Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Félagsbústaðir taka faglega á hótunum í garð starfsmanna: „Kæra mál ef þau eru þess eðlis“

Breiðholt. Myndin tengist ekki fréttinni beint –
Breið­holt. Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint – Mynd: Reykjavíkurborg

Mannlíf greindi frá því í síð­ustu viku að Sindri Krist­jáns­son, íbúi í Breið­holti, hafi birt bréf á sam­fé­lags­miðlum sem hann fékk frá Félags­bú­stöðum en hann býr í hús­næði þeirra í Efra-Breið­holti. Hlutverk Félags­bú­staða er að leigja út íbúðir til ein­stak­linga og fjöl­skyldna sem úthlutað hefur verið félags­legu leigu­hús­næði af vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar.

Í bréf­inu er Sindri áminntur fyrir hegðun sína en hann sagður hafa sýnt ógn­andi hegðun og til­burði og að sú hegðun bein­ist gegn fólki í nán­asta umhverfi hans og valdi nágrönnum sínum kvíða og örygg­is­leysi en Sindri hefur verið sak­aður um kyn­þátta­hatur á sam­fé­lags­miðlum.

Í svar­bréfi sínu sem Sindri birti neitar hann öllum ásök­unum en töldu ein­hverjir að í svari hans fælist hótun í garð starfs­manns Félags­bú­staða. „Ef þú _______ ætlar að ræna mig mann­orð­inu með því að sverta mig og leika hetju sem bjargar deg­inum, þá mun ég nafn­birta þig fyrir öðrum og segja nákvæm­lega frá því hvar þú hefur brotið gegn mér. Ef þú túlkar það sem ógn­andi hegðun þá er það ekki mitt vanda­mál,“ skrif­aði Sindri til starfs­manns Félags­bú­staða.

Einu sinni verið veist að starfsmanni

Mannlíf hafði sam­band við Félags­bú­staði til að spyrja út í sam­skipti þeirra við leigj­endur og hversu oft það komi upp að starfs­mönnum sé hótað.

„Það er ekki algengt að starfs­fólki sé Félags­bú­staða sé hótað, hvorki af leigj­endum né öðrum,“ sagði Sigrún Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Félags­bú­staða, í svari til Mannlífs þegar hún var spurð um hót­anir og ofbeldi leigj­enda. „Líklega hefur það komið einu sinni fyrir á síð­ustu 10 árum að veist var að starfs­manni og honum ógnað.“

En hvernig taka Félags­bú­staðir á málum á borð við hót­anir?

„Þau fáu til­vik sem hafa komið upp eru rædd og yfir­farin. Mis­mun­andi hvernig málin eru unnin en getur t.d. verið þannig að haft er sam­band við við­kom­andi og farið yfir málið, mögu­leiki er á úrvinnslu­við­tali hjá sér­fræð­ingi eða jafn­ingja­stuðn­ingi innan fyr­ir­tæk­is­ins, mögu­leiki er að kæra mál ef þau eru þess eðlis, farið yfir ferla og við­brögð og málin skráð.“

Þá sagði Sigrún að almennt liði starfs­fólki ágæt­lega í vinn­unni og starfsand­inn væri góður. Slíkt væri greini­legt á þeim könn­unum sem starfs­fólk hefði tekið en starfs­menn Félags­bú­staða eru 28 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Eftir tíu ár í starfi segir flugfreyjan að val á fatnaði, töskum og öðrum ferðabúnaði geti skipt máli fyrir þægindi í flugi.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi