Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Friðrik Ólafsson stórmeistari er fallinn frá

Friðrik Ólafsson, skák­meist­ari og fyrrum skrif­stofu­stjóri Alþingis, lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans 4. apríl, 90 ára að aldri. Mbl.is segir frá and­lát­inu.

Friðrik fædd­ist 26. jan­úar 1935 í Reykja­vík og ólst þar upp. For­eldrar hans voru Ólafur Frið­riks­son skrif­stofu­maður og Sigríður Ágústa Dorothea Sím­ans­dóttir hús­móðir.

Árið 1955 lauk Friðrik stúd­ents­prófi frá MR og lög­fræði­prófi frá HÍ 1968. Var hann full­trúi í dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­inu frá 1968-1974, for­seti Alþjóða­skák­sam­bands­ins 1978-1982, rit­stjóri Laga­safns Íslands 1982-1983 og skrif­stofu­stjóri Alþingis frá 1984 til 2005.

Friðrik er goð­sögn í skák­heim­inum og átti glæstan skák­feril en hann varð sex sinnum Íslands­meist­ari í skák, fyrst árið 1952. Þá varð hann Norð­ur­landa­meist­ari 1953 og 1971, alþjóð­legur skák­meist­ari 1956 og varð fyrsti íslenski stór­meist­ar­inn í skák árið 1958. Friðrik varð sig­ur­veg­ari á skák­mót­inu í Hastings 1955 og 1956, í Beverwijk í Hollandi 1959, í Mari­anske Kasne í Tékkóslóvakíu 1961, á alþjóð­legum skák­mótum í Reykja­vík 1966, 1972 og 1976 og á Wijk an Zee í Hollandi 1975.

Í and­láts­frétt mbl.is kemur fram að Friðrik hafi veitt for­stöðu Skák­skóla Friðriks Ólafs­sonar 1982 til 1984 og sat í nefnd mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins 1989, sem vann að und­ir­bún­ingi frum­varps til laga um Skák­skóla Íslands og stór­meist­ara­laun.

Árið 1972 var Friðrik sæmdur ridd­ara­krossi Hinnar íslensku fálka­orðu og stór­ridd­ara­krossi Hinnar íslensku fálka­orðu árið 1980. Þá var hann útnefndur heið­urs­borg­ari Ryekja­víkur árið 2015 og geður aðal­heið­urs­fé­lagi alþjóða­skák­sam­bands­ins.

Þrjár bækur um skák komu út eftir Friðrik en það voru bæk­urnar Lærið að tefla, sem hann gerði með Ingvari Ásmunds­syni, 1958, Heims­meist­ara­ein­vígið í skák með Frey­steini Jóhanns­syni 1972 og Við skák­borðið í ald­ar­fjórð­ung árið 1976.

Eig­in­kona Friðriks er Auður Júlí­us­dótt­ir en dætur þeirra eru Berg­ljót Friðriks­dótt­ir og Áslaug Friðriks­dótt­ir. Barna­börn­in eru fimm tals­ins og langafa­börn­in fimm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði