þessu máli, sem hún kallar „land­ráða­mál“.

„Ég vil biðja fjöl­miðla­fólk þvert á rit­sjórnir að sinna upp­lýs­inga­skyldu sinni og flytja almenn­ingi engar fréttir aðrar en þær sem varða þetta óhuggu­lega, ég leyfi mér að segja, land­ráða­mál sem i upp­sigl­ingu er á Alþingi Ísland. Þegar nú öðru sinni á að gefa frá okkur auð­lindir okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Eftir tíu ár í starfi segir flugfreyjan að val á fatnaði, töskum og öðrum ferðabúnaði geti skipt máli fyrir þægindi í flugi.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Ámundi Loftsson segir hreinlæti sundlaugagesta hafa versnað og kallar eftir auknu eftirliti og skýrari reglum á sundstöðum.
Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi