Poppsöngkonan Britney Spears hefur vakið athygli á ný á samfélagsmiðlum eftir að hún sneri aftur á Instagram í kjölfar nýlegrar handtöku vegna gruns um ölvunarakstur.
Undanfarnar vikur hafa færslur hennar einkennst af rólegum og fjölskylduvænum augnablikum. Nýjasta myndbandið hennar á Instagram sýnir hana njóta samveru með sonum sínum, Sean Preston og Jayden James.
Í myndbandinu, sem virðist tekið um borð í snekkju, má sjá Spears í góðu skapi þar sem hún faðmar syni sína. Þeir virðast orðnir talsvert hærri en móðir þeirra og taka síðar léttan dans við lagið Doin' It með LL Cool J.
Fyrr í mánuðinum var Spears handtekin í Ventura-sýslu í Kaliforníu vegna gruns um ölvun við akstur. Hún var þó látin laus úr haldi eftir nokkrar klukkustundir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir