Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Yfirlýsing kennara og starfsfólks Kvikmyndaskóla Íslands

Kvikmyndaskóli Íslands
Kvik­mynda­skóli Íslands

Það ætti flestum að vera ljóst eftir und­an­farnar vikur að við, kenn­arar og starfs­fólk Kvik­mynda­skóla Íslands erum til­búin til að leggja mikið á okkur til að verja hag okkar nem­enda og um leið verja þá miklu fag­mennsku og 30 ára reynslu sem Kvik­mynda­skóli Íslands býr yfir. Það er sam­dóma mat okkar að sú leið sem barna- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur nú kynnt, sé ekki bara illa ígrunduð, heldur end­ur­spegli mikið þekk­ing­ar­leysi á námi í kvik­mynda­gerð og beri hag nem­enda okkar á engan hátt fyrir brjósti. 

Þessi svo­kall­aða lausn barna-og mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins er engin lausn, heldur að okkar mati hrein vald­níðsla. Það er erfitt að sjá hvað liggur að baki eða hvert mark­mið ráðu­neyt­is­ins er. 

Ráðu­neytið ætlar núver­andi nem­endum Kvik­mynda­skól­ans að ljúka yfir­stand­andi miss­eri í deildum Tækni­skóla Íslands, sem eiga fátt skylt við nám í kvik­mynda­gerð. Tækni­skól­anum er svo ætlað að útfæra sitt eigið kvik­mynda­nám, sem er vitað mál að tekur langan tíma.  

Það er algjör­lega litið fram­hjá sér­stöðu kvik­mynda­náms og margra ára við­ræðum og vinnu Kvik­mynda­skól­ans og yfir­valda um að færa nám skól­ans á háskóla­stig, að ekki sé talað um allan þann kostnað sem rík­is­valdið hefur sett í þá vinnu. Tækni­skól­inn starfar á fram­halds­skóla­stigi.

Við minnum á að Kvik­mynda­skóli Íslands hefur útskrifað yfir 600 hund­ruð nem­endur úr sér­hæfðu námi í kvik­mynda­gerð. Kannanir hafa sýnt að meiri­hluti þeirra nem­enda starfar alfarið við kvik­mynda­gerð að námi loknu og fjöl­margir því til við­bótar starfa í atvinnu­greinum sem grund­vall­ast á sér­þekk­ingu þeirra úr kvik­mynda­nám­inu við skól­ann.

Námskrá skól­ans, upp­bygg­ing sér­deild­anna og skipu­lag sam­starfs þeirra í milli hefur þró­ast á löngum tíma af fag­mennsku sem komið hefur Kvik­mynda­skól­anum á lista með sterkum erlendum kvik­mynda­há­skólum eftir alþjóð­legar úttektir og það þrátt fyrir að skól­inn hafi ekki enn fengið að starfa á háskóla­stigi. 

Skólinn hefur haft á að skipa mörgu af okkar hæf­asta kvik­mynda­gerða­fólki í hópi kenn­ara og stunda­kenn­ara. Teng­ingin við íslenskan kvik­mynda­iðnað er sterk og það hefur sýnt sig að þörfin fyrir útskrif­aða nem­endur með þá fag­þekk­ingu sem skól­inn veitir er mikil, svo þess að hægt sé að manna íslensk og erlend verk­efni. Þá má minna á að i hópi útskrif­aðra nem­enda eru hand­hafar fjölda Eddu­verð­launa, Kvik­mynda­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs og til­nefn­ingar til Evrópsku kvik­mynda­verð­laun­anna svo það sé nefnt.

Það er okkar ein­læga von að ekki verði farið í þá veg­ferð sem barna- og mennta­mála­ráðu­neytið hefur boðað í dag.

Rektor, starfs­fólk og kenn­arar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Menning

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian